Fréttablaðið - 04.04.2020, Síða 4
Að fá svo margar
mælingar úr einu
dýri þýðir að dýrum í
lyfjaprófunum hefur fækk-
að mikið.
Sigmar Guðbjörnsson,
framkvæmdastjóri Stjörnu-Odda
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI, VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN
Pallbílahús frá ARE á alla USA pallbíla
Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og
íhluta til breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á
lager. Sérpöntum varahluti í aðra USA bíla.
Úrval af felgum fyrir
Jeep® og RAM
Upphækkunarsett
í Wrangler
Upphækkunarsett
í RAM
Falcon demparar
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK
SÍMI 534 4433 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00
ALMENNT BÍLAVERKSTÆÐI OG
SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA
ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK.
FIAT HÚSBÍLAR - ÁBYRGÐAR OG
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
BREYTINGAR Á JEEP®, RAM
OG ÖÐRUM USA PALLBÍLUM
ALLIR BÍLAR SÓTTHREINSAÐIR
STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 534 4433
UMBOÐSAÐILI
336
manns hafa nú náð bata af
COVID-19 hér á landi.
COVID-19 Stjörnu-Oddi í Garða-
bæ annar nú vart eftirspurn eftir
mælum sem fyrirtækið framleiðir
fyrir veirurannsóknir, sem eru þó
ekki gerðar hér á landi. Mælarnir
eru seldir til ríkisstofnana, lyfja-
fyrirtækja, háskóla og rannsóknar-
stofnana og notaðir við rannsóknir
á dýrum. Í öndunarfærasjúkdóma-
rannsóknum, eins og á COVID-19,
eru helst stundaðar rannsóknir á
mörðum, enda eru öndunarfæri
þeirra einna líkust manna.
Hjá Stjörnu-Odda starfa 23, þar
af einn í Barcelona og annar í Stokk-
hólmi. Fyrirtækið hefur starfað
í þessum geira síðan 1993 en þar
áður í þróun farsíma. Til að mynda
hefur það framleitt mæla fyrir
rannsóknir á inf lúensu, til dæmis
svínaf lensufaraldurinn sem reið
yfir heiminn árið 2009.
Þegar Fréttablaðið náði tali af Sig-
mari Guðbjörnssyni framkvæmda-
stjóra var nýbúið að afgreiða send-
ingu til Ástralíu. „Það er gríðarlega
mikið að gera og allir menn á dekki.
Við gerum allt sem við getum til að
standa við afgreiðslur til þeirra
sem eru að rannsaka bóluefni gegn
COVID-19 og í sumum tilvikum
fengið að fresta afgreiðslum til
annarra rannsókna,“ segir hann. „Í
gær fengum við til dæmis pöntun
frá lyfjafyrirtæki sem er hálfs árs
framleiðsla af þeirri gerð af mæli í
venjulegu árferði.“
Þrátt fyrir mikla fjölgun verk-
efna getur fyrirtækið ekki bætt við
sig mannskap að svo stöddu vegna
takmarkana samkomubannsins.
Þetta sé þó til skoðunar innan-
húss. Enginn starfsmaður hefur
smitast af COVID-19 og fyrirtækið,
eins og mörg önnur, hefur gert var-
úðarráðstafanir, svo sem að stúka
starfsstöðvar af. „Okkar starfsfólk
er í framlínunni á alþjóðavettvangi
þar sem við getum lagt þekkingu
okkar á vogarskálina. Við erum
með gott starfsfólk, sem er virki-
lega að standa sig vel,“ segir Sigmar.
Samkvæmt lögum verða prófanir
á dýrum að hafa átt sér stað áður
en hægt er að prófa fólk. Mælarnir,
sem eru litlir, eru settir í dýrin áður
en þau eru sýkt með veiru. „Með
þessum mælum er hægt að fá tug-
þúsundir mælinga úr líkama dýrs-
ins, svo sem hitastig, raf boð hjart-
ans og f leira,“ segir Sigmar. „Að fá
svo margar mælingar úr einu dýri
þýðir að dýrum í lyfjaprófunum
hefur fækkað mikið.“
Strangar reglur gilda um prófanir
á dýrum og ef þau verða mjög veik
eða sýna einhvern af brigðileika eru
þau tekin úr prófunum.
