Fréttablaðið - 28.03.2020, Side 40

Fréttablaðið - 28.03.2020, Side 40
Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Hér koma nokkrar góðar hugmyndir að gagnlegri og góðri afþreyingu heima fyrir, sem stytta stundirnar á þessum sérstöku tímum. Horfðu á ferðaþætti Margir hafa eflaust gert plön um ferðalög um páskana eða í sumar en hafa þurft að breyta þeim. En það er ekki bannað að láta sig dreyma. Það er um að gera að horfa á þætti frá framandi slóðum og drekka í sig mat og menningu annarra þjóða úr sófanum heima. Á Netflix, sem dæmi, er gott úrval af ferðaþáttum og kvikmyndum. Prófaðu nýja uppskrift Hvers vegna ekki að prófa ein- hverja góða uppskrift? Á heimilum margra liggur líklega fjöldinn allur af rykföllnum uppskriftabókum sem bíða þess að einhver opni þær. Það er hægt að leyfa öllum í fjölskyldunni að velja eina upp- skrift til að elda og svo er bara að skella sér á netið og panta hráefnið í heimsendingu. Eins er hægt að taka eina uppskriftabók fyrir og prófa allar uppskriftirnar í henni. Lærðu nýjan dans Hvers vegna ekki að koma til baka meðal fólks með trompi ef samgöngubannið varir lengi? Marga dreymir um að Afþreying í samkomubanni Eflaust er mörgum farið að leiðast heima við þessa daga eftir langa sóttkví eða vinnu heima. Þá er um að gera að finna upp á einhverju skemmtilegu að gera til þess að brjóta upp daginn. Sniðugt er að nýta tímann í samgöngubanninu til að elda uppskriftir úr matreiðslubókum heimilisins. MYND/GETTY vera miðpunktur athyglinnar á dansgólfinu en finnst sig skorta færnina. Á Youtube er haugur kennslumyndbanda af öllum tegundum. Það er hægt að læra grunnsporin í ýmsum samkvæmisdönsum, sem er kjörið ef tveir eru á heimilinu sem geta æft sig saman. En svo er líka hægt að læra einstaklingsdansa eins og hip hop í þremur einföldum skrefum, Beyoncé dansa eða nútímalistdans. Það er nóg í boði og nægur tími til æfinga. Nú er tækifærið! Lærðu nýtt tungumál Internetið er hafsjór fróðleiks og þar er hægt að skrá sig á námskeið í nánast öllu því sem hugurinn girnist. Tungumálanámskeið eru stórsniðug og gagnleg afþreying. Ýmsar vefsíður bjóða upp á tungumálanámskeið fyrir lítinn pening. Á síðunni Udemy. com er hægt að læra fjöldann allan af tungumálum, eins og rússnesku, kínversku, hollensku, spænsku, þýsku, hebresku. Listinn er langur. Kennslan fer fram með myndböndum og skýringartextum og má nefna að 149 kennslumyndbönd í kínverskri málfræði, samtals níu klukkutímar af efni, kosta tæplega 3.000 krónur. Lærðu á hljóðfæri Að læra á hljóðfæri krefst mikilla æfinga og staðfestu ætli fólk sér að ná einhverjum árangri. Margir eiga gítar eða hljómborð heima en gefa sér aldrei tíma til að byrja að æfa sig. En hvenær er betri tími til að byrja en akkúrat núna? Ýmsar vefsíður bjóða upp á ókeypis námskeið í hljóðfæraleik en það er líka hægt að kaupa námskeið fyrir sanngjarnt verð og fá leiðbeiningar frá kennara í gegnum netið. Í næsta fjölskylduboði, hvenær sem þau verða leyfileg, er svo hægt að troða upp og koma öllum á óvart. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . M A R S 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.