Fréttablaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 35
Grundarhvarf 10. Breytt deiliskipulag. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti 24. mars 2020 að auglýsa í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 10 við Grundarhvarf. Í gildandi deiliskipulagi lóðarinnar frá 2007 er gert ráð fyrir að á lóðinni verði byggt einbýlishús á einni hæð allt að 290 m2 að grunnfleti. Flatarmál lóðarinnar er 1.120 m2 og nýtingarhlutfall því 0,26. Miðað er við þrjú bílastæði á lóð og hámarkshæð 4,0 m miðað við aðkomuhæð. Í tillögu að breyttu deiliskipulagi er gert ráð fyrir að á lóðinni rísi einnar hæðar parhús, Grundarhvarf 10b og 10c samtals um 350 m2 að grunnfleti auk kjallara (tæknirými og geymslur) um 37,0 m2 að flatarmáli. Áætlað nýtingarhlutfall lóðarinnar verður 0,34. Fyrirhuguð hámarkshæð er áætluð 3,9 m miðað við aðkomuhæð. Gert er ráð fyrir bílskýlum undir Grundarhvarfi 10b og 10c ásamt fjórum bílastæðum á lóð. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 16. mars 2020. Nánar er vísað til kynningargagna. Ofangreind tillaga er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um tillöguna er hægt að senda fyrirspurning á starfsmenn skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs á netfangið skipulags@kopavogur.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 15:00 mánudaginn 18. maí 2020. Skipulagsstjóri Kópavogs Auglýsing um breytt deiliskipulag í Kópavogi kopavogur.is ÚTBOÐ Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Útboð 20191 - Ljósbúnaður fyrir Þjóðleikhúsið Ríkiskaup fyrir hönd Þjóðleikhússins óska eftir tilboðum í eftirfarandi ljósbúnað: • Hreyfiljós Spot/Profile • Hreyfiljós Wash • Fastljós Wash • Upphengjur fyrir ofangreint Samið verður við einn aðila um viðskipti þessi. Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa ( www.rikiskaup.is ), miðvikudaginn 18. nóvember nk. Tilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík þar sem þau verða opnuð 22. desember 2015, kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is 21163 – Þjóðgarðsmiðstöð Hellissandi – Byggingarútboð Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd umhverfis- og auðlindarráðuneytisins, óskar eftir tilboðum í verkið: Þjóðgarðsmiðstöð Hellissandi - Byggingarútboð. Verkið felst í uppbyggingu nýrrar Þjónustumiðstöðvar í Þjóðgarði Snæfellsjökuls á Hellissandi. Bygging gesta- stofunnar mun hýsa fjölbreytta starfsemi þjóðgarðsins. Húsgrunnur nýbyggingar samanstendur af tveimur megin byggingum er tengjast með miðrými. Hluti byggingar kragar út yfir grunna, þar sem ekki má valda yfirborðsskemmdum á landi umfram það sem óhjákvæmilegt er. Húsið er á einni hæð staðsteypt og stálvirki að hluta, klætt með lerki. Búið er að grafa fyrir húsi, grafa og fylla í bílastæði og setja upp heildargirðingu fyrir verksvæðið, sem var framkvæmt í sérstöku jarðvinnuútboði. Jarðvinna í þessu verki felst í að fylla í sökkla, fylla að húsi, grafa og endurfylla í lagnaskurði undir og meðfram húsi. Um jarðvinnu gildir að lágmarka skal allt jarðrask, þannig að yfirborð lands umhverfis mannvirkin verði eins ósnortið og mögulegt er. Í fyrra útboði var vinnu- svæðið girt af. Verktaki tekur við þessum girðingum, sér um að viðhalda þeim til að hindra óviðkomandi umferð fari um svæðið. Verktaki tekur á sama hátt við aksturshliði og gönguhliði og sér til þess að þau séu lokuð utan vinnutíma. Byggingarreiturinn er á hornlóð og liggur þjóðvegur í þétt- býli, Útnesvegur, með henni að norðanverðu. Norðan við þjóðveginn er íbúðabyggð Hellissands. Helstu stærðir: Brúttó flötur byggingar: 698 m² Brúttó rúmmál: 2.400 m³, Steinsteypa: 400 m³ Stálvirki: 24.000 kg. Timburklæðning útveggja: 850 m² Fyllingar: 1.200 m³ Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar í hinu rafræna útboðskerfi TendSign, laugardaginn 28. mars 2020. Ákvæði um val á tilboði er í grein 2.7 í ÍST 30 og í 79. gr. laga um opinber innkaup. Fyrirspurnir varðandi verkefni 21163 skulu sendar rafrænt í gegnum útboðskerfið TendSign og verða svör birt þar. Fyrirspurnarfrestur rennur út 26. apríl 2020 en svarfrestur er til og með 30. apríl 2020. Tilboðum skal skila rafrænt í TendSign eigi síðar en kl. 12:00 þriðjudaginn 5. maí 2020. Sjá frekari upplýsingar á vefsíðunni: www.utbodsvefur.is ÚTBOÐ Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Útboð 20191 - Ljósbúnaður fyrir Þjóðleikhúsið Ríkiskaup fyrir hönd Þjóðleikhússins óska eftir tilboðum í eftirfarandi ljósbúnað: • Hreyfiljós Spot/Profile • Hreyfiljós Wash • Fastljós Wash • Upphengjur fyrir ofangreint Samið verður við einn aðila um viðskipti þessi. Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa ( www.rikiskaup.is ), miðvikudaginn 18. nóvember nk. Tilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík þar sem þau verða opnuð 22. desember 2015, kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Ríkiskaup Allar útboðsauglýsingar eru birtar á utbodsvefur.is Utbodsvefur.is er sameiginlegur auglýsingavettvangur opinberra útboða. Á vefsvæðinu eru birtar auglýsingar og eða tilkynningar um fyrirhuguð i nkaup opinberra aðila sem falla undir lög og reglugerðir um opinber innkaup. ATVINNUAUGLÝSINGAR 9 L AU G A R DAG U R 2 8 . M A R S 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.