Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2000, Síða 32

Hugur og hönd - 01.06.2000, Síða 32
Sjónabók frá 18. öld í desembermánuði 1997 var Þjóð- minjasafni íslands færð afar merk gjöf, er safninu var afhent til varð- veislu sjónabók, gamalt handrit með margs konar útsaumsmunstr- um og stafagerðum. Það er bók með uppteiknuðum reitamunstr- um til að fara eftir, til útsaums, flosvefnaðar, spjaldvefnaðar, eða annarra hannyrða, en slíkar bækur voru oft kallaðar sjónabækur.1 Það var Jóhanna Guðrún Krist- jánsdóttir frá Flateyri, sem færði safninu þessa merku gjöf. Móður- systir hennar, Margrét Jóhanns- dóttir Tulinius (1904-1971), hafði gefið henni uppdráttabókina nokkru áður en hún lést. Jóhanna telur að Margrét hafi fengið bókina í skírnargjöf, en hún var skírð á Hólmum í Reyðarfirði líklega sumarið 1904 og að séra Daníel Halldórsson (1820-1908) hafi gefið litlu stúlkunni bókina, sem dóttir hans Margrét Daníels- dóttir (1853-1900)2 hafði átt, þar sem hún var látin bera nafnið hennar, Margrét. Hvort þessi sögn hefur fylgt bókinni og er réttari en hin að hún hafi fengið bókina í af- mælisgjöf, en á titilsíðu bókarinnar er áritað fallegri hendi: "Margrjet Jóhannsdóttir, á afmælisdag hennar 28. marz 1906, frá Daníeli Halldórssyni, fæddum 12. ágúst 1820." Margrét Daníelsdóttir var fyrri kona afa Jóhönnu, séra Jóhanns L. Sveinbjarnarsonar, prófasts á Hólmum. Þau hjón voru barnlaus, en áttu fósturdóttur, Jakobínu Grímsdóttur. Seinni kona Jóhanns var Guðrún Torfadóttir (1872- 1956)3 frá Flateyri sem var amma Jóhönnu. Þau gengu í hjónaband 1903 og eignuðust fjögur börn og var Margrét elst þeirra. Jóhanna veit ekki hvernig sjónabókin komst í eigu fjölskyld- unnar á Hólmum, séra Daníels og frú Jakobínu Sofíu Magnúsdóttur Thorarensen (1830-1914).4 En Jó- hann réðst sem aðstoðarprestur til séra Daníels að Hrafnagili í Eyja- firði 10. okt. 1878 og fluttist með honum að Hólmum í Reyðarfirði 1880 og bjó þar til æviloka.5 Það má með sanni segja, að hér hafi komið fram fágætur gripur, eitt sjónabókarhandrit til viðbótar við þau níu sem áður var vitað um. Af þeim eru sjö í Þjóðminja- safni Islands, eitt í Þjóðminjasafni 32 Hugur og hönd 2000

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.