Fréttablaðið - 04.04.2020, Síða 41
Verkefni og ábyrgð:
• Stjórnun og stefnumótun söludeildar Pfizer
• Samskipti við Pfizer í Danmörku
• Samstarf við heilbrigðisstarfsfólk
• Gerð og eftirfylgni sölu- og markaðsáætlana
• Kynning og sala á lyfjum
• Gerð kynningarefnis
• Myndun og viðhald viðskiptatengsla við heilbrigðisstarfsfólk
• Samskipti við aðra aðila í rekstrarumhverfinu til að knýja á um breytingar
sem eru verðmætar fyrir viðskiptavini og sjúklinga
• Greining og undirbúningur nýrra markaðstækifæra, innleiðing þeirra
og eftirfylgni
• Verkefnastjórn og þátttaka í útboðum í samstarfi við Pfizer í Danmörku
• Þátttaka í og skipulagning funda og ráðstefna hérlendis og erlendis
Um þig
Þú ert góður liðsfélagi og ert fær um að starfa í flóknu og þverfaglegu
umhverfi. Þú hefur góðan skilning á rekstrarumhverfi á sviði heilbrigðis-
og lyfjamála á Íslandi. Þér vex ekkert í augum, þú tekur frumkvæði og lýkur
verkefnum sem þú byrjar á. Þér veitist létt að eiga samskipti við annað
fólk, bæði viðskiptavini og samstarfsfólk og þú átt auðvelt með að tjá þig í
ræðu og riti.
Ennfremur þurfa umsækjendur að uppfylla eftirtaldar hæfnikröfur:
• Háskólamenntun í viðskiptum, heilbrigðisvísindum eða á öðru sviði
sem nýst getur í starfi
• Reynsla af markaðssetningu og sölu á heilbrigðisvörum eða lyfjum
• Góð greiningarhæfni og hæfni til að leggja fram niðurstöður og tillögur
með faglegum hætti
• Gott vald á íslensku og ensku
Icepharma er í fararbroddi á íslenskum heilbrigðis- og neytendamarkaði. Kjarninn í starfsemi okkar er að auka lífsgæði með
öflugu framboði af heilsueflandi vörum. Hjá fyrirtækinu starfa um 100 manns við sölu og markaðssetningu, sérfræðiráðgjöf og
þjónustu. Við leggjum áherslu á metnað, frumkvæði og svigrúm starfsfólks til að vaxa og þróast í starfi.
Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2020. Sótt er um starfið á ráðningarvef Icepharma: www.icepharma.is / Um Icepharma / Atvinna
Deildarstjóri á Lyfjasviði (Analytical Business Unit Lead)
Pfizer hjá Icepharma leitar að metnaðarfullum og
drífandi einstaklingi í spennandi starf á Lyfjasviði
Ert þú leiðtogi með reynslu af viðskiptum, heilbrigðisþjónustu og markaðsstörfum? Þá gætum við verið að leita að þér til að taka við nýju og spennandi
starfi sem deildarstjóri söludeildar Pfizer hjá Icepharma.
Pfizer er eitt af stærstu lyfjafyrirtækjum heims og býður upp á einna fjölbreyttast vöruúrval allra lyfjafyrirtækja. Starf deildarstjóra söludeildar Pfizer felst
í því að styrkja stöðu Pfizer á íslenskum lyfjamarkaði eftir þremur meginleiðum:
• Að leiða söludeild Pfizer hjá Icepharma, umboðsaðila Pfizer á Íslandi
• Að eiga samskipti við aðra aðila í rekstrarumhverfinu til að knýja á um breytingar sem eru verðmætar fyrir viðskiptavini og sjúklinga
• Að annast markaðssetningu og kynningu, þátttöku í útboðum og samskipti við hagsmunaaðila á tilteknum sjúkdómasviðum – einkum
á sviði bólgusjúkdóma og ónæmisfræði
Ennfremur munt þú taka þátt í verkefnum þvert á rekstrareiningar í nánu samstarfi við samstarfsfólk hjá Icepharma, Pfizer í Danmörku og öðrum löndum.
Um teymið
Í Pfizer teyminu á Íslandi starfa tveir viðskiptastjórar sem vinna að markaðssetningu og kynningu lyfja á tilteknum sjúkdómasviðum. Þú verður þriðji
meðlimur teymisins og tekur jafnframt við ábyrgðinni sem fylgir því að leiða daglegt starf þess.
Hvað bjóðum við þér?
Við bjóðum þér tækifæri til að vinna að því að íslenskir sjúklingar hafi aðgang að lyfjum Pfizer og þroska hæfileika þína í starfi með mikilli ábyrgð og
krefjandi verkefnum.
Við ábyrgjumst að samstarfsfólk þitt verður boðið og búið til að hjálpa þér að ná árangri og finnast þú vera á heimavelli, bæði hjá Pfizer og Icepharma.
Pfizer starfar um allan heim og getur því einnig boðið atvinnutækifæri utan Íslands. Ýmsir möguleikar eru á alþjóðlegu samstarfi og störfum erlendis í
lengri eða skemmri tíma.
Um Pfizer
Pfizer er lyfjafyrirtæki sem var stofnað í Bandaríkjunum árið 1849 og starfar um allan heim. Leiðarljós um það bil 90.000 starfsmanna fyrirtækisins er
að uppgötva nýjungar sem breyta lífi sjúklinga til hins betra. Það hvetur okkur til að ganga til starfa okkar á hverjum degi. Um allan heim vinnur starfsfólk
Pfizer saman að því að bæta heilsufar fólks, hvar sem það býr. Samhliða því að uppgötva nýjungar sem breyta lífi sjúklinga til hins betra leitum við stöðugt
að nýju samstarfsfólki.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bessi H. Jóhannesson, framkvæmdastjóri Lyfjasviðs Icepharma, bessi@icepharma.is. Einnig veitir upplýsingar Jakob
Pedersen, tengiliður fyrir Ísland hjá Pfizer í Danmörku, jakob.pedersen@pfizer.com.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá ásamt kynningarbréfi. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um störf hjá Icepharma.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og í samræmi við lög um meðferð persónuupplýsinga.