Fréttablaðið - 04.04.2020, Qupperneq 54
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Þetta eru ólíkir réttir en allir bragðgóðir og einfaldir í mat-reiðslu.
Taco-pottréttur
Þessi uppskrift er vinsæl hjá öllum
aldri. Þetta er dæmigerður föstu-
dagsréttur en má auðvitað vera
með á hverjum degi. Uppskriftin
miðast við fjóra.
400 g nautahakk
2 msk. maísolía
2 laukar
2 gulrætur
2 rauðar paprikur
2 hvítlauksrif
½ poki taco-krydd
1 dós hakkaðir tómatar
2 msk. tómatpuré
2 dl vatn
1 grænmetisteningur
1 dós niðursoðnar svartar baunir
4 msk. sýrður rjómi
1 lúka ferskt kóríander
2 vorlaukar
2 límónur
Tortilla-nasl
Hitið olíu og steikið hakkið. Setjið
hakkið í skál á meðan niðurskorið
grænmetið er steikt í olíu. Þegar
laukur og annað grænmeti er steikt
er hakkið sett aftur út í pottinn og
taco-kryddinu stráð yfir. Bætið þá
við tómötum, tómatpuré, vatni og
krafti og látið suðuna koma upp.
Látið malla í svolitla stund í viðbót
og bætið við vatni ef rétturinn er
of þykkur.
Skolið baunirnar og setjið saman
við. Bragðbætið með salti og pipar.
Skerið vorlaukinn og stráið honum
yfir áður en rétturinn er borinn
fram.
Berið réttinn fram rjúkandi
Kitlaðu
bragðlaukana
Vantar þig hugmyndir fyrir kvöld-
matinn? Hér eru nokkrar uppskriftir
sem ættu að gleðja bragðlaukana um
helgina eða bara á virkum dögum.
Taco-pottréttur
getur létt lund-
ina. Hægt er að
bæta út í réttinn
uppáhalds-
grænmetinu.
Vínarsnitsel er
þjóðarréttur í
Austurríki. Það
er þó einnig
mikið borðað
á Ítalíu en þar
heitir rétturinn
Milanese.
Kjúklingur í karríi með sætum kartöflum.
heitan með sýrðum rjóma, fersku
kóríander, límónubátum og nasl-
inu til hliðar. Gott brauð passar
líka vel með þessum rétti eða hrís-
grjón en það er ekki nauðsynlegt.
Kjúklingur í karríi með
sætkartöflum
Þetta er mjög góður réttur sem
hefur innblástur frá Karíbahafi.
Uppskriftin miðast við fjóra.
500 g úrbeinuð kjúklingalæri
1 laukur
3 hvítlauksrif
50 g ferskt engifer
1 rauður chilipipar
3 msk. tómatpuré
1 msk. kóríanderduft
1 msk. cumin
½ dl ólífuolía
4 dl kókosmjólk
2 dl kjúklingasoð
700 g sætar kartöflur
1 tsk. salt
½ tsk. pipar
200 g strengjabaunir
Fersk minta og ferskt kóríander
Setjið lauk, hvítlauk, engifer og
chili í matvinnsluvél og maukið
saman með tómatpuré, kóríander,
cumin og olíu.
Skerið kjúklinginn í bita. Hitið
barmháa pönnu og setjið krydd-
maukið út á. Steikið og hrærið
í þrjár mínútur. Bætið því næst
kjúklingabitunum við og steikið
áfram í þrjár mínútur eða þar til
þeir fá lit. Þá fer kókosmjólkin
saman við ásamt kjúklingasoði.
Látið suðuna koma upp og látið
malla í fimm mínútur.
Skerið kartöflurnar í litla bita og
setjið út í réttinn. Sjóðið áfram í tíu
mínútur eða þangað til kartöfl-
urnar verða mjúkar. Hrærið af og
til, bragðbætið með salti og pipar.
Loks eru baunirnar settar saman
við ásamt mintu og kóríander.
Berið réttinn fram með góðu
brauði.
Vínarsnitsel
Vínarsnitsel er alltaf mjög gott. Það
er gert með þunnum sneiðum af
kálfakjöti sem eru settar í hveiti,
egg og brauðrasp. Vínarsnitsel er
oft borið fram með frönskum eða
soðnum kartöflum og stundum
majónessósu. Uppskriftin miðast
við fjóra.
800 g gott kálfakjöt
1 tsk. salt
½ tsk. nýmalaður pipar
4 egg
5 dl hveiti
3 msk. smjör til að steikja upp úr
3 msk. olía
Sítrónubátar
Skerið kjötið í fjórar sneiðar og
berjið það niður í um það bil 5
cm þykkt. Bragðbætið með salti
og pipar á báðum hliðum. Setjið
hveiti í eina skál, hrærð egg í aðra
og brauðrasp í þá þriðju. Setjið
bökunarpappír á ofnplötu.
Leggið kjötið fyrst í hveiti,
síðan eggið og loks allt í raspinn.
Leggið á pappírinn. Hitið pönnu
og setjið fyrst um það bil einn
fjórða af smjörinu og olíu. Steikið
tvær sneiðar í einu þar til þær eru
orðnar gullinbrúnar. Leggið aftur
á bökunarpappír á meðan hinar
tvær eru steiktar. Hafið hita á
ofninum og geymið kjötið þar inni
á meðan meðlæti er gert klárt. Það
gæti verið baunir eða hrásalat eftir
smekk hvers og eins.
Majónes með sólþurrkuðum
tómötum
Þessi kalda sósa gengur vel með
vínarsnitseli en einnig með alls
kyns fiski. Majónes er gert frá
grunni en vitaskuld má nota til-
búið úr búðinni.
2 eggjarauður
½ tsk. salt
1½ msk. sítrónusafi eða
hvítvínsedik
4 dl olía, um það bil
¼ tsk. nýmalaður pipar
¼ kajennpipar
1 hvítlauksrif
8 sólþurrkaðir tómatar í olíu
1 msk. tómatpuré
½ tsk. sykur
Þeytið eggjarauður með saltinu
þar til þær verða ljósar og þykkar.
Bætið þá kryddi og sítrónusafa
saman við. Þeytið áfram og látið
olíuna saman við í mjórri bunu
hægt og rólega þar til majónesið
verður nægilega þykkt.
Hakkið hvítlauk og sólþurrkaða
tómata í blandara og setjið síðan
saman við majónesið. Bragðbætið
með sykri, salti, pipar og kajenn-
pipar ásamt sítrónusafa.
Astaxanthin
Eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar
Astaxanthin frá Algalíf er 100% náttúrulegt
hágæða bætiefni, framleitt á sjálfbæran hátt
við kjöraðstæður sem tryggja að innhaldið skili
sér til neytenda.
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir, Costco og flestum stórmörkuðum.
n Rannsóknir sýna að Astaxanthin er allt að 6000 sinnum
sterkara andoxunarefni en C vítamín.
n Náttúrulegasta og hreinasta uppspretta astaxanthins
finnst í smáþörungum sem kallast Haematococcus
pluvialis, en þeir framleiða þetta sem varnarefni gegn
erfiðum aðstæðum í umhverfinu?
Styrktu ónæmiskerfið með Astaxanthin!*
* Park JS et al. Nutr Metab. 2010;7:18.
TILBOÐ
2 fyrir 1
í apríl
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . A P R Í L 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R