Fréttablaðið - 28.03.2020, Qupperneq 2
88 ný tilfelli greindust í
gær og heildarfjöldinn því
890.
Veður
Gengur í suðvestan 8-15 m/s í
dag og þykknar upp með dálítilli
slyddu og síðan rigningu eða súld
vestan til á landinu. Hlýnar í veðri.
SJÁ SÍÐU 32
Á reiðhjólum í rökkrinu
M E N N I N G L e i k a r a r
Borgarleikhússins munu spila
spu na spi l ið f r æga Drek a &
dý f lissu r og st rey ma þv í á
netinu næstkomandi laugardag.
Vegna samkomubanns er ekki
hægt að setja upp sýningar með
hefðbundnum hætti og hefur
því verið gripið til þess að „færa
leikhúsið til fólksins“, eins og
B r y n h i l d u r G u ð j ó n s d ó t t i r
leikhússtjóri komst að orði.
„Ég spilaði spunaspil mikið
sem barn og unglingur og þetta
umturnaði lífinu á sínum tíma,“
segir Björn Stefánsson sem mun
stýra leiknum, sem svokallaður
dýf lissumeistari (DM). „Fyrir um
þremur árum hóaði ég saman ýmsu
ólíklegu fólki í spilahóp, leikurum,
listamönnum og öðrum og hef
haldið því áfram síðan.“
D&D kom fyrst út árið 1974 og olli
miklum straumhvörfum. Á níunda
áratugnum bættust spil á borð við
Call of Cthulhu og Cyberpunk 2020
við í flóruna og unglingar víðs vegar
um heim gátu gleymt sér dögum
saman á háaloftum eða í kjöllurum
með blað, blýant, teningasett og
ímyndunaraflið að vopni.
Björn er nú að setja saman sögu-
sviðið fyrir hetjurnar, en þær eru
Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Hjörtur
Jóhann Jónsson, Halldóra Geir-
harðsdóttir og Bergur Þór Ingólfs-
son. Verður þetta frumraun þeirra
tveggja síðastnefndu. „Ég sé fyrir
mér að þetta liggi vel fyrir leikar-
anum, að detta í spunann, leyfa sér
að gera mistök, vera svolítið kjána-
legur og hafa gaman,“ segir Björn og
jafnframt að lykilatriðið í þessu sé
skemmtunin sjálf. „Það er eitthvað
fast í mannskepnunni. Eftir því sem
við eldumst eigum við til, einhverra
hluta vegna, að hætta að gera það
sem okkur finnst skemmtilegt.“
Rétt eins og teiknimyndasögur og
borðspil eru spunaspilin í miklum
uppgangi. Nýjasta útgáfa D&D,
sem kom út árið 2014, hefur selst
betur en fyrri útgáfur og þættirnir
Stranger Things, þar sem spilið
kemur við sögu, spilla ábyggilega
ekki fyrir. Björn segir spuna-
spilara hafa fært sér tæknina í nyt
og leikjum sé nú streymt víða um
heim. „Þetta er kjörið efni fyrir fólk
að fylgjast með á netinu, annað
hvort með fullri athygli eða með
öðru auganu, því þetta getur tekið
þrjá til fjóra tíma. Þarna er fólk að
skapa flæði og skapa sögu saman í
rauntíma. Maður týnir tímanum og
amstur dagsins skiptir engu máli.“
Útfærsla Borgarleikhússins á
streyminu sjálfu er nú í smíðum.
„Við ætlum að leika okkur með
þetta en rennum svolítið blint í
sjóinn. Við höfum leikhúsið og
búningageymsluna okkur til halds
og erum að tína til hluti til að hafa
á sviðinu,“ segir Björn. „Án þess að
fara út í beint larp!“
D&D verður strey mt á vef
Borgarleikhússins klukkan 14 á
laugardag.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Streyma Drekum &
dýflissum til fólksins
Hefðbundnar sýningar Borgarleikhússins liggja niðri vegna samkomubanns
og því verður ýmsu efni streymt í gegnum netið. Þar á meðal spunaspilinu
Drekum & dýflissum, sem á sér langa sögu en hefur sjaldan verið vinsælla.
Þetta umturnaði
lífinu á sínum tíma.
Björn Stefánsson
leikari
Björn tekur að sér hlutverk dýflissumeistara. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
KJARAMÁL Nýundirritaður kjara-
samning ur Blaðamannafélags
Íslands og Samtaka atvinnulífs-
ins var samþykktur í rafrænni
atkvæðagreiðslu sem lauk í gær. 140
félagar af 351 greiddu atkvæði, eða
tæplega 40 prósent. Af þeim sögðu
126 já og 11 nei, eða 90 prósent á
móti tæplega átta. Þrír seðlar voru
auðir.
Kjarasamningurinn gildir til
október árið 2022 fyrir þá blaða-
menn Fréttablaðsins, Morgunblaðs-
ins, Sýnar og Ríkisútvarpsins sem
eru í félaginu. Undir lok síðasta árs
stóðu blaðamenn á þessum miðlum
í verkfallsaðgerðum. Í nóvember var
kjarasamningstilboð SA fellt með
70 prósent atkvæða. – khg
Blaðamenn
samþykkja
kjarasamning
sjávarsalti
með
COVID-19 Í gær greindust 88 ný til-
felli af COVID-19 og er því heildar-
talan komin í 890 manns en 97
hefur batnað. Hefur Íslensk erfða-
greining hafið skimun á ný og sem
fyrr er hlutfall þaðan um eitt pró-
sent af sýnum. Alls hafa verið tekin
13 þúsund sýni sem eru um fjögur
prósent þjóðarinnar. Þá eru um 10
þúsund manns í sóttkví.
Átján manns liggja nú á Land-
spítalanum vegna sjúkdómsins.
Sex manns liggja á gjörgæsludeild
og eru þeir allir í öndunarvélum, en
daginn þar áður voru aðeins þrír í
öndunarvél. – khg
Fjöldi fólks í
öndunarvélum
tvöfaldaðist
SJÁVARÚTVEGUR Stjórn Sam herja
á kvað í gær að Þor steinn Már Bald-
vins son snúi aftur til starfa sem
for stjóri við hlið Björg ólfs Jóhanns-
sonar. Þorsteinn steig til hliðar í
haust á meðan rann sókn norskrar
lögfræðistofu á starf semi dóttur fé-
laga Sam herja í Namibíu stóð yfir,
í tengslum við umfjöllun Kveiks.
Rannsókninni er ekki lokið en í
tilkynningu eru aðstæður vegna
COVID-19 sagðar ástæða endur-
komunnar. – oæg
Þorsteinn aftur
í forstjórastól
Steig til hliðar.FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Ábyrgðarfullar skuggamyndir sýna varkárni í verki og halda sér í hæfilegri fjarlægð hvor frá annarri í kvöldsólinni. COVID-19 faraldurinn hefur
komið illa niður á íþróttum sem fela í sér snertingu eða nálægð milli iðkenda svo tveggja manna hjólin safna því ryki um sinn. MYND/ANTON BRINK
90 prósent kusu með en
tæplega 8 á móti.
2 8 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð