Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 59

Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 59
Ashraf - leggðu nafnið á minnið! Draumar krakkanna í fátækrahverfunum í Kampala virðast ekki stórir – þau dreymir um að lifa því sem við köllum venjulegu lífi. Námið í smiðjum UYDEL og Hjálparstarfs kirkjunnar gefur þeim tækifæri til að láta þennan hófstillta draum sinn rætast. UYDEL getur rekið smiðjurnar vegna þess að hjartahlýtt fólk á Íslandi vill gefa unglingunum þetta tækifæri! Kærar þakkir fyrir það! Ashraf með ömmu sinni við saumavélina. Frænka Ashraf sýnir kjólinn sem hann hannaði og saumaði. Saga Ashraf sem er 19 ára gamall er saga sigurvegara. Hann býr hjá ömmu sinni ásamt yngri systur í fátækrahverfi í Kampala. Ashraf gat ekki haldið áfram í framhaldsskóla sökum efnaleysis en sagði að í smiðju UYDEL og Hjálparstarfs kirkjunnar hefði hann fengið tækifæri til að elta draum sinn um að verða dag einn frægur fatahönnuður. Ashraf útskrifaðist með hæstu einkunn úr smiðjunni snemma vors 2019 og í verðlaun fékk hann saumavél sem hann notar við vinnu sína heima við. Í maí 2019 var hann líka orðinn vinsæll kennari UYDEL í fatahönnun og sauma- skaup. Ekki nóg með það heldur stjórnar hann einnig trumbuslætti undir hefð- bundnum dansi og sinnir jafningja- fræðslu um lífsleikni og kynheilbrigði. Heima hjá sér klæðskerasaumar Ashraf fyrir fólk en segist vilja byrja smátt og rukka ekki of háu verði fyrir vinnu sína heldur byggja upp kúnnahóp og verða þekktur fyrir gæði og gott verð. Fötin sem hann klæðist á myndunum hannaði hann og saumaði sjálfur. Á myndinni hér að ofan(til hægri) sýnir frænka Ashraf kjól sem hann hannaði og saumaði. Hann tók skýrt fram að kjóllinn færi betur konunni sem hefði pantað hann enda sniðinn á hana en ekki frænk- una. Alls staðar þar sem fulltrúar Hjálp- arstarfsins fóru um með Ashraf í maí 2019 var augljóst að hann er leiðtogi í eigin lífi og mikil fyrirmynd annarra unglinga í hverfinu sem hann býr í. Hver veit nema flíkur hans verði á forsíðu Vogue einn daginn! Í smiðjum UYDEL og Hjálparstarfs kirkjunnar í Kampala starfa félags- ráðgjafar með unglingum sem hafa ekki getað haldið áfram í skóla sökum fátæktar og búa við ömurlegar aðstæður. Markmiðið er að hjálpa börnum og ungmennum á aldrinum 13–24 ára með því að bjóða þeim upp á ársnám í iðngrein sem þau geta svo notað til að sjá fyrir sér. Líka að unglingarnir taki þátt í uppbyggilegum tómstundum og námskeiðum sem styrkja sjálfsmyndina. Í jafningafræðslu eru unglingarnir upplýstir um kynheilbrigði og rétt sinn til heilbrigðisþjónustu. Í Úganda verða stelpur gjarnan mæður mjög ungar en með fræðslu til bæði stelpnanna og ekki síður til strákanna, meðal annars um notkun smokka, fá þær tækifæri til að fresta barneignum. Unglingarnir fá smokka í smiðjunum en notkun þeirra kemur einnig í veg fyrir smit kynsjúk- dóma. Í smiðjunum er boðið upp á nám í tölvu- og farsímaviðgerðum, rafvirkjun, fatasaumi og fataprjóni, töskugerð, sápugerð, hárgreiðslu og förðun, eldamennsku og þjónastarfi. Skipulagið er yfirleitt þannig að kennsla í iðngrein- um er fyrir hádegi en boðið er upp á söng, íþróttir og jafningjafræðslu eftir hádegi. Eftir ársnám hafa unglingarnir lært það mikið að þeir geta komist í starfsnám í fyrirtækjum eða komið sér upp eigin sölu- eða viðgerðarbásum. Félagsráðgjafar UYDEL hafa milligöngu um starfsnámið og fylgja krökkunum eftir og athuga hvernig þeim reiðir af eftir námið. Samkvæmt könnun félagsráðgjafa UYDEL meðal unglinga sem höfðu stundað nám í smiðjunum námsárið 2017–2018 voru 63% þeirra sem fóru í starfsþjálfun komin í launað starf árið 2019, 21% höfðu hafið eigin rekstur en 16% voru enn án vinnu. Ashraf, Bjarni Gíslason og starfsfólk UYDEL á leið um fátækrahverfi í Kampala. Margt smátt ... – 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.