Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2000, Síða 22

Hugur og hönd - 01.06.2000, Síða 22
Hárvinna Mér hefur tekist að rekja hár- vinnu, unna af íslenskum konum, allt til ársins 1855. Þá var kona, sem hét Guðrún Hjálmarsdóttir Halberg, ættuð frá Fremri-Bakka í Langadal, Norður-ísafjarðarsýslu, búsett í Danmörku. Guðrún var gift dönskum sjómanni, Niels Frederik Halberg. Það er til mynd eftir Guðrúnu síðan 1855, mjög falleg með fjöl- breyttu mynstri. Mig langar að skjóta hér inn því sem sagt var um Guðrúnu af öðru tilefni. Sagt var að það sem Jón Sigurðsson var fyrir íslenska stúdenta í Höfn, það hafi Guðrún verið fyrir hand- verksfólkið íslenska sem kom í at- vinnuleit og fyrir þá sem sjúkir komu að heiman frá Islandi að leita sér heisubótar í Höfn. Um 1890 fór ung systurdóttir Guðrúnar til Hafnar. Hún hét Kar- itas Hafliðadóttir og var frá sama bæ og Guðrún. Karitas var fædd 24. mars 1864, dáin 1945. Hjá þess- ari móðursystur sinni lærði hún fjölbreytta handavinnu og þar á meðal hárvinnu. Það eru til marg- ar myndir eftir Karitas. Hún kom aftur til íslands 1897, gerðist þá barnakennari á Isafirði og kenndi flestum Isfirðingum að lesa um það bil um hálfrar aldar skeið. Þá kenndi hún mörgum konum að vinna úr hári og voru margar kon- ur sem unnu myndir fram yfir 1940, en þá held ég að hafi eitt- hvað farið að draga úr því. Móðir mín, Ragnheiður Hákon- ardóttir, Reykjarfirði við Djúp, fædd 16. ágúst 1901, dáin 1977, lærði hjá Karitas og vann nokkrar myndir fyrir vini sína. Arið 1934, þegar ég var níu ára að aldri, var hún að vinna mynd fyrir systur sína sem bjó í Noregi. Ég var þá veik þann vetur og leiddist mér að liggja í rúminu. Ég fékk því að setjast fram á stól hjá mömmu og lærði þá aðferðina við að vinna úr hári. Mamma gat meira að segja notað í sína mynd rósir sem ég hafði gert og er ég enn hreykin af Sigríður Salvarsdóttir. því. Svo árið 1980 fór ég að rifja upp aðferðina og byrjaði á mynd úr silkigarni, en eftir 1990 fór ég að búa til myndir, eyrnalokka og næl- ur. Ég varð þá vör við að þessi handavinna var mikið til hætt, þó getur verið að einhverjar konur hafi unnið hana heima hjá sér. Mér datt þá í hug að gaman væri að koma svona handavinnu yfir á næstu öld og hef því leiðbeint nokkrum konum um aðferðina. Mér þykir mjög vænt um það að sumar halda áfram og vona ég að mér hafi því tekist ætlunarverkið að koma þessu yfir á tuttugustu og fyrstu öldina. 22 Hugur og hönd 2000

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.