Fréttablaðið - 04.04.2020, Page 18

Fréttablaðið - 04.04.2020, Page 18
Afgreiðslutímar á www.kronan.is Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. Allt fyrir páskaveisluna 1399 kr.kg Lambalæri frá Norðlenska OPIÐ ALLA PÁSKANA! Sjá nánar á kronan.is 589 kr.kg Fjólubláar sætar kartöflur 4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT Brjálaðir bónusar íþróttamanna Alexis Sanchez er með besta samning í heimi. Það hlýtur að vera. Hann er búinn að fá milljarð í laun og fékk tryggðarbónus í vikunni. En þetta er ekki eini furðubónusinn sem íþróttamenn hafa sett í samninga sína. Fjarri því, eins og óformleg leit sýnir. Sjónvarpssamningur aldarinnar Þegar NBA vildi fá fjögur lið úr ABA-deildinni inn í sína deild missti St Louis af lestinni. Eigendur liðsins sömdu þó um að fá hluta af sjónvarpstekjum þessara liða svo lengi sem NBA- deildin væri til, meðal annars San Antonio Spurs. Hluturinn var metinn á hálfan milljarð dollara árið 2014. Elskar körfubolta Michael Jordan, besti körfuboltaleikmaður allra tíma, hafði í sínum samningi að hann mætti spila körfubolta hvar og hvenær sem er. Chicago Bulls reyndi reglulega að fá hann til að hætta að spila á hörðu malbiki eða í einhverjum sýning- arleikjum en Jordan hélt þessari klásúlu allan sinn feril. Fékk borgað alveg sama hvað Rick Mirer, samdi við Seattle Seahawks í NFL-deildinni 1993. Umboðsmenn hans voru þá óreyndir og sömdu um milljarða greiðslur sem Mirer myndi fá, sama hvað gerðist. Jafnvel þó jörðin myndi farast. „… up to and including the end of the world,“ eins og stóð orðrétt í samningnum. Ekkert er ókeypis Þegar PSG keypti Neymar frá Barcelona og gerði hann að dýrasta knattspyrnumanni heims fékk hann nokkrar góðar klásúlur í sinn ofursamning. Meðal annars 2,5 milljónir dala á ári ef hann gagnrýnir ekki þjálfarann og 375 þúsund fyrir að heilsa aðdáendum, svo fátt eitt sé nefnt. Borgað fyrir tapleiki Sigurbónusar eru trúlega þekktasta stærðin í íþróttasamn- ingum. Þegar samningur Hugo Lloris, fyrirliða franska lands- liðsins og leikmanns Tottenham, lak í fjölmiðla kom í ljós að hann fær fjölmarga bónusa eins og hinn klassíska bónus fyrir sigurleiki en einnig 3.500 pund ef liðið bíður lægri hlut. Fyrirtækið naut góðs af samningnum Daniel Agger, fyrrverandi leikmaður Liverpool, setti í sinn samning að í hvert sinn sem hann væri í Liverpool-liðinu fengi fyrirtæki hans ókeypis birtingu á skiltunum við Anfield. Agger spilaði 175 leiki fyrir Liverpool áður en hann snéri aftur til Danmerkur þar sem fyrirtækið blómstrar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.