Fréttablaðið - 04.04.2020, Side 29

Fréttablaðið - 04.04.2020, Side 29
Efnisleg aðstoð og aukinn sálrænn stuðningur á „fordæmalausum tímum“ Styðjum hvert annað! - gerast Hjálparliði á help.is - greiða valgreiðslu í heimabanka, 2400 krónur - hringja í söfnunarsíma 907 2002 og greiða 2500 krónur - leggja framlag inn á styrktarreikning 0334-26-50886, kt. 450670-0499 Hjálparstarf kirkjunnar veitir neyðar- aðstoð á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Við leitum nú til þín um stuðning við starfið. með þinni hjálp! Þú getur valið um að ... gerast Hjálparliði á help.is greiða valgreiðslu í heimabanka, 2.400 kr. hringja í söfnunarsíma 907 2002 og greiða 2.500 kr. leggja framlag inn á styrktarreikning 0334-26-50886, kt. 450670 0499 Kæru samlandar, þakka ykkur kærlega fyrir traust og stuðn- ing sem gerir okkur kleift að veita neyðaraðstoð þeim sem mest þurfa á aðstoð að halda nú á þessum „fordæmalausu tímum“ þegar við tökumst á við kórónuveiru og COVID-19. Hjálparstarf kirkjunnar heldur áfram neyðaraðstoð við fólk á Íslandi sem býr við fátækt með inneignarkortum fyrir matvöru og með milligöngu um að leysa út lyf. Við aðlögum starfið og þjón- ustuna eftir því sem aðstæður breytast í samfélaginu og undirbúum okkur fyrir aukinn fjölda umsókna um efnislega aðstoð á næstu vikum og mánuðum. Við höfum aukið þjónustu okkar símleiðis og á netinu en takmarkað samgang á skrifstofu. Félagsráðgjafar okkar finna að fólk sem býr við efnislegan skort er nú kvíðið og veita því sálrænan stuðning í auknum mæli einnig. Fólk sem er í viðkvæmri stöðu vegna kórónuveirunnar og COVID-19 bendum við á að hafa samband vegna aðstoðar í síma 528 4400 klukkan 10:00–15:30 virka daga. Fólki sem hefur leit- að eftir aðstoð hjá okkur og er með Arion-inneignarkort Hjálp- arstarfs kirkjunnar fyrir mat- vöru nú þegar, býðst nú að fylla út umsókn á heimasíðu okkar help.is. Félagsráðgjafar okkar hafa samband um aðstoð í framhaldinu. Í forvarnarskyni hefur Hjálp- arstarfið hins vegar ákveðið að fatamiðstöð verði ekki opin al- menningi meðan neyðarstig al- mannavarna vegna kórónu- veirunnar og COVID-19 varir. Á sama tíma höfum við ekki pláss til að taka við fatnaði heldur. Á síðasta starfsári veitti Hjálp- arstarf kirkjunnar 1.473 fjöl- skyldum efnislega aðstoð með inneignarkortum fyrir mat- vöru. Alls nutu 367 einstak- lingar aðstoðar við að leysa út lyfin sín og 495 einstaklingar og fjölskyldur komu til okkar eftir notuðum fatnaði. Þá er ótalinn sá stuðningur sem börn og unglingar hafa notið til að einangrast ekki félagslega sök- um fátæktar og stuðningur við ungmenni svo þau geti stundað nám óháð efnahag. Á alþjóðavettvangi höldum við áfram öflugu starfi í þágu fólks sem býr við erfið skilyrði í einna fátækustu samfélögum heims. Við sinnum starfinu með ykkar stuðningi. Kærar þakkir! Margt smátt ... – 3

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.