Hugur og hönd - 01.06.2000, Qupperneq 56
Hannyrðir skáldkonunnar
Herdísar Andrésdóttur
Værðarvoð, hekluð úr handspunnu tvinnuðu bandi í ýmsum litbrigðum af mórauðum og gráum sauðarlitum.
Stærð: 96x206 cm. Ljósmynd: Kristín Schmidhauser Jónsdóttir.
Skáldkonurnar Herdísi og Ólínu
Andrésdætur þarf vart að kynna
lesendum, svo þekktur er kveð-
skapur þeirra systra. Fyrstu Ljóð-
mæli þeirra voru gefin út 1924.
Fimmta útgáfa kom síðan út 1982,
útgefandi var séra Jón Thoraren-
sen, prestur í Neskirkju Reykjavík.
Herdís Andrésdóttir (1858 - 1939)
var amma hans.
Þær voru tvíburasystur, fæddar
í Flatey á Breiðafirði 13. júní 1858.
Foreldrar þeirra voru talin mjög til
fyrirmyndar um allan manndóm
og dugnað.1
Auk ljóðmæla liggja eftir þær
systur ótal fallegir munir sem þær
hafa unnið og bera vitni um hag-
leik og listfengi. Af því má ráða að
á bernskuheimili þeirra hafi ullar-
vinnan verið sótt af kappi, rokkar
þeyttir og vefstóllinn sleginn. í bók
Halldóru Bjarnadóttur „Vefnaður"
segir Ólína að í hennar ungdæmi
væru ofnir langröndóttir svuntu-
dúkar, stundum með grænum
röndum. Allt heimalitað. Einnig
hafi verið mikið kniplað. Á heimil-
inu voru tvö knipliskrín og var
„Kniplað breitt á samfellu, úr
dregnu togi, jurtalituðu."2
Mikilvægt var að skipuleggja
vetrarstarfið vel. Þar reyndi á hæfi-
leika húsfreyjunnar. Hverju verki til
hverra tóverka varð að ætla vissan
tíma vetrar. Eftir veturnætur var
tekið ofan af ull, tog táið, kembt og
spunninn þráður og átti þessu verki
að vera lokið á jólum eða með þorra.
Þá er spunnið ívaf og prjónaband,
voðir ofnar og bandles prjónað og
nær sú vinna til sumarmála.
Hannyrðatími húsmóðurinnar
var frá miðjum vetri, frá þorra-
komu og allt fram að hvítasunnu,
„þá er sólfar meira en fyrr og bjart-
ara loft til vandaverka. Þá er og
svo hentugur menntunartími
ungra meyja til sauma, útsauma,
útprjóns og fleira þess háttar."3
Um 1930 vinnur Herdís afar fal-
lega værðarvoð. Efnið er hand-
spunninn tvinnaður þráður í ýms-
um litbrigðum af mórauðum og
gráum sauðalitum. Teppið er hekl-
að og sett saman úr ferningum,
sem eru misstórir, frá 6 og upp í 9
umf. í ferningi. Þetta munstur er
vel þekkt. Utan um teppið er
prjónaður kantur með garðaprjóni
og myndar prjónið odda, þar utan
um eru hekluð lauf. Værðarvoðin
er fóðruð rauðri ullareinskeftu.
56 Hugur og hönd 2000