Fréttablaðið - 28.03.2020, Síða 22
Við vitum að við þurf-um að anda að okkur súrefni til að frum-urnar okkar fái orku og við getum haldið ok k u r g a ng a nd i .
Ekki nóg með það, heldur þurfum
við líka að nærast og taka til okkar
næringarefni sem við svo brjótum
niður með hjálp ýmissa ferla þann-
ig að við höfum byggingarefni til
að viðhalda okkur og framleiða í
grunninn orku.
Flest erum við meðvituð um að
halda að okkur vökva og drekka,
ef við gleymum því lætur líkaminn
okkur vita með því að við verðum
þyrst. Ef við svo neytum of mikils
vökva skila nýrun honum hratt til
baka, svo fremi sem þau virki eðli-
lega, og við þurfum að fara reglulega
á klósettið. Það að verða svangur er
einnig merki sem við þekkjum og
tökum eftir þannig að við borðum
og tökum til okkar bensín ef svo
má kalla. Við finnum minna fyrir
þörfinni til að anda og er hún býsna
ósjálfráð, nema ef við verðum móð
og ef öndunin virkar ekki sem
skyldi.
Brennsla hægari með aldrinum
Það eru margir sem tengja vel við
orðið brennslu og að á henni hægi
með aldrinum, en það eru ýmsar
aðrar breytur í menginu sem við
getum lítið breytt eins og genin
okkar. Líkamsástand, þjálfun og
mataræði hafa auðvitað einnig
mikil áhrif. Það er mjög reglulega
verið að selja fólki þær hugmyndir
að auka brennsluna og eru margar
þeirra byggðar á þunnum rökum.
Það er þó vel þekkt og vísindalega
staðfest að það að taka hraustlega á
því og reglulega hjálpar til, vöðva-
þjálfun sem og úthaldsþjálfun
skipta hér máli. Aukin inntaka
á próteinum hefur verið nefnd,
en sérstaklega þó í tengslum við
styrktarþjálfun.
Skipulögð fasta skilar árangri
Það að drekka nægjanlegan vökva
skiptir máli og er líklega vatn besti
kosturinn, margir blanda slíku
saman við orkudrykki, amínósýrur
og koffín sem er meira sölutrix en
annað og hafa líklega meiri auka-
verkanir í því magni sem þarf til að
hafa áhrif. Þar má nefna hækkaðan
blóðþrýsting og hjartsláttaróreglu
fyrst og fremst, sem orkudrykkja-
kynslóðin kannast ágætlega við.
Það að borða reglulega og þá einn-
ig hollari millimál er skynsamlegt,
það heldur líkamanum við efnið
segja sumir. Svo eru til gögn sem
sýna fram á bætt efnaskipti og þá
sérstaklega sykurbúskap og insúlín-
viðnám þegar líkaminn er settur í
föstu. Ekki eru allir sammála þar
en nýlega birtar greinar í nokkr-
um af virtustu tímaritum heims
í læknisfræði styðja töluvert við
það að skipulögð fasta á ákveðnum
tíma sólarhrings skili talsverðum
árangri í að bæta efnaskiptin. Það
á sérstaklega við um þá sem einnig
stunda reglubundna hreyfingu og
hollt mataræði. Þá er góður svefn
lykilatriði
Halda meðaltalinu í lagi
Meginreglan varðandi föstur og
efnaskiptin virðist vera að borða
fyrri hluta dags og alls ekki síðla
dags eða á kvöldin þannig að við
sem höfum gaman af því að bjóða
í mat og drykk verðum að byrja
klukkan 17 og vera hætt upp úr
klukkan 20 á kvöldin svona til
að setja þetta í samhengi. En það
er eins og með allt annað að það
er leyfilegt að svindla aðeins svo
lengi sem meðaltalið er í lagi og
árangurinn er ásættanlegur. Nú, ef
við förum yfir strikið þurfum við
að vinna sukkið upp með aukinni
hreyfingu og einhverju aðhaldi í
mataræði. Þetta er viðkvæm lína
jafnvel fyrir hinn venjulega hrausta
einstakling, sér í lagi þegar aldurinn
færist yfir.
Hreyfing ætti að vera byrjunin
Sjúkdómar sem hafa áhrif á efna-
skipti eru fjölmargir og þarf alltaf
að hafa í huga líkt og hinn þekkt-
asta, sykursýki, brenglun á starf-
semi skjaldkirtils, járnbúskaps
og ýmissa f leiri. Þá geta lyf eins
og þunglyndis- og kvíðalyf, ýmis
hjartalyf, bólgueyðandi og sterar
haft letjandi áhrif á kerfið svo það
er að mörgu að huga. Ef þér þykja
efnaskiptin ekki vera í jafnvægi
ættir þú að byrja á því að hreyfa
þig og skoða þá þætti sem eru aug-
ljósir og svo mögulega leita ráða, til
dæmis hjá lækninum þínum.
Efnaskiptin þín
Líkami okkar er ótrúlegur og mergjað að velta fyrir sér hversu margt gerist á hverjum
degi sem við erum alls ekki meðvituð um, en reynist okkur algerlega lífsnauðsynlegt.
