Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2000, Síða 24

Hugur og hönd - 01.06.2000, Síða 24
Veggteppi Þórhildar Tómasdóttur Þetta forlátateppi eignaðist ég að föður mínum látnum árið 1992. Teppið mun að sögn vera allt að 300 ára gamalt, það er úr búi Þór- hildar langalangömmu minnar. Þórhildur Tómasdóttir langa- langamma mín fæddist á Breiða- bólstað í Fljótshlíð 28. september 1835. Foreldrar hennar voru séra Tómas Sæmundsson, sem nú er kunnastur sem einn af Fjölnis- mönnum, og kona hans Sigríður Þórðardóttir. Hún var dóttir hjón- anna Þórðar sýslumanns Björns- sonar í Garði í Aðaldal. Kona Þórðar hét Bóthildur Guðbrands- dóttir. Talið er að teppið góða sé ættað frá Þórði í Garði eða öllu fremur frá Bóthildi konu hans, sem var fædd í kringum 1780. Hver saumaði teppið og hvenær það var saumað er ekki vitað með vissu. Þórhildur missti föður sinn ung að árum. Móðir hennar giftist síðar Olafi M. Stephensen í Viðey. Þar ólst Þórhildur upp hjá móður sinni og stjúpföður. Teppið hefur því fylgt henni úr Fljótshlíðinni til Við- eyjar og síðar út á Alftanes en hún giftist árið 1855 sr. Helga Hálfdán- arsyni presti í Görðum á Álftanesi, síðar kennara og forstöðumanni við Prestaskólann í Reykjavík. Ævi Þórhildar lauk í byrjun árs 1923 en þá var hún flutt til dóttur sinnar Álfheiðar, langömmu minnar, sem var ekkja eftir Pál Briem, og bjó í Tjarnargötu 24 í Reykjavík. Mér hefur verið sagt að líklega hafi verið til þrjú svipuð teppi og teppið mitt, í eigu Þórhildar, en hún hafi gefið hin einhverju fá- tæku fólki til að hlýja sér á kroppnum, eins og faðir minn kemst að orði í grein um Þórhildi Tómasdóttur sem birtist í Hús- freyjunni, 3. tölublaði 1986. Til gamans vil ég geta þess að móðir mín, Eva Úlfarsdóttir, hefur unnið það þrekvirki að sauma út nákvæmlega eins teppi og teppið mitt. Hún teiknaði mynstrið eftir röngunni á því gamla og fylgdi litavali þess til hins ítrasta. Einnig saumaði amma mín, og nafna, teppi með samskonar mynstri en í öðrum litum. Ég tel þetta forna teppi mitt vera hinn mesta dýrgrip enda bindur það ættarbönd sem ég met mikils. Þórhildur Undal 24 Hugur og hönd 2000

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.