Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2000, Blaðsíða 16

Hugur og hönd - 01.06.2000, Blaðsíða 16
því furðu fljótt vill fenna yfir það sem vel er gert. Hlutverk hönnun- arsafna hefur ekki síður verið að vekja athygli á góðri hönnun sam- tímans en varðveislu eldri muna. Safninu hafa þegar borist margir góðir munir og stefnir að sýningu á þeim á árinu. í aprílmánuði 1999 áttu 25 ís- lenskir hönnuðir verk á norrænni yfirlitssýningu „Nordic Trans- parencies" í Stedelijk-safninu í Amsterdam. Það sem vakti athygli við val munanna, sem Reyer Kras forstöðumaður hönnunardeildar Stedelijk-safnsins valdi, var hve víða hann leitaði fanga og stillti Hönnun: Erla Sólveig Óskarsdóttir, stóllinn Jaki, ál og formbeygður við- ur (frá sýningu í Amsterdam 1999). saman tæknilegri hönnun á borð við nytjahluti eins og laxateljara og fiskivogir og hreinu listhand- verki. I þessu vali endurspeglast viðhorf sem rutt hefur sér til rúms á hönnunarsviðinu undanfarin ár en það er að horfa fram hjá skörp- um landamærum, sem oft hafa verið dregin milli hinna ýmsu greina hönnunar og sjónmennta almennt, en í staðinn að leitast við að samþætta hinar ýmsu greinar sjónmennta, aðferðir og viðhorf til efnis og tækni. Félagið Form Island undirbýr nú stóra yfirlitssýningu um ís- lenska hönnun sem halda á að Kjarvalsstöðum seinnihluta árs 2000. Sýningin gengur undir vinnuheitinu „Islensk hönnun í aldarspegli". I október sl. gengust húsgagnaframleiðendur fyrir Þess ber að geta að árið 1998 skipaði forsætisráðuneytið nefnd er gera skyldi úttekt á verkefninu „Handverk og hönnun" sem ráðu- neytið hafði stutt í nokkur ár. Sýningin Form ísland II í Röhsska safninu í Gautaborg 1992. hönnunardegi þar sem veittar voru viðurkenningar fyrir fram- sækna húsgagnahönnun. Hönn- unardagar voru hér fyrst haldnir fyrir frumkvæði Form ísland, í samvinnu við húsgagnaframleið- endur, sá fyrsti 1987. Félagið Form Island sem stofn- að var 1985, fyrst og fremst til að kynna íslenska hönnun og mikil- vægi hönnunarsviðsins, hefur frá stofnun gengist fyrir margskonar kynningu á íslenskri hönnun og átt samstarf við hliðstæð félög og stofnanir erlendis. Félaginu, sem vinnur merkilegt og í raun bráð- nauðsynlegt kynningarstarf, hefur enn ekki tekist að afla sér viðun- andi tekjustofna. Ef tekið er mið af hliðstæðri starfsemi erlendis gerist það vart án skilnings og einhvers stuðnings opinberra aðila. Það væri illa farið ef því starfi sem þegar hefur verið unnið og telja má mikilvægan grundvöll til að byggja á yrði kastað fyrir róða vegna andvaraleysis. Nefndinni var einnig ætlað að gera tillögur um hvernig haga mætti stuðningi stjórnvalda við handverksgreinar í framtíðinni. Nefnd þessi skilaði tillögum til forsætisráðherra í desember 1998 og lagði eindregið til að stuðningi við viðfangsefnið yrði fram haldið. A fjárlögum þessa árs er 6,5 milljónum króna veitt til „Hand- verks, hönnunarmiðstöðvar heim- ilis- og listiðnaðar." Þetta verður að teljast marktækur stuðningur við verðugt viðfangsefni. Hér er þó að- Hönnun: Guðný Hafsteinsdóttir, postulínsvasar og skreyttir munir úr gleri. 16 Hugur og hönd 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.