Í heiminum eru 1,13 milljarðar
manna með háþrýsting, Einn
stærsti áhættuþáttur fyrir hjarta
og æðasjúkdómum, heilaáfalli og
nýrnasjúkdómum. Talið er að allt
að 40% einstaklinga yfir 50 ára sé
með háþrýsting á Íslandi.
Blóðþrýstingur
Eðlilegur
Slagbil 120-130 mm Hg
Hlébil <80 mm Hg
Hækkaður
Slagbil 130-139 mm Hg
Hlébil 80-85 mm Hg
Háþrýstingur
Stig 1
Slagbil >140mm Hg
Hlébil 90-100 mm Hg
Stig 2
Slagbil ≥160 mm Hg
Hlébil 100-110 mm Hg
Stig 3
Slagbil >180 mmHg
Hlébil 110 mmHg
Nú í heimsfaraldri kóróna-veirunnar er fólki tíðrætt um hita sem eitt meginein-
kenni þess sjúkdóms. Ljóst er að
þegar líkaminn er undir álagi, berst
við sýkla hvers konar eða glímir
við langvarandi sjúkdóma líkt og
gigtarsjúkdóma eða jafnvel krabba-
mein, getur hiti verið eitt þeirra ein-
kenna sem við finnum fyrir.
Hægt er að fá hita við ýmislegt til
viðbótar sem tengist ekki sýkingum
eða bólgu, til dæmis sem aukaverk-
un af lyfjum, við notkun eiturlyfja,
í fráhvarfi vegna áfengisneyslu,
hitaslagi og f leira. Líkamshiti er
mismunandi milli einstaklinga en
almennt er talað um að 37 gráður sé
eðlilegt, við læknar ræðum í f lest-
um tilvikum um hita þegar hann fer
í 38 gráður eða hærra.
Viðbragð líkamans við einhvers
konar áreiti getur verið skyndilegt
eða langvarandi og er mikilvægt að
greina þar á milli. Þá er ekki endi-
lega samhengi á milli alvarleika
veikinda og hitans sem er mældur,
þó það sé býsna augljóst að eftir því
sem hitinn er hærri því verr líður
yfirleitt einstaklingnum.
Hitinn sjálfur hefur ákveðinn til-
gang og er ekki alltaf nauðsynlegt
að lækka hann þó við eigum ágætar
aðferðir til þess. Sýnt hefur verið
fram á að hvítu blóðkornin sem
verja okkur eru hreyfanlegri við
hærra hitastig, fjölga sér hraðar og
gengur betur að berjast auk þess sem
eiturefni virka verr á líkamann. Hiti
er almennt merki um virkt ónæmis-
kerfi þó undantekningar séu á því.
Meginverkefni læknisins er að átta
sig á ástæðu hitans og bregðast við
henni með tilheyrandi hætti.
Hvað er hiti?
Ekki er endilega samhengi á milli alvarleika veikinda og hitans sem mælist.
Það að h lu st a á tón l ist v irðist hafa sérlega góð á h r i f á h r ey f ig e t u o g
líðan einstaklinga sem þjást af
Parkinsonsjúkdómi. Vísindamenn
í New York komust að því að þeim
gekk betur við athafnir daglegs
lífs eins og að klæða sig og matast.
Þá var jafnvægi þeirra betra,
fallhætta minni og þeir fundu
síður fyrir því að frjósa sem er
algengt einkenni sjúkdómsins og
verulega hamlandi. Ánægjuleg
aukaverkun af því að hlusta á
tónlist sem var einnig tiltekin er að
líðan sjúklinga batnaði og þeir urðu
hamingjusamari. Músíkmeðferð
ætti að vera hluti af því sem þessum
sjúklingahóp er boðið upp á ekki
síður en sjúkraþjálfun og annar
stuðningur.
Ýmsar rannsóknir staðfesta
jákvæð áhrif tónlistar á Alzheimer-
sjúklinga, þekkt er að kvíði og
spenna minnkar og sýnt hefur verið
fram á að tónlistarminni helst lengur
og getur jafnvel fólk með langt
genginn sjúkdóm enn munað texta
við lög og sungið með. Vísindamenn
hafa sýnt fram á að tónlistarmeðferð
geti dregið úr svefntruflunum. Það
eitt að hafa tónlist í bakgrunni í
samtali við sjúkling getur aukið getu
hans til að muna atburði fortíðar.
Það er til mikils að vinna að átta sig
á uppáhaldstónlist einstaklinga með
sjúkdóminn og nýta hana þeim til
heilla, ekki síst ef hún getur dregið
úr lyfjanotkun, sérstaklega róandi
og kvíðastillandi lyfja.
Tónlist sem
meðferð
Teitur
Guðmundsson
læknir
Passaðu
þrýstinginn
Það eru margir sem tengja vel við orðið brennslu og að á henni hægi með aldrinum en það er ýmislegt sem hefur áhrif, meðal annars gen. MYND/GETTY
Tónlist hefur góð áhrif á Parkinson-
sjúklinga MYND/GETTY
2 8 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð