Fréttablaðið - 04.04.2020, Síða 46
Skólastjóri Ölduselsskóla
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu skólastjóra við Ölduselsskóla.
Ölduselsskóli er heildstæður grunnskóli í Breiðholti með um 510 nemendur í 1.-10. bekk. Einkunnarorð skólans eru færni,
virðing og metnaður. Áhersla er lögð á að starfsmenn og nemendur sýni metnað í starfi, geri kröfur til sjálfs sín, leitist við
að bæta færni sína á sem flestum sviðum og beri virðingu fyrir sér, öðrum og umhverfinu. Skólastarfið einkennist af öflugri
kennslu í bóklegum og verklegum greinum, teymiskennslu og mikilli samvinnu kennara sem miðar að því að koma til móts við
ólíkar þarfir nemenda, styrkja samskipti innan nemendahópsins og skapa metnaðarfullt námsumhverfi án aðgreiningar.
Unnið er eftir Uppbyggingarstefnunni – Uppeldi til ábyrgðar og Olweusaráætlun gegn einelti. Ölduselsskóli tekur þátt í
þróunarverkefnunum „Heilsueflandi Breiðholt“ og „Læsi allra mál“. Skólinn státar af fjölmenningarlegu umhverfi og því að
vera símalaus skóli. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag með langa sögu.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari, greinargerð um framtíðarsýn
umsækjanda á skólastarfið, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2020.
Umsóknarfrestur er til og með 18. apríl 2020.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Skólastjórafélag Íslands. Umsækjendur
eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veita: Sigurlaug Hrund Svavarsdóttir, fagstjóri grunnskóla í skóla- og frístundadeild Breiðholts
(sigurlaug.hrund.svavarsdottir@reykjavik.is), sími 411-1300 og Ragnheiður E. Stefánsdóttir, mannauðsstjóri
(ragnheidur.e.stefansdottir@reykjavik.is), sími 411-1111.
Meginhlutverk skólastjóra er að:
• Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við
aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Reykjavíkurborgar til
ársins 2030 „Látum draumana rætast.“
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi
skólans.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
•: Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla
á grunnskólastigi.
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar
í skólastarfi.
• Stjórnunarhæfileikar.
• Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða
framsækna skólaþróun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
Sunnulækjarskóli
Við Sunnulækjarskóla á Selfossi eru lausar
stöður umsjónarkennara á yngsta- og miðstigi,
stærðfræðikennara á elsta stigi og staða kenn-
ara í hönnun og smíði frá og með næsta hausti.
Í skólanum eru um 720 nemendur og þar er lögð áhersla á sveigjan-
lega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám, teymis-
vinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem að
skólastarfinu koma. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi
Launanefndar Sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Starfið
hentar jafnt konum sem körlum.
Leitað er að umsækjendum með kennsluréttindi og sérhæfingu á
grunnskólastigi, áhuga og reynslu af teymiskennslu og góða sam-
skiptahæfni.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu skólans:
http://www.sunnulaekjarskoli.is og í tölvupósti: birgir@sunnulaek.is
Umsóknarfrestur er til 13. apríl 2020 en ráðið er í stöðurnar
frá 1. ágúst 2020.
Sækja þarf um stöðurnar á vef Sveitarfélagsins Árborgar,
http://starf.arborg.is.
Skólastjóri
Við erum alltaf með
bókara á skrá
hagvangur.is
10 ATVINNUAUGLÝSINGAR 4 . A P R Í L 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R