Hugur og hönd - 01.06.2000, Page 49
MWji m
B,p" fgi
5SSS .
#* JSB
& # i . * 1
Árþúsundamót 2000
landafundir og kristnitaka
Elsa E. Guðjónsson minnist ár-
þúsundamótanna með sínum hætti.
Hún hefur á undanförnum árum
fengist við að teikna smámyndir og
sauma með íslensku ullarbandi og
gamla íslenska krosssaumnum.
Leifur heppni Eiríksson, Þorgeir
Ljósvetningagoði, Guðríður Þor-
bjarnardóttir og Snorri sonur henn-
ar auk Gissurar Isleifssonar eru þær
persónur sem Elsa velur sem tákn-
gervinga þessa tímamótaárs. Hver
mynd um sig er 7,5 x 7,5 cm. Árið
1998 saumaði Elsa myndirnar stakar
og lét prenta eftir þeim heilla-
óskakort. Hver persóna fær sín
sérkenni í fáum nálsporum, og þar
sem Elsa er hagyrðingur góður,
hefur hún ort vísur sem prentaðar
eru innan í kortin. Nýverið bætti
hún við enskri útgáfu vísnanna sem
fylgja kortunum á lausu blaði.
Nú á hátíðarárinu hefur Elsa sett
allar myndirnar saman og tengt með
munstrum og áletrunum. Munstrið
má nota sem veggmynd eða sessu-
borð. Það er saumað í stramma með
kambgarni frá Istex. Pakkar með
munstri og efni fást í hannyrða-
versluninni Mólý í Hamraborg í
Kópavogi.
Gréta E. Pálsdóttir
Hugur og hönd 2000 49