Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2000, Side 47

Hugur og hönd - 01.06.2000, Side 47
Bergþór í Bláfelli lifnar úr íslensku tré í nóvember 1998 óskaði Skógrækt ríkisins eftir fundi með uppsveit- um Arnessýslu í tilefni af 60 ára afmæli Haukadalsskógar og að 100 ár eru liðin frá því skipuleg skógrækt hófst á íslandi, þ.e. á Þingvöllum 1899. Skógræktin hafði á árlegum skógardögum í Haukadalsskógi í samvinnu við trérennismiði unn- ið úr ferskum viði beint úr skóg- inum ýmsa muni sem vöktu undrun og ánægju gesta. Auk þess fellur til í vaxandi mæli grisj- unarefni sem nýta þarf sem best. Því vaknaði sú spurning hvort ekki væri hægt að gera minjagrip sem unninn væri úr íslenskum viði, úr sunnlenskum skógum. Myndað var formlegt samstarf og kosin verkefnisstjórn sem í áttu sæti fulltrúar frá uppsveitum Árnessýslu, Suðurlandsskógum, Atvinnuþróunarsjóði Suðurlands og Skógrækt ríkisins sem ákvað síðan að efna til samkeppni um gerð minjagrips sem unninn skyldi úr íslenskum viði og hefði skírskotun til náttúru, sögu, menningar og auðvelt og hag- kvæmt væri að fjöldaframleiða. Til viðbótar þessu er þess vænst að framleiðslan verði atvinnu- skapandi fyrir íbúa svæðisins og að vinnan geti farið fram á fleiri en einum stað og smíði hans geri ekki kröfur um flókinn og fyrir- ferðarmikinn tækjabúnað. Verkefnisstjórn hélt nokkra fundi þar sem fyrirkomulag og reglur samkeppninnar voru mót- aðar og hugmyndasamkeppnin síðan auglýst seinni hluta ársins 1999. Haldin voru námskeiðin „að lesa í skóginn og tálga tré" í samvinnu við Garðyrkjuskólann þar sem þátttakendum var m.a. kennt að vinna með ferskt ís- lenskt efni með gömlum hand- verksaðferðum einkum frá Sví- þjóð og Danmörku. Tvö nám- skeið voru haldin á Suðurlandi, eitt í Haukadalsskógi og annað á Tumastöðum. Námskeiðin voru vel sótt og mikill áhugi á vinnu í ferskt tré. Á annan tug hugmynda bárust og komu nokkrar þeirra til greina við val á bestu hugmyndinni. I dómnefnd áttu eftirtaldir sæti: Bjarni Þór Kristjánsson smíðakennari og einn af verslun- areigendum Hnoss á Skólavörðu- stíg. Hann kennir eldsmíði, út- skurð og tálgun. Karl Helgi Gíslason, húsasmið- ur og rennismiður, á sæti í stjórn trérennismiða og rekur verslunina Trélist í Listhúsinu í Laugardal. Hugur og hönd 2000 47

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.