Fréttablaðið - 04.04.2020, Síða 36

Fréttablaðið - 04.04.2020, Síða 36
Þjóðminjasafnið er lokað eins og öll söfn í núverandi ástandi sóttvarna og veiru- sýkinga. Það er þó ekki þar með sagt að engin starfsemi eigi sér stað innan veggja safnsins. „Við tókum okkur til nú á dögunum, endurbættum vefinn okkar og gerðum fræðsluefni aðgengilegra fyrir almenning sem getur þá heimsótt okkur á safnið á netinu,“ segir Jóhanna Bergmann, fræðslu- stjóri Þjóðminjasafnsins. Leiðsögn á veraldarvefnum fyrir fullorðna og börn Á vefnum kennir nú ýmissa grasa fyrir þá sem eru forvitnir um land og sögu þjóðarinnar. „Við munum reyna að setja inn nýtt efni á hverjum degi. Meðal annars verður styttri leiðsögn um grunn- sýningu Þjóðminjasafnsins fyrir fullorðna. Grunnsýningunni er skipt niður í sjö tímabil. Hvert innslag verður afmarkað hverju tímabili fyrir sig þar sem sérfræð- ingur fer um hluta sýningarinnar og segir frá. Þá er meðal annars væntanlegt innslag um sull, sem var alveg hrikalegt sníkjudýr sem olli miklum usla á sínum tíma. Einnig verða styttri 5-10 mínútna fræðslumyndbönd fyrir börn þar sem við munum kenna krökkum á sýninguna sem er nú uppi á Þjóðminjasafninu og draga fram ýmsa gullmola,“ segir Jóhanna. Hvernig í ósköpunum komst kókoshneta til Íslands? Nú þegar er mikið af áhugaverðu fræðslu- og skemmtiefni á vef Þjóðminjasafnsins sem gaman er að skoða heima fyrir. Eitt af því sem má finna á safnvefnum eru Beinin geyma nefnilega svo mikið um okkur og geta gefið vísbendingar um aldur einstaklingsins, kyn, næringu og hvort hann eða hún hafa verið haldin einhverjum sjúkdómum. Beinagrindur, sullaveiki og bikar úr kókoshnetu Stafræn leiðsögn um Þjóðminjasafn- ið styttir okkur stundirnar á meðan húsið er lokað í samkomubanni. Það kennir ýmissa grasa á grunnsýningu Þjóðminjasafnsins. Safnið var oftast nefnt Forngripasafnið fram til 1911 þegar það hlaut lög- formlega það nafn sem enn gildir í dag. Myndin er úr safneign safnsins. Jóhanna Ber- mann safn- fræðslufulltrúi, Hrafnhildur Eyjólfsdóttir safnkennari og Styrmir Þór Davíðsson, umsjónamaður fasteigna FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI tvö myndbönd af henni Röggu, sem er sjö ára sagnfræðiáhuga- kona. Þar segir hún áhorfendum frá uppáhaldsgripunum sínum á safninu. Í öðru myndbandinu segir hún okkur frá um það bil 500 ára gömlum bikar úr silfri og kókoshnetu og spyr: „Hvernig í ósköpunum komst kókoshneta til Íslands?“ „Hún Ragga er alger gullmoli og tengist einum starfs- manni safnsins nánum fjölskyldu- böndum. Hún á sér marga aðra uppáhaldsgripi og munum við birta f leiri myndbönd af henni í náinni framtíð.“ Starfsmenn Þjóðminjasafnsins virða tveggja metra regluna. Mun grafa upp beinagrind „Á mánudaginn munum við svo setja inn glænýtt myndband þar sem Joe Walser mannabeinafræð- ingur tekur fram eina af beina- grindum safnsins og segir okkur frá ýmsu sem hann getur dregið ályktanir af, einfaldlega með því að skoða hvert bein fyrir sig. Beinin geyma nefnilega svo mikið um okkur og geta gefið vísbend- ingar um aldur einstaklingsins, kyn, næringu og hvort hann eða hún hafa verið haldin einhverjum sjúkdómum og um aðstæður á þeim tíma sem einstaklingurinn var uppi.“ Það er ekki orðið ljóst hvaða beinagrind hann ætlar að skoða, því verður spennandi að sjá hvað Joe Walser getur lesið úr beinunum á mánudaginn. „Við búumst við því að þetta verði vin- sælt innslag á vefnum okkar enda er mikill áhugi hjá Íslendingum á tengdu efni eins og til dæmis sjónvarpsefni um réttarmeina- fræðinga.“ Við hvetjum lesendur til að skoða stafrænt fræðslu- og skemmtiefni á vef Þjóðminja- safnsins, en besta leiðin til að fylgjast með nýju efni er að fylgja Þjóðminjasafninu á Facebook. Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria@frettabladid.is LIÐVERKIR, STIRÐLEIKI EÐA BRAK Í LIÐUM? Mest selda liðbætiefni á Íslandi 2-3ja mánaða skammtur íhverju glasi 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . A P R Í L 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.