Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2000, Page 23

Hugur og hönd - 01.06.2000, Page 23
Verkfærin sem þarf við hárvinnu eru þessi: • Nokkrir bandprjónar, misjafnlega grófir. • Fínn rafmagnsvír, í hverja rós er notaður einn þáttur. • Góð töng. Fyrst eru tekin nokkur hár og þau strokin upp úr vatni. Því næst er vírinn lagður saman þannig að báðir endar verði jafnlangir, en þó heilir í miðju. Vírnum er síðan brugðið yfir prjóninn og brugðið saman að neðan (þetta er í eina skiptið sem vírinn fer yfir prjón- inn). Þá er hárið lagt yfir prjóninn og vírnum brugðið fyrir neðan. Síðan endurtekið, hárið yfir prjón- inn og vírnum brugðið fyrir neð- an, þangað til sú lengd er fengin sem ætlað er. Þá er lokað vel fyrir með vírnum og prjónninn dreginn úr með töng. Ur lengjunni er hægt að móta ýmis blóm, blöð og strá. Það er hægt að gera ýmsar útfærsl- ur eftir því hvort notaður er einn, tveir eða þrír prjónar. Það er hverj- um og einum í sjálfsvald sett Úrfesti gerð 1906. hvernig rósir, blöð og strá eru gerð, því þar eru óteljandi mögu- leikar. Það eina sem þarf að gera alltaf eins er að bregða vírnum rétt. Ég set hér með nokkur sýnis- horn. Það hefur verið skrifuð doktors- ritgerð um þessa handavinnu. Sú kona hét Karen Andersen, var dönsk og bjó í Friðrikshöfn. Hún skrifaði ritgerðina við Uppsalahá- skóla. Karen safnaði handavinnu fyrir Bangsbosafnið, sem er hér- aðssafn í Danmörku. Söfnunin var gerð fyrir Danska kvenfélagasam- bandið. Eftir því sem Karen segir, er þessi vinna rakin til Svíþjóðar. Það voru ungar, fátækar stúlkur þaðan sem ferðuðust um Norður- löndin og buðu fram vinnu sína og voru kallaðar „Hárlokkarnir". Þær unnu bæði myndir, hálsfestar, úr- festar og margt annað. Hér með er mynd af úrfesti sem var gerð 1906. Ffún er nú í eigu Salvars, sonar míns, en faðir minn átti hana áður. Sigríður Salvarsdóttir Hugur og hönd 2000 23

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.