Sigmar telur að faraldurinn sem
ríður nú yfir heimsbyggðina, og
kom aftan að mörgum, muni hafa
mikil áhrif á sviði veirurannsókna.
„Ég á von á því að ríkisstjórnir,
alþjóðastofnanir og rannsókna-
sjóðir taki mið af þessu og sjái að
það þýðir ekkert að slaka á,“ segir
Sigmar. Stuðningur Tækniþróunar-
sjóðs og skattaívilnun vegna þró-
unarkostnaðar hefur til að mynda
komið sér vel fyrir Stjörnu-Odda.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Marðarannsóknir mikilvægar
í leit að bóluefni við COVID
Fyrirtækið Stjörnu-Oddi framleiðir veirurannsóknarmæla fyrir dýr. Í leitinni að bóluefni gegn
COVID-19 er helst stuðst við rannsóknir á mörðum, enda öndunarfærin álík manna. Hefur fyrirtækið
vart undan að framleiða mæla til að senda til erlendra ríkisstofnana, lyfjafyrirtækja og háskóla.
Sigmar segir Stjörnu-Odda setja í forgang að aðstoða rannsóknir á bóluefnum fyrir COVID-19. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sólveig Anna Jónsdóttir
formaður Ef lingar
sagði suma atvinnu-
rekendur notfæra
sér COVID-19
faraldurinn til
að ríkisvæða
kostnaðinn en
halda tekjunum. Ef ling
hefur fengið ábendingar um að
starfsfólk, sem fyrirtæki hefur
sett á hlutabætur vegna farald-
ursins, sé enn látið vinna fullt
starf. Fyrirtæki hafi þannig fært
launakostnað yfir á ríkið á sama
tíma og það þiggi vinnu starfs-
fólksins.
Þór ólfur Guðna son
sótt varna læknir
lagði til að sam-
komu bann yrði
framlengt hér á
landi til 4. maí
að minnsta kosti.
Svan dís Svavars dóttir
heil brigðis ráð herra samþykkti
framlenginguna en banninu átti
upprunalega að ljúka 13. apríl. Á
upp lýsinga fundi al manna varna
sagði Þórólfur að þörf væri á
áfram haldandi að gerðum til að
hefta út breiðslu Co vid-19 í ljósi
stöðunnar hér á landi.
Þorbjörg Marinósdóttir
ritstjóri
var ráðinn nýr rit-
stjóri DV í vikunni
en Samkeppnis-
eftirlitið samþykkti
í liðinni viku kaup
útgáfufélagsins Torgs
á DV, dv.is og tengdum
miðlum. „Ég hlakka til að takast
á við að ritstýra DV og dv.is. Net-
miðillinn ásamt undirmiðlunum
er einn sá fjölsóttasti hér á landi
og nú tekur við að laga þar til í
efnisvali og efnistökum,“ sagði
Þorbjörg, eða Tobba eins og hún er
oftast kölluð.
Þrjú í fréttum
Fyrirtæki,
framlenging
og fjölmiðlar
0,23%
hækkun varð á vísi-
tölu neysluverðs frá
febrúar til mars á
þessu ári.
101
starfsmanni var sagt upp hjá
Isavia. Þá var 37 boðið áfram-
haldandi starf með minnkað
starfshlutfall.
25%
meiri rauðvíns-
sala var í síðasta
mánuði en í
sama mánuði í
fyrra miðað við
tölur ÁTVR.
116
bakverðir hafa verið ráðnir í bak-
varðasveit heilbrigðisþjónust-
unnar vegna COVID-19. Þá hafa
rúmlega þúsund skráð sig á lista.
TÖLUR VIKUNNAR 29.03.2020 TIL 04.04.2020
4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð