Fréttablaðið - 04.04.2020, Qupperneq 28
Þessi yfirskrift er ágætis rammi utan um 50 ára sögu
Hjálparstarfs kirkjunnar, en í janúar síðastliðnum
voru liðin 50 ár frá því að stofnunin var sett á laggirn-
ar. Styðjum hvert annað! Um það hefur starfið á Ís-
landi og verkefnalöndum erlendis snúist í öll þessi ár
og gerir enn. Eins og í lífinu almennt hefur gengið á
ýmsu í starfinu, stundum gengið vel og stundum illa,
vel tekist til og mistök verið gerð. Það sem skiptir máli
er að læra af mistökunum og því sem vel er gert og
horfa til framtíðar, halda áfram að styðja hvert annað.
Finna nýjar leiðir, aðlagast aðstæðum og hafa sam-
starf og notendastýrða nálgun á þjónustu og í verk-
efnum.
Valdefling kvenna
Á vel heppnuðu afmælismálþingi í janúar var yfir-
skriftin „Valdefling kvenna – frasi eða framfarir?“
Niðurstaða okkar er að valdefling kvenna er lykil-
þáttur í að ná árangri og framförum á Íslandi og verk-
efnalöndum erlendis. Þetta var líka niðurstaða
Muhammad Yunus frá Bangladesh sem fékk Nóbels-
verðlaunin 2006. Hann vill meina að valdefling kvenna
m.a. með örlánum til að bæta tekjugrundvöll og ráð-
stöfunarfé kvenna sé grundvöllur efnhagslegra og
félagslegra framfara í heiminum. Þess vegna stofnaði
hann árið 1983 Grameen Bank sem veitir örlán til
þeirra allra fátækustu, sérstaklega kvenna. Starf
Muhammad Yunus er fyrirmynd margra annarra að
árangursríku starfi. Fimmta heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna um jafnrétti kynjanna er þverlægt markmið
í öllu starfi Hjálparstarfsins. Meðal annars eru veitt
örlán til kvenna í verkefninu í Eþíópíu. Virkniverkefni
fyrir konur eru í gangi á Íslandi og 71% umsækjenda
sem fengu efnislega aðstoð á síðasta starfsári voru
konur.
Með þinni hjálp
Þegar upp er staðið snýst þetta um að styðja hvert
annað, vinna að réttlæti, trúa á framtíðina! Þá kemur
stóra spurningin til þín og til mín – erum við aflögufær
til að veita öðrum stuðning? Getum við lagt okkar af
mörkum til að vinna að réttlátari heimi. Ef svo er get-
um við tekið þátt í söfnun Hjálpastarfs kirkjunnar
undir yfirskriftinni „Styðjum hvert annað!“.
Upplýsingar um fjölbreytt starf okkar eru í þessu blaði
og einnig upplýsingar um mismunandi leiðir til að
styðja starfið. Takk fyrir þinn stuðning.
Þurfir þú á stuðningi að halda eru upplýsingar í þessu
blaði um hvernig þú getur nálgast stuðning sem er í
boði, einnig á heimasíðu okkar help.is. Vegna COVID-19
veirunnar biðjum við sem flesta að byrja á því að
hringja í síma 528 4400 (kl. 10:00–15:30) eða fara á
heimasíðuna frekar en að koma á skrifstofuna.
Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi
Á óvissutímum eins og við lifum í dag er mikilvægt að
muna eftir kærleikanum:
„Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður.
Kærleikurinn öfundar ekki.
Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.
Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin,
hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.
Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni
en samgleðst sannleikanum.
Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.
Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.“
1. Korintubréf 13,4–8.
Bjarni Gíslason,
framkvæmdatjóri Hjálparstarfs kirkjunnar.
Framkvæmdastjóri: Bjarni Gíslason
Margt smátt …, 1. tbl. 32. árg. 2020
Ábyrgðarmaður: Kristín Ólafsdóttir
Myndir:
Hjálparstarf kirkjunnar og ACT Alliance
nema bls. 4: Kristinn Ingvarsson og bls. 7:
Hreinn Hákonarson og biskupsstofa.
Prentvinnsla:
Umbrot: Pipar\TBWA
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Styðjum hvert annað!
Bjarni Gíslason framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar
ÞÖKKUM STUÐNINGINN
2 – Margt smátt ...