Hugur og hönd - 01.06.2000, Síða 50
Aldargamall brúðarkjóll
Brúðarkjóll Guðrúnar Halldórsdóttur. Innfellda myndin er af Jónu Sæmunds-
dóttur á fermingardaginn 1949.
„Ef ég eignast dætur pá ætla ég að láta
Árið 1998 barst Byggðasafni Norður-
Þingeyjarsýslu, sem staðsett er 1 km
sunnan þorpsins Kópaskers, nær 100
ára brúðarkjóll, með öllu óskemmd-
ur. Gefendur voru þrjú eftirlifandi
börn brúðarinnar, sem var Guðrún
Halldórsdóttir frá Syðri-Brekkum á
Langanesi.
Guðrún var mikil skörungskona,
orðlögð fyrir dugnað og hagsýni, á-
samt bónda sínum, en hann andaðist
fyrir aldur fram árið 1936. Þau hjón
eignuðust 10 börn, sem öll komust
vel til manns. Árið 1907-08 dreif
Guðrún sig frá ungum börnum til
Reykjavíkur til að læra ljósmóður-
fræði og lauk því námi, var síðan
áratugum saman ljósmóðir í sínu
heimahéraði, meðfram búskapnum
og þrátt fyrir vaxandi barnahóp.
Hún var einkar farsæl og vinsæl í
starfi. Að undanskildum tveim fyrstu
búskaparárunum bjó Guðrún allan
sinn búskap að Efri-Hólum í Núpa-
sveit, til 1945, í þáverandi Presthóla-
hreppi, sem nú hefur verið sameinað-
ur Öxarfjarðarhreppi. Hún lést árið
1949 í Sandhólum á Kópaskeri.
En víkjum nú að kjólnum. Efnið í
honum er hvítt, afar fínlega munstr-
að, sem sjá má á myndum með
munstruðum ásaumuðum borðum,
alsettum perlum og pallíettum að
framan, í ermum og í hálsmáli. Belt-
ið er baldýrað með gulllitum þræði af
ungu stúlkunni sjálfri, því fylgdi
upphaflega stokkabelti, sem nú hefur
orðið viðskila við búninginn. Kring-
um hálsmál er breiður blúndukragi.
Saga kjólsins, orðrétt eftir gefendum:
Guðrún Halldórsdóttir var frá Syðri-
Brekkum á Langanesi, fædd þar árið
1882. Efnið í kjólinn, blúndur og legg-
ingar keypti hún af Sölu-Siggu (eða
Poka-Siggu) aðeins 17 ára gömul og
saumaði hann sjálf. Þess má geta að hún
keypti um leið efni í giftingarföt handa
mannsefni sínu, Friðrik Sæmundssyni,
og saumaði pau líka.
Guðrún og Friðrik giftu sig 13. júní
1901.
Þegar Guðrún var að sauma kjólinn
var sagt við hana að petta væri mikilfyr-
irhöfn fyrir einn dag. Þá svaraði hún:
ferma íkjólnum". Allar dætur hennar -
6 talsins - fermdust (kjólnum og miklu
fleiri. Talið er að um pað bil 25 stúlkur
hafi fermst eða gift sig (brúðarkjól Guð-
rúnar í Efri-Hólum.
Kristveig Björnsdóttir
50 Hugur og hönd 2000