Fréttablaðið - 04.04.2020, Side 12
Niðurstaðan var að
hækka viðmiðin
með 0,35 m varúðarmörk-
um og hefur Vegagerðin
stuðst við það í sínum
umsögnum síðan um
áramót.
Sigurður
Sigurðarson,
strandverk-
fræðingur Vega-
gerðarinnar
Hnattræn hlýnun
hækkar sjávarborð. Aukið
rúmmál hafsins vegna
hlýnunar skýrir um 30 til 45
prósent hækkunarinnar en
bráðnun jökla afganginn.
Fyrsta bréf ið til Jef fs Moneda í nýju stjórnun-arstarfi í borginni Foster City við San Francisco f lóa í Kaliforníu ýtti verulega við honum.
„Talandi um stress. Fyrsti pósturinn
var bréf frá almannavörnum Banda-
ríkjanna, FEMA, þar sem sagði: „Þú
verður að hækka alla sjóvarnargarða
annars verðum við að skilgreina alla
borgina á flóðasvæði,“ sagði Moneda
borgarstjóri í viðtali við dagblaðið
Los Angeles Times nýverið.
Fasteignaeigendur borgarinnar
enduðu á að samþykkja, með meira
en 80 prósentum atkvæða, að greiða
sérstakan 90 milljóna dala skatt til
hækkunar flóðgarða um 2,7 metra.
Framkvæmdir hefjast í sumar.
San Francisco, fjórða stærsta
borg Kaliforníu, gaf nýlega út ný og
hærri viðmið um örugga sjávarstöðu
fyrir framtíðarskipulag. Skýringa
er að leita í hnattrænni hlýnun
af mannavöldum. Með aukinni
losun g róðurhúsalof tteg unda
mun hitastig áfram fara hækkandi
og öfgar í veðurfari aukast næstu
áratugina. Borgin áætlar að til
ársins 2100 muni sjávarborð hækka
um 1,68 metra, en að auki er gert
ráð fyrir 1,07 metrum vegna aukins
stormviðris og háflóða. Þetta er því
veruleg hækkun frá því sem áður var.
Gróðurhúsaáhrif á sjávarstöðu
Ýmsir þættir hafa áhrif á sjávar-
stöðu. Í fyrsta lagi eru það sjávar-
föllin sem stafa af aðdráttaraf li
tungls, sólar og reikistjarna. Þá
valda ýmsir veðurfarsþættir hækk-
un sjávarborðs, svokölluðum
áhlaðanda. Þar ber fyrst að nefna
áhlaðanda vegna loftþrýstings
en einnig koma til vindáhlaðandi
og ölduáhlaðandi, sá síðarnefndi
getur hækkað sjávarstöðu mikið
á afmörkuðum svæðum innan
brimgarðs upp við ströndina. Að
auki ræðst afstaða láðs og lagar af
landrisi eða landsigi, nokkuð sem
skiptir miklu hér á landi.
Allt frá 19. öld hefur það verið
mönnum ljóst að lofthjúpurinn
hækki meðalhita jarðar. Vissar loft-
tegundir lofthjúpsins breyta varma-
geislun frá jörðinni þannig að neðri
hluti hjúpsins og yfirborð jarðar
hitna og mynda gróðurhúsaáhrif.
Þetta er margítrekuð niður-
staða Milliríkjanefndar um lofts-
lagsbreytingar (IPCC) sem er
vísindaráð á vegum Umhverfis-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna og
Alþjóðaveðurfræðistofnunarinn-
ar. Að baki henni er starf þúsunda
vísindamanna.
Ein alvarlegasta afleiðing hnatt-
rænnar hlýnunar er hækkun
sjávarborðs. Það skýrist einkum
af tvennu: Við hlýnun þenst sjór
út og rúmmál hafsins vex. Þessi
varmaþensla skýrir í dag um 30
til 45 prósenta hækkun sjávar-
borðs. Afgangurinn kemur til af
rýrnun Grænlandsjökuls, Suður-
skautslandsins og jökla utan
heimskautasvæða, þegar meira
leysingavatn rennur til hafs.
Vísindalegar mælingar sýna að
sjávarmál í heiminum hækkaði
að jafnaði um 3,6 mm á ári á tíma-
bilinu 2005-2015 og er sú hækkun
2,5 sinnum meiri en var á árabilinu
1901-1990, þegar hækkunin var að
jafnaði 1,4 mm á ári.
Af hverju skiptir þetta máli?
Það þarf ekki mikla breytingu á
sjávarstöðu til að hafa umtalsverð
áhrif á daglegt líf fólks. Til þessa
verður að taka tillit við hönnun
mannvirkja í og við sjó á næstu ára-
tugum. Það á einkanlega við um
byggð á lágsvæðum nærri sjó,
hafnarmannvirki og fráveitukerfi
sem liggja út í sjó.
Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur,
vék að þessu í síðustu ársskýrslu
félagsins þegar hann sagði frá-
veitu borgarinnar viðkvæma fyrir
loftslagsbreytingum vegna tíðari
hellidemba og hækkandi sjávar-
stöðu. Nú þegar eru fráveitulagnir
í nokkrum hverfum neðan sjávar-
máls og því þurfi dælubúnað til að
veita skólpi til sjávar. Endurnýjun
fráveitunnar yrði að taka mið af
loftslagsbreytingunum.
