Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2000, Blaðsíða 33

Hugur og hönd - 01.06.2000, Blaðsíða 33
Dana í Kaupmannahöfn og eitt í einkaeign hér á landi.6 Flest eru þessi handrit frá 17. og 18. öld7 og er þetta handrit líklega frá þeirri 18. Þegar gjöfin var færð inn í skrá Þjóðminjasafnsins var þess getið að í bókinni væru útsaumsmunst- ur, sem eru þekkt fyrir og jafn- framt önnur sem ekki hafa sést áður. Ein af þessum sjónabókum var gefin út árið 1994 „Handíðir horfinnar aldar", bók Jóns Einars- sonar (f. um 1731, d. fyrir 1799), bónda í Skaftafelli.8 Sú bók hefur þá sérstöðu, að flest munstur eru listilega útfærð í lit og handritið er afar fallega teiknað af mikilli ná- kvæmni og alúð. I handritinu frá Flateyri eru allir uppdrættir teiknaðir með mó- brúnu (svarbrúnu) bleki, munstur fyllt upp í rúður, strikaðar sama lit. Það má greinilega sjá að hvorki er allt handritið teiknað af sama teiknara, né öll munsturblöð frá sama tíma. Nokkrar síður bera af hvað handbragð snertir, á þeim eru bæði munstur og reitir dregin upp af nákvæmni og smekkvísi. Þessi hluti bókarinnar virðist vera sá elsti. A eina af þessum síðum er teiknað munstur er myndar tigul, í hvert horn tigulsins einföld átta- blaðarós og efst fyrir miðju tveir fuglar með tré á milli sín. I miðju munstursins er táknið I H S og stafirnir (fangamark) E G S, en sitt hvorum megin við ofanverðan tigulinn, AN NO en að neðan ár- talið 17 78, sem er elsta ártalið í bókinni. Þetta sama munstur er teiknað öðru sinni og þá með ártal- inu 1816, örlítið frábrugðnu hinu fyrra, en ekki teiknað af sömu ná- kvæmni eða öryggi. Aftan á eina af þessum fallegu síðum er ritað all- nokkurt mál, er þáverandi eigandi bókarinnar „Inge Biörg,, rekur ætt- artölu sína til Jóns biskups Arason- ar á Hólum og endar á þessa leið: „byskup Jon ara son, séra biörn proflastur] hans son biarne hans Dottur herdys Þorun Dotter herdysar og séra Þorleifs Aldís dotltir] Þorunar og Brinjolfs Guðmundur sonur aldi [sar] hans son Ejrikur hans Dotter Inge Biörg sem bokina a" í heild er handritið heillegt, að mestu saumað saman, en þó eru einstaka laus blöð, þar með ysta örkin, sem er brotin í tvennt og lögð um handritið. Það er á þessa örk sem séra Daníel Halldórsson áritar bókina til Margrétar. Aftan á þessa sömu örk er skrifað alló- formlega, niðri við kjöl, „Margret Egelsdóttir, Margrét, Margriet Eyells Dottir". Fremsta blaðið í handrit- inu er talsvert lúið, gatslitið þvert yfir síðuna ofanverða. Blaðsíður eru ótölusettar og munstur oftast teiknað á hægri síðu og vinstri síða auð, en er þó ekki regla. Utan um handritið er laus bókarkápa úr dökkbrúnu pergamenti að stærð 21 x 34 cm og er faldur brotinn inn af hverri hlið frá l/i upp í 2 l/i cm. Stærð handritsins er um 17x 21 cm. Ef bornar eru saman þessar tvær sjónabækur, má vissulega sjá nokkurn skyldleika með einstaka munstrum og stafagerðum. Strax á fyrstu opnu bókarinnar og þeirri næstu eru leturgerðir er svipar mjög til leturs sem er á síðu 9 r fyr- ir neðan munsturbekk í sjónabók- inni frá Skaftafelli.9 En svipað þessu letri og ýmsa munsturbekki með dýra- og fuglamyndum má sjá á spjaldofnum böndum. Bæði munstur og letur láta lítið yfir sér í bókinni, en komin í spjaldofin bönd, unnin af snilli og listfengi, oft með fullu nafni og ártali eig- anda ásamt fugla- og dýramynd- um og eru gersemar. „Konur spjaldófu mikið af axlaböndum, styttuböndum, sokkaböndum o.fl., og var oft letur og stafir í spjald- Hugur og hönd 2000 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.