Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2000, Page 55

Hugur og hönd - 01.06.2000, Page 55
Teikningin sýnir hvernig böndunum er krækt saman. Byrjið á munstrinu í þriðja garði. Prjónið 12 lykkjur gráar eins og myndin sýnir. Þegar skipt er um lit er bandinu sem við tekur brugðið yfir það sem áður var prjónað og hönkin látin hanga röngu megin. Gæta verður þess að taka jafnfast í bæði böndin við samskeyti, svo að litaskil verði jöfn og hrein. Prjónið allt miðmunstrið, síðan tvo gráa garða og fellið af. Totan prjónuð Takið upp eina lykkju í hverja steypilykkju á jöðrum miðjunnar. Prjónið munstur totunnar eins og myndin sýnir. Hafið steypilykkju á jöðrum og prjónið tvo fyrstu garð- ana án úrtöku. Takið úr þannig að prjóna saman 4. og 5. lykkju á hverjum prjóni. Þegar átta lykkjur eru eftir, eru tvær miðjulykkjurnar prjónaðar saman á hverjum prjóni og þannig áfram uns tvær síðustu lykkjurnar eru teknar saman. Prjónið hina totuna eins. Ef vill má hekla utan um lepp- ana með aðallit eða einum litnum sem er í rósinni. Nýrri uppskrift Eftti: Þrípætt íslenskt band, t.d. kambgarn eða einband og tviband frá ístex undið saman. Aðallitur hvítur ogfimm munsturlitir, t.d. gulur, rauður, grænn, blár og svartur. Nota má ýmsa bandafganga af sama grófleika og aðallit. Prjónar: tveir yrjónar, 3 mm. Prjónið frekar fast. Miðja: Fitjið upp 27 lykkjur með aðallit, prjónið einn garð, hafið steypi- lykkju á jöðrum. Aður en byrjað er á rósinni þarf að vefja bandið í hana í smáhankir, eina hönk fyrir hvern litarkafla. Vefjið hankirnar þannig að hægt sé að rekja innan úr þeim smám sam- an. Vefjið þétt utan um hverja hönk og stingið endanum undir vafninginn að utan. Byrjið á rósinni í öðrum garði, prjónið 9 lykkjur hvítar eins og myndin sýnir. Þegar skipt er um lit, er bandinu sem við tekur brugðið yfir það sem áður var prjónað og hönkin látin hanga röngu megin. Gætið þess að taka jafnfast í bæði böndin við sam- skeyti svo að litaskil verði jöfn og hrein. Prjónið miðjuna eftir munstri, fellið af og gangið frá endum. Tota: Takið upp eina lykkju í hverja steypilykkju á jöðrum miðjunnar (21 1). Prjónið 2 garða hvíta og haf- ið steypilykkju á jöðrum. Byrjið síðan á munstrinu í 3. garði og úr- töku í byrjun 4. garðs. Takið úr þannig að prjóna saman 3. og 4. lykkju á hverjum prjóni. Dragið 3 síðustu lykkjurnar saman og gang- ið frá endum. Prjónið hina totuna eins. Margrét Jakobsdóttir Hugur og hönd 1996 55

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.