Íslensk skipulagsviðmið
Vegagerðin er umsagnaraðili um
skipulag þar sem hætta þykir
vera á sjávarflóðum. Sigurður Sig-
urðarson, strandverkfræðingur
Vegagerðarinnar, segir að skipu-
lagsviðmið um lágmarkslandhæð
haf i ver ið endurskoðuð ár ið
2018. „Hvað varðar hæk k un
sjávarstöðu vegna hnattrænnar
hlýnunar var byggt á drögum að
skýrslu vísindanefndar um lofts-
lagsbreytingar frá árinu 2018,“
segir Sigurður. Star f íslensku
nefndarinnar hafi verið byggt á
samantektum IPCC um hnattræna
hækkun sjávarborðs.
Að sögn Sigurðar var gert ráð fyrir
að um 30 til 40 prósent af hnatt-
rænni hækkun væru vegna massa-
taps ísbreiða aðallega á Grænlandi,
en einnig að nokkru á Suðurskauts-
landinu. Viðmið um lágmarksland-
hæð byggir á spám um hnattræna
hlýnun auk þess sem tekið er tillit
til landhæðarbreytinga vegna jarð-
skorpuhreyfinga.
Varúðarmörk hækkuð 2020
Enn hækka mörkin. Um síðustu
áramót gaf Vegagerðin út hærri
varúðarmörk vegna óvissu um
sjávarstöðuhækkun eftir nýjar
upplýsingar frá IPCC síðasta haust.
„Niðurstaðan var að hækka viðmið
með 0,35 metra varúðarmörkum
og hefur Vegagerðin stuðst við
það í umsögnum sínum síðan um
áramót,“ segir Sigurður.
Vegagerðin gerir ráð fyrir að
hækkun sjávarstöðu vegna hnatt-
rænnar hlýnunar til loka aldarinnar
verði mest um 0,8 til um 1,0 m á Suð-
vesturlandi, Reykjanesskaga og
Norðvesturlandi. Minni hækkun
er áætluð annars staðar á landinu. Í
nágrenni Vatnajökuls er hins vegar
gert ráð fyrir að land rísi um allt að
1,5 m til loka aldarinnar.
Þessu til viðbótar er miðað við um
1,0 til 1,2 m hækkun vegna stjarn-
fræðilegra sjávarfalla og byggir það
á velþekktri meðalstórstraumsflóð-
hæð. Að auki er gerð krafa um að
lágmarksgólfhæð sé 0,3 m hærri en
lágmarkslandhæð.
Duga viðmiðin?
Aðspurður hvort þessi varúðar-
mörk dugi telur Sigurður svo vera.
Hann segir að teikn um hækkaða
sjávarstöðu hafi í áratugi verið tekin
alvarlega hér á landi. „Að svo stöddu
telur Vegagerðin ekki ástæðu til að
hækka enn frekar gildandi skipu-
lagsviðmið.“ Komi í ljós gildar ástæð-
ur til hækkunar verði það skoðað.
Auður Magnúsdóttir, umhverfis-
sérfræðingur hjá verkfræðistofunni
VSÓ, sem leiddi 2016 rannsókn á
hækkaðri sjávarstöðu, telur teikn
um hana ekki tekin nógu alvarlega
hér. „Það er undir hælinn lagt
hvort tekið er tillit til hækkunar
sjávarborðs við skipulag byggðar.
Það skortir samræmda stefnu um
hvernig eigi að bregðast við hækkun
sjávarborðs þannig að sem minnst
hætta skapist fyrir komandi kyn-
slóðir,“ segir Auður. „Ef til vill gerir
fólk sér ekki grein fyrir hversu nálæg
í tíma hækkun sjávarborðs er. Samt
sem áður erum við að skipuleggja
byggðir sem munu standa næstu ára-
tugina, til ársins 2100 eða lengur og
verða umhverfi barnanna okkar og
barnabarna.“
Sjávarstaða
hækkar enn
Hækkun sjávarstöðu kallar á ný skipulagsviðmið
þar sem miðað er við eins metra hnattræna hækk-
un vegna hlýnunar auk 35 cm varúðarmarka.
Davíð
Stefánsson
david@frettabladid.is
Meðalstór- Hækkun v. Hækkun v. hnattr. Varúðarmörk Lágmarks Lágmarks
straumsflóð sjávarfalla hlýnunar og jarð- Vegagerðarinnar gólfhæð yfir gólfhæð
og storma skorpuhreyfinga v. hlýnunar landhæð við strönd
Reykjavík +4,0 m 1,2 m 0,54 m 0,35 m 0,3 m +6,4 m
Ísafjörður +2,2 m 1,1 m 0,4 m 0,35 m 0,3 m +4,2 m
Akureyri +1,4 m 1,1 m 0,0 m 0,35 m 0,3 m +3,2 m
Húsavík +1,3 m 1,35 m 0,32 m 0,35 m 0,3 m +3,6 m
Höfn í Hornafirði +1,2 m 1,2 m -1,5 m 0,35 m 0,3 m +1,6 m
Grindavík +3,3 m 1,5 m 0,64 m 0,35 m 0,3 m +6,1 m
✿ Lágsvæði
Nýjar viðmiðunarreglur fyrir landhæð í hæðarkerfi hafna (metrar)
UMHVERFIÐ OKKAR
Með aukinni losun gróðurhúsalofttegunda mun hitastig fara hækkandi og öfgar í veðurfari aukast. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK
4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð