Fréttablaðið - 04.04.2020, Page 29
Efnisleg aðstoð og aukinn
sálrænn stuðningur á
„fordæmalausum tímum“
Styðjum hvert annað!
- gerast Hjálparliði á help.is
- greiða valgreiðslu í heimabanka, 2400 krónur
- hringja í söfnunarsíma 907 2002 og greiða 2500 krónur
- leggja framlag inn á styrktarreikning 0334-26-50886, kt. 450670-0499
Hjálparstarf kirkjunnar veitir neyðar-
aðstoð á Íslandi og á alþjóðavettvangi.
Við leitum nú til þín um stuðning við starfið.
með þinni hjálp!
Þú getur valið um að ...
gerast Hjálparliði á help.is
greiða valgreiðslu í heimabanka, 2.400 kr.
hringja í söfnunarsíma 907 2002 og greiða 2.500 kr.
leggja framlag inn á styrktarreikning 0334-26-50886, kt. 450670 0499
Kæru samlandar, þakka ykkur
kærlega fyrir traust og stuðn-
ing sem gerir okkur kleift að
veita neyðaraðstoð þeim sem
mest þurfa á aðstoð að halda
nú á þessum „fordæmalausu
tímum“ þegar við tökumst á við
kórónuveiru og COVID-19.
Hjálparstarf kirkjunnar heldur
áfram neyðaraðstoð við fólk á
Íslandi sem býr við fátækt með
inneignarkortum fyrir matvöru
og með milligöngu um að leysa
út lyf.
Við aðlögum starfið og þjón-
ustuna eftir því sem aðstæður
breytast í samfélaginu og
undirbúum okkur fyrir aukinn
fjölda umsókna um efnislega
aðstoð á næstu vikum og
mánuðum. Við höfum aukið
þjónustu okkar símleiðis og á
netinu en takmarkað samgang
á skrifstofu. Félagsráðgjafar
okkar finna að fólk sem býr við
efnislegan skort er nú kvíðið og
veita því sálrænan stuðning í
auknum mæli einnig.
Fólk sem er í viðkvæmri stöðu
vegna kórónuveirunnar og
COVID-19 bendum við á að hafa
samband vegna aðstoðar í síma
528 4400 klukkan 10:00–15:30
virka daga. Fólki sem hefur leit-
að eftir aðstoð hjá okkur og er
með Arion-inneignarkort Hjálp-
arstarfs kirkjunnar fyrir mat-
vöru nú þegar, býðst nú að fylla
út umsókn á heimasíðu okkar
help.is. Félagsráðgjafar okkar
hafa samband um aðstoð í
framhaldinu.
Í forvarnarskyni hefur Hjálp-
arstarfið hins vegar ákveðið að
fatamiðstöð verði ekki opin al-
menningi meðan neyðarstig al-
mannavarna vegna kórónu-
veirunnar og COVID-19 varir. Á
sama tíma höfum við ekki pláss
til að taka við fatnaði heldur.
Á síðasta starfsári veitti Hjálp-
arstarf kirkjunnar 1.473 fjöl-
skyldum efnislega aðstoð með
inneignarkortum fyrir mat-
vöru. Alls nutu 367 einstak-
lingar aðstoðar við að leysa út
lyfin sín og 495 einstaklingar
og fjölskyldur komu til okkar
eftir notuðum fatnaði. Þá er
ótalinn sá stuðningur sem börn
og unglingar hafa notið til að
einangrast ekki félagslega sök-
um fátæktar og stuðningur við
ungmenni svo þau geti stundað
nám óháð efnahag.
Á alþjóðavettvangi höldum við
áfram öflugu starfi í þágu fólks
sem býr við erfið skilyrði í einna
fátækustu samfélögum heims.
Við sinnum starfinu með ykkar
stuðningi.
Kærar þakkir!
Margt smátt ... – 3