Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 9
Sýningarsalir HEKLU
á vefnum eru alltaf opnir
Við hjá HEKLU leggjum okkur fram við að veita viðskiptavinum góða þjónustu nú
sem endranær. Allt kapp er lagt á að vernda starfsfólk og viðskiptavini og fylgjum
við tilmælum Landlæknisembættisins um sóttvarnir.
Í sýningarsal HEKLU á vefnum getur þú skoðað úrval bíla frá Audi, Volkswagen,
Skoda og Mitsubishi. Þú sérð hvaða bílar eru til frá öllum merkjum HEKLU, hvaða
litir og útfærslur eru í boði ásamt því að sjá hvað bílar eru væntanlegir til landsins.
Þú getur auðveldlega sent inn fyrirspurn um uppáhalds bílinn þinn og auðvitað líka
tekið hann frá og pantað.
Í vefverslun HEKLU er einnig að finna mikið úrval aukahluta fyrir bílstjóra, farþega
og bílinn sjálfan. Þar getur þú keypt allt frá bílstólum og toppbogum yfir í
farangursbox og felgur.
Komdu í heimsókn í vefverslun HEKLU, þar sem er alltaf opið.
www.hekla.is/vefverslun
Við hvetjum viðskiptavini okkar til að nýta rafrænar leiðir í samskiptum við okkur og kappkostum að svara fyrirspurnum eins hratt og
auðið er. Söluráðgjafar HEKLU eru aðgengilegir í síma á opnunartíma í gegnum tölvupóst og netspjall.
SÓTTVARNIR
Við höfum sett fram nokkur einföld viðmið varðandi afhendingu nýrra bíla. Söluráðgjafi kennir viðskiptavini á helstu atriði nýja bílsins
úr fjarlægð eða glugga. Ef nauðsynlega þarf að sýna ákveðin atriði inn í bílnum stendur söluráðgjafi fyrir utan bílinn og leiðbeinir í
gegnum opinn glugga hinum megin. Varðandi tengimöguleika bílsins og önnur tæknileg atriði geta söluráðgjafar sent leiðbeiningar í
tölvupósti, leiðbeint símleiðis og jafnvel boðið upp á myndsímtal
Við hvetjum viðskiptavini verkstæðis til að nýta snertilausa afgreiðslu með því að skilja eftir bíllykilinn í læstum skilakassa sem
er við vinstri aðalhurð HEKLU. Þar er umslag sem hægt er að fylla út nánari upplýsingar en svo má einnig ná í upplýsingablað á
www.hekla.is til útprentunar, fylla út og setja með í umslagið. Við tæmum skilakassann reglulega. Eins er hægt að nýta snertilausa
afgreiðslu við móttöku með því að ganga frá greiðslu símleiðis í síma 590 5030 með greiðslukorti áður en bíllinn er sóttur og fær
viðskiptavinur lykilinn afhentan í poka við komu. Í þeim tilfellum er hægt að hringja í síma þjónustuvers eða senda tölvupóst á
thjonusta@hekla.is.
Afgreiðslutími HEKLU breytist tímabundið. Opið er í sýningarsölum HEKLU á milli klukkan 10.00 og 17.00 virka daga en lokað um
helgar. Þjónustumóttaka verkstæðis og varahluta er opin milli klukkan 07.45 til 17:30 virka daga. Við vekjum athygli á því að lokað
verður hjá Heklu 6. til 13. apríl. Þá daga verður einungis neyðarþjónusta í gangi. Hefðbundinn afgreiðslutími á virkum dögum hefst aftur
14 apríl.
AFGREIÐSLUTÍMI
Á verkstæðinu nota bifvélavirkjar okkar viðurkenndar varnir til að vernda sig og viðskiptavini. Áður en starfsmaður sest inn í bílinn er
lykill og allt snertisvæði bílsins sótthreinsað, stýri, skiptistöng, handbremsa og hurðarhandföng og einnota ábreiða sett yfir sæti. Fyrir
skil er ferlið endurtekið og sótthreinsaður lykill settur í lokaðan poka. Á meðan ástandið varir getum við því miður ekki boðið upp á
skutlþjónustu en hægt er að leigja bíl á meðan á viðgerð stendur. Í þeim tilfellum gætum við þess að sótthreinsa bílaleigubílinn vel
að innan áður en viðskiptavinur fær bílinn í hendurnar.
VERKSTÆÐI
AFHENDING NÝRRA BÍLA
SNERTILAUS AFGREIÐSLA
HEKLA · Laugavegi 170 · Sími 590 5000 · Hekla.is
Við gætum þess að fylgja kröfum varðandi hreinlæti og sótthreinsun svæða. Sóttvarnir eru aðgengilegar í öllum sýningarsölum
okkar og beinum einnig tilmælum til viðskiptavina og starfsfólks að hafa tveggja metra fjarlægð á milli. Þá hafa allir sýningarsalir
HEKLU verið aðskildir til að takmarka óþarfa umferð og þess er gætt að einungis 20 séu samankomnir á hverju svæði í einu.
SÝNINGARSALIR