Fréttablaðið - 04.04.2020, Side 22
Þegar maður var að und-irbúa þetta fór maður auðv itað aðeins að hugsa um þetta og þetta var svolítið skrýtið til að byrja með,“ segir
Laddi sem gat ekki varist hugsunum
um feigð og eigin dauðleika enda
nokkrum árum eldri en Benedikt
sem hann leikur í sjónvarpsþátt-
unum Jarðarförin mín.
„Ég lagðist til dæmis ofan í kistu
og allt það fyrir einhverjar mynda-
tökur og þá fór maður nú að hugsa
sko,“ segir hinn 73 ára gamli Laddi
sem þannig er vissulega kominn í
seinni hálfleik, hvernig sem á það
er litið.
„Og ég verð að segja það að ég
fékk nú svona smá hugmynd, af því
að hann Benedikt var að undirbúa
sína jarðarför, hvort ég ætti ekki
bara að drífa mig í því líka. Vegna
þess að hún verður það stór. Þetta
verður svona fjöldagröf hjá mér,“
segir Laddi og hlær um leið og hann
bendir á að með honum muni óhjá-
kvæmilega kveðja halarófa af per-
sónum sem þjóðin hefur fyrir löngu
slegið eign sinni á.
Kista á kjaft
„Allir karakterarnir, þeir fara nátt-
úrlega með þannig að ég er búinn
að spekúlera í alls konar hlutum og
held að það fari alveg hálfur dagur
í þessa jarðarför án þess að ég sé
nokkuð búinn að hanna það,“ segir
Laddi og bendir á að vafaatriðin séu
mörg.
„Hvort það þurfi að jarða hverja
persónu fyrir sig og hvert og eitt
fái kistu. Ég veit að þau munu fara
að rífa kjaft annars,“ segir Laddi
sem kemst síðan ekki lengra þar
sem Eiríkur Fjalar grípur skyndi-
lega og óvænt fram í fyrir honum:
„Hva, á maður ekki að fá sérkistu?
Hva, erum við allir saman hérna?!“
Vandlætingartónn f lauelsjakka
kassagítarhetjunnar er greinilegur.
„Það verður svolítið svona,“
heldur Laddi áfram meðvitaður
um að Skúli rafvirki, Elsa Lund,
Saxi læknir, Dengsi og f leiri pláss-
frekar persónur sem sprottið hafa
fram í höfði hans verði ekkert frekar
til friðs.
Dauðadómur á síðasta degi
Talið berst frá litríkum grínfíg-
úrum Ladda að honum Benedikt,
sem óneitanlega er allt annars eðlis
og sjálfsagt dramatískasta per-
sónan sem Laddi hefur tekist á við
á löngum ferlinum.
„Það má segja að þetta sé svolítið
öðruvísi en ég hef leikið áður þann-
ig að ég þurfti aðeins að hugsa mig
um og setja mig í spor þessa manns,“
segir Laddi. „Ég náttúrlega leit
aðeins inn á við bara. Líka og af því
að við erum svona á svipuðum aldri,
ég er aðeins eldri en hann, þá er það
mjög svipað þannig að ég náði alveg
tengingu við karlinn.
Hann er orðinn 67 ára og er að
hætta í vinnunni,“ segir Laddi um
stöðu Benedikts í fyrsta þætti.
„Hann þótti ekki skemmtilegur
enda svona þumbari og ekki vin-
margur. Átti einn vin sem vann
með honum og spilaði með honum
golf. Og það var nú allt og sumt. En
það er haldin þarna fyrir hann ein-
hver veisla og bara fljótlega upp úr
því fær hann þessar fréttir. Að hann
eigi jafnvel bara nokkrar vikur eftir
ólifaðar.
Honum bregður náttúrlega að
sjálfsögðu og fer að hugsa sín mál
og svona og tekur ákvörðun um
að gera kannski eitthvað þessar
síðustu vikur sem hann lifir. Gera
eitthvað fyrir sjálfan sig. Það verður
smá breyting á kallinum og hann
fær þessa glimrandi hugmynd og
fer bara að undirbúa sína eigin
jarðarför.“
Leynigestur í jarðarför
„Þetta er nú ekki vel séð hjá fólkinu
hans, eða einkasyninum, fyrr-
verandi konunni, sem er alltaf að
skipta sér af öllu, og tengdadóttur-
Í dauðans
óvissa gríni
Hinn eini sanni Laddi axlar sínar þyngstu
dramatísku byrðar á ferlinum í þáttunum
Jarðarförin mín. Rúmlega sjötugur hug-
leiddi hann óhjákvæmilega dauðann og þá
halarófu sem verður grafin með honum. Laddi í þungum þönkum á mörkum lífs og dauða í hlutverki Benedikts.
Laddi tekur
enga sénsa á
tímum kóróna
veirunnar
enda dauðans
alvara á ferðum
og ekkert
hlægilegt við að
verja sig og aðra
með hönskum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn@frettabladid.is
Á þessum vendipunkti í sögunni
má segja að skálduð tilveran renni
saman við raunveruleika Ladda,
þó á dramatískum forsendum.
„Þau hafa ekki sést síðan hann var
bara unglingur, átján ára eða eitt-
hvað svoleiðis. Nema hvað. Hún er
prestur og verður sú sem á að jarða
hann og ástin blossar upp þarna hjá
manninum sem búinn er að vera
einn eiginlega í 30 ár.
Ragnheiður Steindórsdóttir leik-
ur hana en hún lék líka kærustuna
mína í Undir sama þaki ’77,“ segir
inni. Það fer ekki vel í þau þetta
kjaftæði í honum en hann heldur
sínu striki og fer að undirbúa þetta
af krafti,“ segir Laddi og ekki leynir
sér að hann hefur séð spaugilegar
hliðar á þessu grafalvarlega brölti
persónunnar.
Gömul kærasta
„Hann fer að kynna sér alls konar
hluti og svona. Fer að lauma sér inn
í jarðarfarir og skrifa hjá sér punkta
og svona. Svo kemur að því þarna í
þessu veseni hans að hann rekst á
æskuástina sína.“
4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð