Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.03.2020, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 28.03.2020, Qupperneq 6
COVID-19 Enginn af þeim tuttugu starfsmönnum Heilbrigðisstofn- unar Norðurlands, sem hlúðu að COVID-19 smituðum erlendum ferðamanni sem lést á dögunum, hefur greinst með sjúkdóminn enn sem komið er. Sama gildir um tvo lögreglumenn sem umgengust hinn látna. „Ég vil ekki hrósa happi of snemma en það er að sjálfsögðu mjög jákvætt að engin smit hafi greinst hingað til. Við erum von- góð,“ segir Jón Helgi Björnsson, for- stjóri Heilbrigðisstofnunar Norður- lands. Ástralski ferðamaðurinn, sem var á fertugsaldri, lést þann 17. mars síð- astliðinn. Hann kom alvarlega veikur undir hendur heilbrigðisstarfsfólks fyrir norðan og andaðist þrátt fyrir að allt hafi verið gert til að bjarga lífi hans. Síðar kom í ljós að maðurinn þjáðist af COVID-19 sjúkdóminum og þótt að endanleg dánarorsök liggi ekki enn fyrir, þá eru miklar líkur taldar á því að sjúkdómurinn skæði hafi dregið hann til dauða. Í kjölfarið var öllum sem veittu hinum látna aðhlynningu eða umgengust hann gert að sæta sóttkví. Mikil mildi þykir því að enginn heilbrigðisstarfs- maður hafi enn smitast. Þá var greint frá því í gær að fyrsta COVID-19 smitið á Húsavík hefði greinst. Að sögn Jóns Helga greind- ist smitið hjá einstaklingi sem var þegar í sóttkví. – bþ Enginn starfsmaður smitaður á Húsavík Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heil- brigðisstofnunar Norðurlands. Skipholti 50b • 105 Reykjavík • Sími 569 0900 lifbank@lifbank.is • www.lifbank.is Ársfundur 2020 Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna Til stendur að ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verði haldinn miðvikudaginn 29. apríl næstkomandi kl. 17.15 á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, Þingsal 2-3. Dagskrá: 1. Venjuleg störf ársfundar skv. 6. gr. samþykkta sjóðsins 2. Önnur mál Vakin er athygli á að á fundinum fer fram kosning þriggja stjórnarmanna af sex og skulu tilkynningar um framboð vegna stjórnarkjörs, ásamt upplýsingum um starfsferil, berast skrif- lega til skrifstofu sjóðsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir árs- fund skv. 2. grein samþykkta sjóðsins. Hugsanleg frestun Í ljósi þess ástands sem skapast hefur vegna útbreiðslu COVID-19 og samkomubanns sem sett hefur verið í tengslum við það er hætt við að fundinum kunni að verða frestað. Komi til þess verður það auglýst sérstaklega með upplýsingum um breyttan fundartíma og fundarstað. Eru sjóðfélagar hvattir til að fylgjast með heimasíðu Lífeyrissjóðs bankamanna www.lifbank.is. Þú finnur allt á einum stað í öllum okkar verslunum! Mmm ... bröns! Afgreiðslutímar á www.kronan.is Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is DÓMSMÁL Landsréttur sýknaði í gær íslenska ríkið af kröfum Jóns Höskuldssonar og Eiríks Jónssonar sem báðir voru meðal umsækjenda um dómaraembætti við Landsrétt í aðdraganda þess að rétturinn tók til starfa. Jóni voru dæmdar fjórar millj- ónir í skaðabætur í héraði árið 2018 og réttur Eiríks til skaða- bóta hafði einnig verið viður- kenndur í héraði. Landsréttur sneri dómum þessum við og taldi þá Jón og Eirík ekki getað gengið að því sem vísu að þeir yrðu skip- aðir dómarar við réttinn, þar sem ráðherra hefði verið heimilt á grundvelli bráðabirgðaákvæðis laga að skipa aðra en þá sem hæf- isnefndin taldi hæfasta að fengnu samþykki Alþingis. Einn þriggja setudómara