Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 8
Allar nánari upplýsingar er að finna á attin.is SAMKOMUBANN ÞÝÐIR EKKI FRÆÐSLUBANN Er fyrirtækið þitt búið að sækja um á Áttinni vegna fræðslu? Nú er tími til að taka til! Allt að ársgamlir reikningar eru gildir þegar sótt er um fræðslustyrk. AUSTURSTRÆTI SKÓLAVÖRÐUSTÍG LAUGAVEGI AKUREYRI VESTMANNAEYJUM Samkvæmt 33. gr. laga Félags tæknifólks í rafiðnað, skal auglýsa frest til framboðs. Framboðsfrestur skal vera minnst 14 sólarhringar og skal tillögum skilað til kjörstjórnar innan þess tíma. Með hliðsjón af framansögðu hefur framboðsfrestur verið ákveðinn til kl. 12 á hádegi 14. apríl 2020 Reykjavík 30. mars 2020 Stjórn Félags tæknifólks í rafiðnað Framboð í trúnaðarstöður FTR DÝRAHALD Hundaeigendur í Kópa- vogi vilja fá á hreint hvort bálfara- ofnar á dýraspítölum séu blekking til að hafa fé af viðskiptavinum. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála tók fyrir kæru þeirra vegna opinbers eftirlits með bál- förum gæludýra. Annar eigendanna sem Fréttablaðið náði sambandi við vildi ekki tjá sig um málið. „Kærandi bendir á að tilgangur kærunnar sé að fá úr því skorið hvort dýraspítalar á höfuðborgar- svæðinu hafi gilt starfsleyfi til rekst- urs bálfaraofna fyrir gæludýr eða hvort bálfaraofnar á þeirra vegum séu skraut til að blekkja gæludýra- eigendur til að borga okurverð fyrir þjónustu sem sé ekki framkvæmd af þeim sjálfum heldur sorpbrennslu- stöðvum annars staðar,“ segir í umfjöllun úrskurðarnefndarinnar. „Loks er Dýraspítalinn í Víðidal kærður fyrir ætlaða sviksemi í þjón- ustu sinni við gæludýraeigendur.“ Fram kemur að farið hafi verið með hund kærandans í af lífun til Dýraspítalans í Víðidal 27. desem- ber síðastliðinn. Borgað hafi verið fyrir sérbrennslu og þar til gert box fyrir ösku. Hundaeigandinn hafi þremur dögum síðar spurst fyrir um það hjá Heilbrigðiseftirliti Reykja- víkur hvort dýraspítalinn hefði starfsleyfi til bálfara eða fyrir bál- stofu gæludýra og fengið þau svör að spítalinn hefði gilt starfsleyfi. Þann 2. janúar bað hundaeigand- inn heilbrigðiseftirlitið að kanna hvort brennsluofninn á dýraspítal- anum hefði verið notaður á bilinu 28. desember 2019 til 6. janúar 2020. „Vísaði kærandi til þess að hann hefði borgað 50 þúsund krónur fyrir förgun á hundinum sínum, en samkvæmt upplýsingum frá sorp- eyðingarstöðinni Kölku í Reykja- nesbæ brenni þeir gæludýr fyrir Dýraspítalann í Víðidal fyrir um það bil tvö þúsund krónur.“ Þá segir að heilbrigðiseftirlitið hafi yfirfarið skráningar. „Og komi þar fram að hundur kæranda hafi verið brenndur með sérbrennslu á Dýraspítalanum í Víðidal 28. des- ember 2019,“ segir nefndin, Engin kæranleg ákvörðun liggi fyrir í mál- inu sem þar með sé vísað frá. Ólöf Loftsdóttir, dýralæknir og einn eigenda dýraspítalans, hafnar ásökunum algerlega. Sérstakt sé að hundaeigendurnir hafi aldrei rætt við nokkurn hjá Dýraspítalanum í Víðidal eftir að hafa tekið við ösk- unni af hundi sínum. „Við höldum auðvitað nákvæmt bókhald yfir hvað fer í ofninn og þannig gátum við sýnt fram á hvernig okkar vinnubrögð eru,“ útskýrir Ólöf. Fráleitt sé að halda því fram að dýraspítalinn sendi gæludýr til eyðingar í Reykjanesbæ eða á nokkurn slíka stað. „Ég skil ekki hvað þeim gengur til, við höfum aldrei notað Kolku.“ Að sögn Ólafar er mikill metn- aður lagður í vönduð vinnubrögð hjá dýraspítalanum enda málið viðkvæmt. „Þess vegna tekur maður nærri sér þegar fólk er með svona fullyrðingar,“ segir hún og harmar að verið sé að ófrægja spítalann. „Það getur fólk úti í bæ ásakað okkur og við höfum aldrei fengið tök á að verja okkur. Það er algert rugl. Þetta eru afskaplega alvar- legar ásakanir því okkar heiður er að veði.“ gar@frettabladid.is Brigslað um blekkingar við bálfarir „Ég skil ekki hvað þeim gengur til,“ segir eigandi dýraspítala sem brigslað er um svik við sér- brennslu á hundi. Ósatt sé að spítalinn borgi sorp- eyðingarstöð tvö þúsund krónur fyrir slíka förgun. Sérbrennslan fór fram, segir Heilbrigðiseftirlitið. Dýraspítalinn í Víðidal hafnar öllum ásökunum um svik við brennslu á gæludýrum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Við höfum aldrei fengið tök á að verja okkur. Það er algert rugl. Ólöf Loftsdóttir, einn eigenda Dýraspítalans í Víðidal 4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.