Fréttablaðið - 04.04.2020, Page 43

Fréttablaðið - 04.04.2020, Page 43
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir starfsmanni á skrifstofu fjármála og rekstrar. Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðuneytisins mrn.is Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl. 2020 Starfsmaður á skrifstofu fjármála og rekstrar Auglýst er laust til umsóknar embætti forstjóra Menntamálastofnunar. Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðuneytisins, mrn.is Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2020. Embætti forstjóra Menntamálastofnunar Píanókennari / meðleikari Blokkflautukennari / Suzuki-blokkflautukennari Tónlistarskóli Árnesinga óskar eftir að ráða til starfa píanókennara á Flúðum og í Reykholti í 75-100% í starf og blokkflautukennara á Selfossi í um 75% starf, frá hausti 2020. Menntun og eiginleikar: • Tónlistarkennari III (samkv. kjarasam. FT/FÍH) með hljóðfærakennarapróf eða aðra tónlistarmenntun sem nýtist í starfi. • Eigi gott með mannleg samskipti. • Samviskusamur, skapandi og skipulagður. Kennt er samkvæmt Aðalnámskrá tónlistarskóla. Upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma 861-9687 eða aðstoðarskólastjóra í síma 864-1235. Umsóknarfrestur er til 25. apríl 2020. Senda má fyrirspurnir og umsóknir í tölvupósti til helga@tonar.is eða joi@tonar.is. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu skólans www.tonar.is Tónlistarskóli Árnesinga er einn af stærstu tónlistarskólum landsins með starfsemi á 11 kennslustöðum í Árnessýslu. Fjöldi nemenda er um 600 og starfa um 30 kennarar við skólann. SKÓLASTJÓRI FLATASKÓLA Í GARÐABÆ gardabaer.is Garðabær auglýsir laust til umsóknar starf skólastjóra Flataskóla. Skólinn er heilsueflandi grænfánaskóli með um 485 nemendur á aldrinum 4 - 12 ára. Lögð er áhersla á öflugt og framsækið skólastarf með áherslu á samfellu í námi barna og samstarfi milli skólastiga. Flataskóli er einn af fyrstu réttindaskólum UNICEF á Íslandi og vinnur markvisst með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Gildi skólans eru menntun, árangur og ánægja. Í Garðabæ er lögð rík áhersla á sjálfstæði skóla, fjölbreytni og valfrelsi sem felst meðal annars í því að foreldrar hafa fullt frelsi um val á skóla fyrir börn sín. Leik- og grunnskólar Garðabæjar skapa sér sérstöðu í áherslum sínum til að koma sem best á móts við fjölbreyttar þarfir nemenda. Skólastjóri tekur þátt í að móta metnaðarfullt skólasamfélag Garðabæjar með uppbyggilegum og framsýnum hætti. Helstu verkefni: • Að vera faglegur leiðtogi • Að bera faglega og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans, stjórna daglegri starfsemi og hafa forgöngu um mótun og framgang stefnu skólans • Að vinna náið með starfsfólki að því að skapa nútímalegt og frjótt námsumhverfi fyrir alla nemendur • Að leiða og hvetja starfsfólk með það að markmiði að tryggja sem best vellíðan og árangur nemenda og starfsmanna Menntunar- og hæfniskröfur: • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af kennslu • Reynsla af starfsmannastjórnun og rekstri • Framsækni og metnaður til að leita nýrra leiða í skólastarfi • Góðir skipulagshæfileikar • Lipurð og færni í samskiptum • Áhugi og reynsla í að leiða þróunarstarf • Sveigjanleiki og víðsýni Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá um störf umsækjanda, menntun, stjórnunarreynslu og verkefni sem hann hefur unnið að og geta varpað ljósi á færni hans til að sinna starfi skólastjóra. Þá skal fylgja umsókninni greinargerð um hugmyndir umsækjanda um starfið og hvernig hann sér Flataskóla þróast undir sinni stjórn. Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2020. Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2020. Nánari upplýsingar um starfið veita Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, s. 525 8500, eirikurbjorn@gardabaer.is og Katrín Friðriksdóttir, grunn- og tónlistarskólafulltrúi, s. 525 8500, katrinf@gardabaer.is Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is Launafulltrúar, gjaldkerar, þjónustufulltrúar hagvangur.is ATVINNUAUGLÝSINGAR 7 L AU G A R DAG U R 4 . A P R Í L 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.