Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 2
Langflestir sem leita eftir hjálp vantar einhvern til þess að fara í búð fyrir sig. Sara Lind Annþórsdóttir Veður Norðaustan 15-25 m/s með morgninum, hvassast syðst. Yfir- leitt hægari NA- og A-lands. Él um mest allt land en úrkomulítið um landið SV-vert. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. SJÁ SÍÐU 40 Einn í heiminum Á tímum samkomubanns standa kennileiti heimsins auð og yfirgefin. Aðeins sjást nokkrir sem eru að koma sér á milli staða á ferli. Fjölda ferða- manna á landinu má nánast telja á fingrum annarrar handar. Síðdegis í gær sást til eins manns á ferli við Hallgrímskirkju, á stað þar sem krökkt var af ferðamönnum fyrir stuttu. Má líkja tilfinningunni við að vera einn í heiminum eins og í sögunni um blessaðan drenginn Palla. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR F Y R I R S A N N A S Æ L K E R A LÖGREGLUMÁL Lög reglan á Suður­ nesjum hefur til rann sóknar and lát sem varð í heima húsi þar sem kona á sex tugs aldri lést. Í til kynningu sem lög regla sendi frá sér vegna málsins kemur fram að and látið sé rann sakað sem saka mál. Karl maður á sex tugs aldri hefur verið úr skurðaður í gæslu varð­ hald til 8. apríl næst komandi. Að sögn lög reglu er unnið að rann­ sókn málsins og er ekki unnt að veita frekari upp lýsingar að svo stöddu. – eþs Rannsaka andlát konu COVID-19 „Það virðist vera þannig að þeir sem þurfi mest á hjálpinni að halda séu annað hvort ekki inni á Facebook eða finnist erfitt að biðja um hjálp,“ segir Sara Lind Arnþórs­ dóttir, annar stofnandi Facebook hópsins Hjálpum fólki í áhættu­ hópi. Sara stofnaði hópinn ásamt Elínu Ástu Finnsdóttur um miðjan síðasta mánuð og er markmið hópsins að létta undir með þeim sem eru í áhættuhópi vegna COVID­19. Í hópnum eru tæplega þrjú þúsund meðlimir sem geta annað hvort boðið fram hjálp sína eða óskað eftir hjálp. „Mamma mín er í mik lum áhættuhópi og hefur rætt það við mig að hún sé smeyk við veiruna, þá fór ég að hugsa um að líklega væru f leiri í hennar sporum. Hún býr í Vestmannaeyjum og ég hér á höfuðborgarsvæðinu svo ég get ekki hjálpað henni eins mikið og ég myndi vilja og hún hefur ekki marga til að hjálpa sér í Eyjum,“ segir Sara. Hún bjóst ekki við því að hópur­ inn yrði eins fjölmennur og raun ber vitni en segir magnað að sjá góðvild fólks og samstöðu. „Það eru allir boðnir og búnir að hjálpa. Langf lestir sem leita eftir hjálp vantar einhvern til þess að fara í búð fyrir sig,“ segir hún en Sara hefur sjálf farið í allnokkrar búðar­ ferðir fyrir meðlimi hópsins. „Það er líka algengt að fólk sé að fara í göngutúr með hunda, sérstak­ lega hunda fólks sem er í einangrun, það er mjög algengt,“ segir Sara og bætir við að fjölmargir hafi tekið að sér að fara út með hund fyrir einstaklinga í einangrun daglega í nokkrar vikur. „Þá er kannski bara ákveðið að manneskjan mæti klukkan fimm á hverjum degi og viðri hundinn,“ segir hún. Sara segir að töluvert f leiri bjóði fram hjálp sína en óskir eru eftir hjálp. „Það er stór hópur sem hefur bæði óskað eftir hjálp og þegið hana í hópnum en það eru mun fleiri sem hafa boðist til þess að hjálpa.“. „Okkur grunar þó að hópurinn sem þarf á hjálp að halda sé mun stærri, kannski eru einhverjir sem vita ekki af Facebook­hópnum, eru ekki nettengdir eða þykir óþægi­ legt að biðja um hjálp. En öllum sem vantar hjálp er velkomið að hafa samband við mig eða Elínu eða fá einhvern til að hafa sam­ band við okkur fyrir sig. Við getum þá komið skilaboðunum inn í hópinn og vonandi hjálpað.“ birnadrofn@frettabladid.is Mun fleiri sem eru að bjóðast til að hjálpa Tæplega 3.000 manns eru meðlimir í Facebook-hóp þar sem sameinast er um að hjálpa þeim sem eru í áhættuhópi vegna COVID-19 að sinna daglegu lífi. Hægt er að óska eftir hjálp í hópnum en mun fleiri eru að bjóða fram hjálp. Elín Ásta og Sara Lind standa að baki hópnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK COVID -19 Vakta á lags auk i sem hjúkrunar fræðingar á Land spítala hafa fengið vegna til rauna verk efnis spítalans verður fram lengdur til næstu mánaða og nauð syn legar fjár veitingar tryggðar. Bjarni Benediktsson, fjár mála­ og efna hags ráð herra, og Svandís Svavarsdóttir, heil br igðis ráð­ herra, hafa sent Páli Matthíassyni, for stjóra Land spítala, bréf vegna málsins. Mikillar ó á nægju hefur gætt síðustu daga vegna þess að greiðslurnar féllu niður nú um mánaða mótin. Verða greiðslurnar framlengdar fram í október. Mikið mæðir á heilbrigðisstarfs­ fólki um þessar mundir vegna COVID­19 faraldursins.Tilfellum fjölgaði um 45 í gær og eru því 1.364 manns með staðfest smit hér á landi. Þá eru um 6.300 manns í sóttkví. 309 manns hafa náð sér. Á Landspítala eru 44 einstakl­ ingar með COVID­19, þar af ell­ efu á gjörgæslu. Á Akureyri hafa tveir verið lagðir inn og er einn á gjörgæslu. Átta manns eru nú í öndunarvél, sá yngsti er 37 ára gamall. Fjórir hafa látist hér á landi af völdum veirunnar. Fr a m kom í k völd f rét t u m Stöðvar 2 í gærkvöldi að aðeins 0,5 prósent þátttakenda í slembiúrtaki Íslenskrar erfðagreiningar hafi reynst smitaðir. – eþs Vaktaálagsauki framlengdur Mikið mæðir á heilbrigðisstarfs- fólki þessa dagana. MYND/VILHELM Lögreglustöðin á Suðurnesjum. 4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.