Fréttablaðið - 04.04.2020, Síða 40

Fréttablaðið - 04.04.2020, Síða 40
Forstöðumaður/Forstjóri NORDATLANTISK HUS og Det Grønlandske Hus í Odense óska eftir að ráða nýjan forstöðumann/forstjóra. Sjá auglýsingu nánar á: https://www.nordatlantiskhus.dk/ https://www.dgh-odense.dk/ Forstjóri Reykjalundar endurhæfingarmiðstöðvar SÍBS Starfsstjórn Reykjalundar auglýsir laust til umsóknar starf forstjóra Reykjalundar. Leitað er að öflugum einstaklingi í krefjandi stjórnunar- og leiðtogastarf þar sem reynir á samskiptahæfni, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð. Starfsstjórn ræður í starfið til fimm ára frá 1. júní 2020. Reykjalundur er heilbrigðisstofnun í eigu Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga (SÍBS) og vinnur samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Á Reykjalundi fer fram alhliða endurhæfing með það að markmiði að bæta lífsgæði, færni og sjálfsbjargargetu þeirra sem þangað leita. Um þjónustuna gildir þjónustusamningur milli Sjúkratrygg- inga Íslands og Reykjalundar. Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði kennslu heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Hjá Reykjalundi starfa 200 starfsmenn. Hlutverk og ábyrgðasvið Hlutverk forstjóra er að hafa forystu um að Reykjalundur sé í fararbroddi á sviði endurhæfingar á landsvísu. Forstjóri ber ábyrgð á að Reykjalundur starfi í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við þjónustusamning og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. Forstjóri starfar í samræmi við erindisbréf sem stjórn setur honum. Undir forstjóra heyra 4 framkvæmdastjórar sem mynda framkvæmdastjórn ásamt mannauðsstjóra sem hefur seturétt á framkvæmdastjórnarfundum. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun á heilbrigðissviði, framhaldsmenntun er kostur. • Leiðtogahæfileikar og farsæl reynsla af stjórnun og rekstri. • Þekking og reynsla af stjórnun í heilbrigðisþjónustu er kostur. • Þekking og reynsla af mannauðsmálum. • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum. • Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg. Hæfni umsækjenda verður metin í samræmi við menntunar- og hæfniskröfur. Starfsstjórn sem heilbrigðisráðherra skipaði 12.11.2019 ber ábyrgð á ráðningu nýs forstjóra skv. erindisbréfi. Viðtöl verða við þá einstaklinga sem uppfylla kröfur að mati starfsstjórnar. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningar- bréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Stefánsdóttir starfandi forstjóri Reykjalun- dar (anna@reykjalundur.is). Umsóknir skulu berast Guðbjörgu Gunnarsdóttur mannauðsstjóra, Reykjalundur, 270 Mosfells- bær eða á netfangið: gudbjorg@reykjalundur.is eigi síðar en 25. apríl nk. Öllum umsóknum verður svarað þegar starfsstjórn hefur tekið ákvörðun um ráðningu í starfið. ERT ÞÚ HJÚKRUNARFRÆÐINGUR SEM HEFUR ÁHUGA Á AÐ VINNA Í RANNSÓKN Á HEIMSVÍSU? Auglýst er eftir hjúkrunarfræðingi (e. study nurse/study coordinator) í fullt starf við vísindarannsóknina Blóðskimun til bjargar, skimunarrannsókn og lyfjarannsókn við Læknadeild Háskóla Íslands. Markmið hennar er að rannsaka árangur skimunar fyrir forstigi mergæxlis. Verkefnið er unnið í samstarfi við Háskóla Íslands, Landspítala, Krabbameinsfélag Íslands, Binding Site í Bretlandi, Memorial Sloan Kettering krabbameins- miðstöðina í New York og International Myeloma Foundation. Skimað er fyrir forstigi mergæxlis með blóðprufu og þeim einstaklingum sem greinast með forstig mergæxlis fylgt eftir í klínískri rannsókn. Þátttakendur eru kallaðir inn í frekari rannsóknir og fá eftirfylgd með reglubundnum hætti. Þeim sem greinast með mergæxli er hinsvegar boðið að taka þátt í lyfjarannsókn. Hjúkrunarfræðingar rannsóknarinnar koma bæði að uppvinnslu og eftirfylgd í skimunarrannsókn og uppvinnslu og meðferð í lyfjarannsókn. Starfið býður upp á einstaka innsýn og reynslu af rannsóknarvinnu og klínísku starfi. Helstu menntunar- og hæfniskröfur: • BS-gráða í hjúkrunarfræði, auk íslensks hjúkrunarleyfis • Reynsla af vinnu við vísindaverkefni er kostur • Þekking á good clinical practice (GCP) er kostur • Reynsla af hjúkrun krabbameinsveikra og krabbameins- lyfjagjöf er kostur • Reynsla af því að vinna í teymi • Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð • Framúrskarandi samskiptahæfni, nákvæmni, útsjónarsemi • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti • Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði Hægt er að sækja um og fá allar nánari upplýsingar á heimasíðu HÍ: http://www.hi.is/laus_storf Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2020 Lyfja leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í starf verkefnastjóra vöruvals. Við leitum að árangursdrifnum og lausnamiðuðum einstaklingi til að takast á við fjölbreytt og spennandi verkefni. Verkefnastjóri vöruvals hefur umsjón með vöruvali, innkaupum og sölu á lausasölulyfjum, heilsu- og sérvörum félagsins. HÆFNISKRÖFUR: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af vörustýringu á smásölumarkaði • Framúrskarandi samskiptahæfileikar og þjónustulund • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Góð íslensku- og enskukunnátta Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Lyfju, lyfja.is/störf. Nánari upplýsingar veitir Sigfríð Eik Arnardóttir sviðsstjóri vörusviðs, sigfrid@lyfja.is. VERKEFNASTJÓRI VÖRUVALS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.