Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2000, Síða 14

Hugur og hönd - 01.06.2000, Síða 14
s Islensk hönnun við aldamót Stefán Snæbjömsson. Undanfarna mánuði hefur íslensk hönnun verið óvenju mikið í sviðsljósinu og fengið þó nokkra umfjöllun í fjölmiðlum. Margt hefur orðið til að ýta undir umræðuna um gildi hönn- unar og mikilvægi hennar í nútím- anum. Starfsumhverfi manna verður í vaxandi mæli merkt há- tækni á sviði hverskonar rafrænna samskipta. Tækniframfarir á sviði mannvirkjagerðar, samgangna og heilbrigðisþjónustu geta, svo fremi mannkynið fari ekki langt fram úr sjálfu sér í tilgangslausu lífsgæða- kapphlaupi þjóða og einstaklinga, fært mannkyni aukna velsæld. Einhvers staðar í hugskoti okkar leynist sú vissa að allt þetta fram- faraskeið sé að miklu leyti háð hönnun, þ.e. hugmyndum og skil- greiningu viðfangsefna og forsögn um úrvinnslu þeirra. Hér eru fyrst og fremst hafðir í huga hinir stóru drættir heildarmyndarinnar, stundum nefnd hin harða hönnun, þar sem stærðfræðilegar úrlausnir og rökhyggja eru allsráðandi. En maðurinn er sem áður af holdi og blóði, hann er oftar en ekki á valdi hughrifa og tilfinn- inga, sem flökta til eftir lítt mælan- legum ástæðum, stjórnast af hans eigin innbyggðri tölvu ef svo má að orði komast. Maðurinn leitar því stöðugt mótvægis við hin hörðu gildi tækniheimsins og býr nánasta um- hverfi sitt munum sem gefa ann- arskonar skilaboð og tala til hvers og eins með óhlutlægum hætti. Hinar miklu framfarir á tæknisviði eru hugsanlega ein ljósasta ástæða stöðugrar þarfar fyrir fjölbreytni og nýjungar í heimi listanna. Þess er óskandi að íslensk hönn- un nytjahluta, listhönnun og listir hverju nafni sem nefnast megi efl- ast samstíga framförum á tækni- sviði. Margt gefur von um að svo geti orðið. Undangengin umræða um Lista- háskóla Islands og síðan stofnun hans á síðasta ári vegur þungt. Ljóst er að nokkurn tíma mun taka að móta listaháskóla með þeim hætti sem hér hefur verið stefnt að. Að leiða saman hinar mörgu list- greinar í eina menntastofnun er án Faro-brúin í Danmörku þykir eitt af fallegri mannvirkjum í vegagerð. 14 Hugur og hönd 2000

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.