Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 44
Stjórnandi Skólahljómsveitar Vesturbæjar og Miðbæjar Skóla- og frístundasvið Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Skóla- og frístundasvið auglýsir stöðu stjórnanda Skólahljómsveitar Vesturbæjar og Miðbæjar lausa til umsóknar. Reykjavíkurborg rekur fjórar skólahljómsveitir sem starfa í Vesturbæ-Miðbæ, Árbæ-Breiðholti og Grafarvogi og heyra þær undir skóla- og frístundasvið. Skólahljómsveitir Reykjavíkurborgar starfa á grundvelli menntastefnu borgarinnar auk aðalnámskrár tónlistarskóla og eru í viðamiklu samstarfi sín á milli. Meginmarkmið þeirra er að jafna tækifæri nemenda til tónlistarnáms og stuðla að hæfni þeirra til að flytja, skapa og njóta tónlistar. Á sjötta hundrað nemenda stunda nám í skólahljómsveitunum og koma þeir fram á tónleikum hljómsveitanna og við fjölmörg önnur tækifæri sem tengjast starfsstöðum sviðsins. Auk þess taka þær virkan þátt í viðburðum í hverfum og víðar. Í Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar eru nemendur á grunnskólaaldri og aðsetur hljómsveitarinnar er í Vesturbæjarskóla. Starfið fer fram í þremur blásarasveitum og skiptast nemendur í þær eftir aldri og getu. Kennt er á málm- og tréblásturshljóðfæri sem leikið er á í hefðbundnum blásarasveitum, auk slagverks og rafbassa. Megináhersla er lögð á að undirbúa og styðja nemendur vegna þátttöku í hljómsveitarstarfi. Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur „Látum draumana rætast“ þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska. Nánari upplýsingar: www.menntastefna.is Leitað er að einstaklingi sem hefur kunnáttu og metnað til að leiða starf hljómsveitarinnar, vilja til að taka virkan þátt í öflugu sam- starfi skólahljómsveita, hefur sýnt árangur í störfum sínum, býr yfir leiðtogahæfileikum og hefur víðtæka þekkingu og reynslu á sviði tónlistarmenntunar barna. Umsókn fylgi greinargerð í stuttu máli um hugmyndir umsækjanda um gildi og framkvæmd skólahljómsveitarstarfs og möguleika á samstarfi við grenndarsamfélagið. Auk þess fylgi umsókn yfirlit yfir nám og fyrri störf, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað sem málið varðar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2020. Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl 2020. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf. Nánari upplýsingar veitir Sigfríður Björnsdóttir, deildarstjóri listfræðslu, sími 411-1111. Netfang: sigfridur.bjornsdottir@reykjavik.is Helstu verkefni og ábyrgð: • Ábyrgð á listrænni stjórnun og framkvæmd stefnu skóla- hljómsveita. • Móta stefnu og áherslur skólahljómsveita í samvinnu við stjórnendur. • Stjórn og ábyrgð á rekstri, skipulagi og daglegri starfsemi hljómsveitarinnar. • Ábyrgð á starfsmannamálum s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun. • Ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins. • Virk þátttaka í sameiginlegum verkefnum á skóla- og frístundasviði. • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk. Menntunar- og hæfnikröfur: • Lokapróf á blásturshljóðfæri eða önnur hljóðfæri sem kennt er á hjá skólahljómsveitum Reykjavíkurborgar. • Framhaldsmenntun æskileg. • Reynsla af stjórnun hljómsveita. • Reynsla af kennslu og vinnu með börnum og unglingum. • Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða. • Reynsla og þekking af rekstri og fjármálum æskileg. • Góð tækni- og tölvukunnátta. • Lipurð og hæfni í samskiptum. Þú ert ráðin/n! FAST Ráðningar Uppáhaldssetningin okkar hjá FAST ráðningum www.fastradningar.is         Skráðu fyrirtækið þitt á alfred.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.