Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2000, Side 51

Hugur og hönd - 01.06.2000, Side 51
Farandsölukonan Poka-Sigga í þessu tölublaði af Hug og hönd er grein um norður-þingeyskan brúð- arkjól. Þar er getið konu sem útveg- aði efni í kjól þennan; verður hér í nokkrum orðum sagt frá henni og sérstæðu lífshlaupi hennar. Benjamín Sigvaldason fræðimað- ur og rithöfundur skrifaði tvær greinar um Poka-Siggu og birti í rit- um sínum. Hét önnur þeirra „ Þátt- ur af Poka-Siggu", hin „Dóttir landshöfðingjans". Þessi frásögn er að mestu leyti byggð á nefndum greinum. Sigríður Jónsdóttir hét hún og var fædd árið 1848 að Skógum í Öx- arfirði. Foreldrar hennar voru hjón- in Jón Grímsson og Anna Guð- mundsdóttir, þá nýlega gift er Sig- ríður fæddist. Ólst hún upp með foreldrum sínum og var mjög bráð- þroska, stór og glæsileg. Eftir fermingu átti hún ekki ann- arra kosta völ en að fara í vinnu- mennsku og mun hún hafa dvalið á mörgum bæjum í sýslunni og jafn- vel austur í Múlasýslu. Þótti hún kvenna gervilegust og gáfuð í besta lagi. Sagan segir að hún hafi bund- ist efnilegum manni en hann hafi rofið tryggðir við hana og hún hálfsturlast út af því. Ekkert er með vissu vitað um þetta en talið fullvíst að Sigríður hafi um þrítugsaldur hætt að tolla í vistum og tekið að flakka milli bæja, sveita og héraða. Þeim hætti hélt hún meðan ævin entist, eða í full 35 ár. Strax á fyrstu flakkárum sínum fór hún að höndla með ýmislegt smálegt í umboðssölu eða var beðin að útvega ákveðnar vörur. Þær fékk hún aðallega frá ýmsum verslunum á Akureyri og jafnvel lengra að. Meðal annars sem hún seldi var álnavara og fatnaður, einnig gull- og silfurstáss og aðrir skartgripir. Þess er getið að hún útvegaði oft ungu fólki trúlofunarhringa og seg- ir sagan að þeir hafi þótt reynast vel. I umboðssölu tók hún ýmsan varn- ing, svo sem hornspæni og aðra smíðisgripi, prjónles o.fl. Lengi vel hafði hún vörur sínar í pokum sem hún bar á milli bæja, en á seinni árum eignaðist hún hesta sem léttu því erfiði af henni. Sigríður bjó alltaf vel um vörurnar og gætti þess vandlega að þær yrðu ekki fyrir skemmdum í flutn- ingi og misjöfnum veðrum. Nær allar vörur sem hún seldi fékk hún greiddar í peningum og hafði því oft talsvert fé undir höndum. Pen- ingana geymdi hún í örsmáum alla vega litum léreftspokum. Það gerði hún til að þekkja hvað hver átti, peningum blandaði hún aldrei saman. Hver maður og hver verslun sem átti vörur í umboðs- sölu hjá henni átti sinn sérstaka poka. Sagt var að hún hafi ekki kunnað að skrifa en svo leikin var hún í hugarreikningi að aldrei skeikaði. Minni hennar var dæma- laust, stundum lánaði hún fólki sem hún treysti, en fékk þá alltaf skriflega skuldaviðurkenningu. Fólk borgaði skilvíslega, það þótti ekki lánsvegur að bregðast trausti Sigríðar. Greiðvikni hennar við fá- tæklinga var vel þekkt. I kirkjubókum á Skinnastað var hún 1895 skráð sem sölukona, 1898 „spekúlant", 1903 sem sölukona, 1905 „spekúlant", 1906 sölukona og 1911 „verslar". Sigríður lést árið 1913. Af þessu má sjá að ævi þessarar konu hlýtur að hafa verið mjög sér- stök og jafnframt eftirtektarverð. Það má ætla að Sigríður hafi með störfum sínum á seinni hluta æv- innar sinnt mikilsverðum þjónustu- störfum fyrir samborgara sína. Hún var farandkona og sérkennileg að mörgu leyti. Uppnefnið Poka-Sigga hlaut hún af vörupokum sínum og ef til vill líka af marglitu smápokun- um sem hún notaði sem peninga- geymslur. Annars hefur það víða verið lenska hér að uppnefna fólk sem ekki batt bagga sína sömu hnút- um og samferðamenn. Eftir að Sigríður hóf ferðalög sín hélt hún því fram að hún væri ekki rétt feðruð, réttur faðir hennar væri Bergur Thorberg landshöfðingi. Sú staðhæfing hennar hefur aldrei ver- ið vel rannsökuð og litu flestir á hana sem grillur. Sigríður varð sæmilega efnuð síð- ari ár ævi sinnar, enda var hún bæði hagsýn og reglusöm. Átti hún þá tvo hesta sem hún notaði klyfjaða á ferð- um sínum. Hún kom sér upp tals- verðum fjárstofni, borgaði fóðrun kinda sinna og átti úrvalsfé. Einstak- ur dýravinur var hún. Þegar gluggað er í ævi Sigríðar Jónsdóttur kemur upp í hugann máltækið „Sitt er hvað, gæfa eða gjörvuleikur". Á þeim tíma er hún var að alast upp voru möguleikar fyrir fátæka vinnukonu ekki rnargir. Sigríður varð að sjá um sig sjálf fljót- lega eftir fermingu. Vinnukonur voru réttlitlar og staða þeirra á allan hátt slæm. Vinnudagur þeirra var erfiður og manna lengstur, aðbúnað- ur oft slæmur. Möguleikar til mennt- unar alls engir, sífelld vonbrigði og svik. Var furða þótt eitthvað brysti hjá sumum þeirra? Sigríður reif sig upp úr þessum álögum, varð sjálf- stæður einstaklingur, vann fyrir sér með verslun sinni og sinnti mikils- verðum þjónustustörfum fyrir sam- borgarana. Hvað hefði orðið úr Sigríði Jóns- dóttur ef hún hefði fæðst 100 árum síðar? Hefði hún orðið stórkaup- maður, framkvæmdastjóri stórfyrir- tækis eða bankastjóri? Eitt er víst að hún hafði fjármálavit, hafði reglu í peningamálum, vissi allt um inn- eignir og skuldir viðskiptavina sinna og var áreiðanleg og traust. Eru þetta ekki einmitt þeir kostir sem ættu að prýða þá starfsmenn sem þessi störf annast? Þórir Sigurðsson Hugur og hönd 2000 51

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.