Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2000, Blaðsíða 35

Hugur og hönd - 01.06.2000, Blaðsíða 35
Legsteinasmíðar Legsteinn Jónasar Jónssonar prests í Reykholti, f. 1773, d. 1861, í kirkjugarðinum þar. Höggvinn af Gísla Jakobssyni á Augastöðum, d. 1885. Ljósmynd: Gísli Gestsson, 1963. Það er oft haft á orði, að Islendingar hafi fyrrum ekki verið þess megnugir að fást við steinsmíðar, ekki ráðið við þetta víðnotaða byggingar- og smíðaefni sem hvar- vetna, og víðast um ná- læg lönd, var notað til bygginga og listaverka. Nefna menn þá einkum steinbyggingarnar, sem standa víðast um lönd allt frá miðöldum, kirkj- ur, klaustur og hallir, en hér voru steinhús ekki reist fyrr en á 18. öld, þá af erlendu stjórnvaldi og gerð af erlendum stein- smiðum. Skýringar eru ýmsar, svo sem að hér hafi ekki verið hentugt grjót til steinbygginga. Það fær þó vart staðizt, því að er menn fóru að reisa hér hús af höggn- um steini fannst víða vel höggvandi grjót, svo sem sjá má af steinhúsum 18. og 19. aldar er mörg standa enn. Þeirri spurningu verð- ur ekki reynt að svara frekar hér, hvers vegna menn reistu ekki stein- hús á Islandi á miðöld- um, er þó vitað að það stóð til í tvö skipti, en ör- lög forgöngumannanna bundu enda á þá ætlan. En hins vegar mun hvers konar hagleikur ekki hafa verið minni meðal Islendinga en annarra, það sést hvarvetna af varðveittum gripum frá öllum öldum, smíðisgripum, útskurði og hannyrðum, og reyndar er stein- smíði þar ekki undan skilin. Frá ýmsum öldum er til steinsmíði sem sýnir að menn lögðu í að glíma við þetta harða og torunna smíðaefni; hér á ég einkum við legsteina, sem allmargir hafa varð- veitzt frá fyrri tímum og allt frá miðöldum, og telja má íslenzka. Steinmyndin frá Síðumúla, höggvin konumynd, sem styður hönd undir kinn og með vel lög- uðum klæðafellingum, sennileg- ast María, er án efa íslenzk mið- aldasmíð, þótt hún verði ekki nánar tímasett. Legsteinn frá Görðum á Akranesi, sem svipar mjög til fyrrgreindrar myndar, þó mun meira unnin en ekki varðveitt nema að hluta, er einnig án efa íslenzkur. Frá síðari hluta miðalda eru varðveittir nokkrir rúnasteinar úr kirkju- görðum, steinarnir sjálfir að vísu lítt eða ekki unnir heldur stuðlaberg úr náttúrunni, en letur höggvið í einn eða fleiri fleti steinsins. Margir þeir eru vestanlands, svonefndir Baulusteinar, líparítstuðlar úr fjallinu Baulu. Enn má víða sjá hér í kirkjugörðum gamla leg- steina íslenzka, oft þó afar misjafna að gerð og yfirbragði. Sumir eru lítt unnir undir letur, oft var aðeins valin sæmilega slétt steinhella og látið nægja að höggva í hana letur, nafn hins látna og ártöl, stundum er þó steinninn sléttaður og letrið höggvið í flötinn, oft sést skrautrönd um- hverfis eða myndir í hornum, gerð í líkingu merkja guðspjallamann- anna og hafa að fyrir- mynd hinar stóru er- lendu steinhellur, sem fluttar voru hingað til lands á grafir fyrirfólks, mest á 17. og 18. öld. Fæstir íslenzku steinsmiðanna eru þekkt- ir. Björn Th. Björnsson hefur leitt að því líkur að legstein- arnir í Garðakirkjugarði á Álfta- nesi, frá 17. öld, sem eiga sér fleiri líka í öðrum görðum hér í grennd, séu eftir séra Þorkel Arngrímsson í Görðum, föður Jóns biskups Vídalíns. Hann fór utan og nam þar auk guðfræði, náttúrufræði, lækningar og námurannsóknir, og þá er stutt til steinsmíði. Þessir steinar eru næsta einstæðir, stærð Hugur og hönd 2000 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.