skilaði séráliti og taldi að staðfesta hefði átt niðurstöðu héraðsdóms. – aá Ríkið sýknað í Landsréttarmáli Landsréttur sneri við dómi héraðs- dóms og sýknaði ríkið í málinu. STJÓRNSÝSLA „Við þurftum að loka afgreiðslunni hérna hjá okkur frá og með síðastliðnum fimmtudegi. Afgreiðslan uppfyllti ekki lengur kröfur Landlæknis um varnir gegn smithættu,“ segir Haraldur Bjarna- son, framkvæmdastjóri Auðkennis sem gefur út rafræn skilríki. Hert samkomubann tók gildi á þriðjudaginn og í kjölfarið varð skerðing á þjónustu hjá mörgum af samstarfsaðilum Auðkennis. Afgreiðsla Auðkennis er að sögn Haraldar meira hugsuð til að sinna skráningum hjá aðilum sem þurfa sérstaka aðstoð, meðal annars vegna tæknilegra mála, en ekki sem almenn afgreiðsla. „Á miðvikudaginn myndaðist löng röð hjá okkur en húsnæði félagsins er því miður ekki í stakk búið til þess að mæta afgreiðslu við þessar aðstæður þar sem öryggi viðskiptavina og starfsmanna skiptir höfuðmáli. Síðustu daga og vikur hefur rafræn þjónusta verið aukin og opnuðu opinberir aðilar til dæmis fyrir rafrænar umsóknir fyrir ýmis úrræði.“ Stór hluti þjóðarinnar er með raf- ræn skilríki í dag eða rúmlega 230 þúsund manns og hafa því f lestir getað nýtt þau. Haraldur segir að margir þeir sem eru ekki með skil- ríki virðist hafa séð ábata í að fá sér skilríki nú og hefur það skapað tímabundið aukið álag. „Bankar, sparisjóðir og f jar- skiptafyrirtæki hafa staðið sig frá- bærlega í því að afgreiða skilríki við erfiðar aðstæður og allir eru að gera sitt besta í að mæta breyttum aðstæðum þar sem öryggi allra er haft að leiðarljósi,“ segir Haraldur „Við erum að skoða hvernig er best að standa að afgreiðslu skil- ríkja og er meðal annars í skoðun að Auðkenni setji upp nýja afgreiðslu á miðlægum stað til að styðja við útgáfu skilríkja. Það vonandi skýrist núna á næstu dögum. Ef við dreifum álaginu á alla er þetta vel gerlegt.“ Haraldur segir að því miður hafi ekki allir möguleika á því að mæta á skráningarstöð þar sem þeir geta til dæmis verið í sóttkví eða vegna veikinda. „Það er líka í skoðun hvort og hvernig hægt sé að mæta þannig tilvikum en við viljum brýna fyrir fólki að mæta ekki til að fá sér skil- ríki ef til dæmis heilsa eða sóttkví hamlar, þar sem það ættu alltaf að vera til aðrar leiðir til þess að mæta því sem skilríkin eiga að gera.“ Kerfið sé að virka mjög vel en að sjálfsögðu finnist einstaklingar sem eru ekki komnir með skilríki. „Maður getur líka velt því fyrir sér hvernig staðan væri núna ef við hefðum ekki þetta kerfi,“ segir Haraldur. Þá minnir hann á að mikilvægt sé að fólk hugi að gildistíma raf- rænu skilríkjanna sinna. Gildistími þeirra er fimm ár en hægt er að sjá hvenær skilríki renna út á síðunni mitt.audkenni.is. Hægt er að end- urnýja skilríki sem eru að fara að renna út á netinu en ef það gleymist þarf að fara á afgreiðslustað til að fá ný. sighvatur@frettabladid.is Skoða hvernig afgreiða megi rafræn skilríki Frá því að hert samkomubann tók gildi hefur orðið erfiðara fyrir fólk að fá rafræn skilríki. Framkvæmdastjóri Auðkennis segir alla afgreiðsluaðila gera sitt besta við erfiðar aðstæður. Margir sjái ábata skilríkjanna þessa dagana. Haraldur Bjarnason, framkvæmdastjóri Auðkennis. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Maður getur líka velt því fyrir sér hvernig staðan væri núna ef við hefðum ekki þetta kerfi. Haraldur Bjarnason, framkvæmdastjóri Auðkennis 2 8 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.