Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 43
Mennta- og menningarmálaráðuneytið
auglýsir eftir starfsmanni á skrifstofu
fjármála og rekstrar.
Nánari upplýsingar er að finna á vef
ráðuneytisins mrn.is
Umsóknarfrestur er til og með
20. apríl. 2020
Starfsmaður á skrifstofu
fjármála og rekstrar
Auglýst er laust til umsóknar embætti
forstjóra Menntamálastofnunar.
Nánari upplýsingar er að finna á vef
ráðuneytisins, mrn.is
Umsóknarfrestur er til og með
20. apríl 2020.
Embætti forstjóra
Menntamálastofnunar
Píanókennari / meðleikari
Blokkflautukennari
/ Suzuki-blokkflautukennari
Tónlistarskóli Árnesinga óskar eftir að ráða til starfa
píanókennara á Flúðum og í Reykholti í 75-100% í starf og
blokkflautukennara á Selfossi í um 75% starf, frá hausti 2020.
Menntun og eiginleikar:
• Tónlistarkennari III (samkv. kjarasam. FT/FÍH)
með hljóðfærakennarapróf eða aðra tónlistarmenntun
sem nýtist í starfi.
• Eigi gott með mannleg samskipti.
• Samviskusamur, skapandi og skipulagður.
Kennt er samkvæmt Aðalnámskrá tónlistarskóla.
Upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma 861-9687
eða aðstoðarskólastjóra í síma 864-1235.
Umsóknarfrestur er til 25. apríl 2020.
Senda má fyrirspurnir og umsóknir í tölvupósti til
helga@tonar.is eða joi@tonar.is.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu skólans
www.tonar.is
Tónlistarskóli Árnesinga er einn af stærstu tónlistarskólum landsins
með starfsemi á 11 kennslustöðum í Árnessýslu.
Fjöldi nemenda er um 600 og starfa um 30 kennarar við skólann.
SKÓLASTJÓRI FLATASKÓLA
Í GARÐABÆ
gardabaer.is
Garðabær auglýsir laust til umsóknar starf skólastjóra Flataskóla. Skólinn er heilsueflandi grænfánaskóli
með um 485 nemendur á aldrinum 4 - 12 ára.
Lögð er áhersla á öflugt og framsækið skólastarf með áherslu á samfellu í námi barna og samstarfi
milli skólastiga. Flataskóli er einn af fyrstu réttindaskólum UNICEF á Íslandi og vinnur markvisst með
Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Gildi skólans eru menntun, árangur og ánægja.
Í Garðabæ er lögð rík áhersla á sjálfstæði skóla, fjölbreytni og valfrelsi sem felst meðal annars í því
að foreldrar hafa fullt frelsi um val á skóla fyrir börn sín. Leik- og grunnskólar Garðabæjar skapa sér
sérstöðu í áherslum sínum til að koma sem best á móts við fjölbreyttar þarfir nemenda.
Skólastjóri tekur þátt í að móta metnaðarfullt skólasamfélag Garðabæjar með uppbyggilegum og
framsýnum hætti.
Helstu verkefni:
• Að vera faglegur leiðtogi
• Að bera faglega og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans, stjórna daglegri starfsemi og hafa forgöngu
um mótun og framgang stefnu skólans
• Að vinna náið með starfsfólki að því að skapa nútímalegt og frjótt námsumhverfi fyrir alla nemendur
• Að leiða og hvetja starfsfólk með það að markmiði að tryggja sem best vellíðan og árangur nemenda
og starfsmanna
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af kennslu
• Reynsla af starfsmannastjórnun og rekstri
• Framsækni og metnaður til að leita nýrra leiða í skólastarfi
• Góðir skipulagshæfileikar
• Lipurð og færni í samskiptum
• Áhugi og reynsla í að leiða þróunarstarf
• Sveigjanleiki og víðsýni
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá um störf umsækjanda, menntun, stjórnunarreynslu og verkefni
sem hann hefur unnið að og geta varpað ljósi á færni hans til að sinna starfi skólastjóra. Þá skal fylgja
umsókninni greinargerð um hugmyndir umsækjanda um starfið og hvernig hann sér Flataskóla þróast
undir sinni stjórn.
Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2020. Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2020.
Nánari upplýsingar um starfið veita Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs,
s. 525 8500, eirikurbjorn@gardabaer.is og Katrín Friðriksdóttir, grunn- og tónlistarskólafulltrúi,
s. 525 8500, katrinf@gardabaer.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar má finna á
ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
Launafulltrúar,
gjaldkerar,
þjónustufulltrúar
hagvangur.is
ATVINNUAUGLÝSINGAR 7 L AU G A R DAG U R 4 . A P R Í L 2 0 2 0