Fréttablaðið - 04.04.2020, Qupperneq 68
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýjar kveðjur vegna
andláts elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Eggerts Snorra Magnússonar
húsasmíðameistara,
Strikinu 12, Garðabæ.
Hrefna Lárusdóttir
Valur Valdimarsson
Páll Ármann Eggertsson Kristín Hauksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát
og útför okkar ástkæru
Þórdísar Steinunnar
Sveinsdóttur
Sólvangi,
áður Smárahvammi 4, Hafnarfirði.
Ingibjörg Jónsdóttir Guðmundur Rúnar Árnason
Sigurður Jónsson Helga Arna Guðjónsdóttir
Tryggvi Jónsson Guðrún Elva Sverrisdóttir
Bryndís Magnúsdóttir Úlfar Hinriksson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigurveig Guðmundsdóttir
Gaukshólum 2, Reykjavík,
lést á LSH þann 29. mars síðastliðinn.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Sigrún Erla Þorleifsdóttir Jörundur Jónsson
Sædís Guðríður Þorleifsdóttir
Aðalheiður Ósk Þorleifsdóttir Þorsteinn Adamsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Í útvarpsprédikun síðasta sunnudag talaði Jóhanna María Eyjólfsdóttir, djákni í Áskirkju í Reykjavík, svo sterkt inn í þær aðstæður sem nú eru í heim-inum að eftirtekt vakti. Þegar ég segi henni að það sé í fyrsta sinn sem ég
heyri djákna prédika í guðsþjónustu svarar
hún glaðlega: „Já, þú verður að spyrja sóknar-
prestinn, hann Sigurð Jónsson, af hverju hann
treysti mér til þess. En ég er honum afar þakk-
lát fyrir tækifærið sem beinir líka sjónum að
djáknum í kirkjunni og hlutverki þeirra,“
segir hún og kveðst hafa sterka skoðun á hlut-
verki kirkjunnar í samfélaginu. „Kristin sið-
fræði segir okkur að lifa í sátt við náttúruna,
hlúa að náunganum og að allir séu jafnir. Jesús
lét sig jaðarhópa samfélags þess tíma varða og
eins á kirkjan að gera. Hún á að beita sér í mál-
efnum allra þeirra sem minna mega sín.“
Jóhanna María hóf störf við Áskirkju
1. nóvember 2019. Hún ber ábyrgð á
sunnudagaskólanum og sinnir þeim sem
komnir eru á efri ár. Nú hringir hún í þá
sem að jafnaði mæta í eldri borgara starfið í
Áskirkju og fólk sem dvelur í þjónustuíbúðum
aldraðra á Dalbraut og Norðurbrún. „Að öllu
jöfnu er ég með samverustundir með þessu
fólki vikulega en get ekki hitt það núna, vegna
einangrunarinnar, og það er af leitt fyrir
okkur öll,“ segir hún. Séra Sigurður þjónar
á þessum stöðum líka, auk Skjóls, svo við
þekkjum marga eldri borgara og þeir hafa
mikið að gefa. Svo erum við í margs konar
sálgæslu þar fyrir utan. Fólk getur alltaf
hringt í okkur eða droppað inn og fengið
áheyrn, til þess erum við.“ Síðustu vikur
hefur Áskirkja streymt lestri passíusálmanna
gegnum askirkja.is og Fésbókarsíðu og
pálmasunnudagsmessan er send þar út líka.
Úr eðalárgangi í Eyjum
Jóhanna María er Vestmanneyingur í
grunninn. „Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn
og Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari
voru bekkjarbræður mínir. Ég heyrði Heimi
hrósa Víði í þættinum Ísland í bítið og bætti
við að þeir hefðu verið í eðalárgangi – við hin
erum ægilega stolt!“ Sextán ára f lutti hún
til Reykjavíkur og fór í Verslunarskólann.
„Mig langaði að verða annað hvort leikari
eða fréttamaður og sótti um í fjölmiðlafræði
við bandarískan háskóla en þá varð ég
ástfangin og hætti við. Fór í sagnfræði við
HÍ, tók fjölmiðlafræði sem aukagrein og var
ritstjóri Stúdentablaðsins í eitt ár.“ Spurð
hvort trúin hafi alltaf fylgt henni svarar
hún: „Ég er alin upp í kaþólskri trú. Var í
einu kaþólsku fjölskyldunni í Eyjum, sótti
fermingarfræðslu til Reykjavíkur og fermdist
í Landakoti, í sama hópi og Guðni forseti. Átta
ára gömul gekk ég til prests í Reykjavík og tók
altarissakramentið. Trúlega lagði þetta grunn
að því sem lífið síðan leiddi mig í. Ég er ekki
bókstafstrúarmanneskja en hef heldur aldrei
falið að ég væri trúuð, ólíkt mörgum, það þykir
ekki flott í dag að vera kristin, því miður. Ég
segi „sókn er besta vörnin“ og vil sýna fram á
að kristinn boðskapur er grunnur að góðu og
gefandi samfélagi og ekkert frábrugðinn því
sem við höfum til grundvallar í heimspeki og
ýmsum öðrum trúarbrögðum.“
Hugmyndir kaþólskunnar og Jóhönnu
Maríu fóru ekki alltaf saman, til dæmis í
jafnréttismálum, sem varð til þess að 28 ára
gömul gerðist hún lúterstrúar. „Ég gifti mig
í lúterskri kirkju og synir mínir voru skírðir
þar en er samt þakklát fyrir minn kaþólska
arf. Aðalatriðið er að við erum öll saman
á þessari jörð, hvaða trúarbrögð sem við
aðhyllumst. Nunnurnar í Karmelklaustrinu
eru góðar vinkonur mínar sem ég heimsæki
reglulega. Þær samglöddust mér innilega
þegar ég vígðist, verst að þær máttu ekki vera
viðstaddar í Dómkirkjunni, reglan þeirra
leyfir ekki samgang úti á meðal fólks.
Jóhanna María og synir hennar urðu fyrir
þeirri raun að missa föður drengjanna fyrir
átta árum. „Hann var fyrrverandi maðurinn
minn þegar hann lést, við höfðum verið skilin
í fjögur ár en áttum 20 ár saman. Hann háði
áralanga baráttu við geðræn veikindi og tók
líf sitt. Það var mikill harmur. Ég hef beitt mér
í sjálfsvígsforvörnum í kjölfarið á því, var
formaður Píetasamtakanna. Áður hafði ég
verið formaður klúbbsins Geysis og beitt mér
í geðverndarmálum. Hjá Píeta lagði ég ríka
áherslu á að opna umræðuna um sjálfsvíg. Að
orða hlutina og fara ekki í felur með þá. Það
dregur úr sektarkennd og hjálpar ástvinum að
lifa með missi sem þessum, sem óneitanlega
vekur oft og tíðum upp spurningar sem
enginn mun geta veitt svör við.“
Eins og djákninn á Myrká?
Frá 25 ára aldri til liðlega 45 vann Jóhanna
María tvisvar á RÚV, með millibili og tvívegis
hjá menntamálaráðuneytinu. „Hliðarskrefið
mitt var pólitík, ég er ekkert alltaf að flagga
því en það gaf mér reynslu sem ég bý að. Í
ráðuneytinu leiddi ég eineltisverkefni og
heilsuef lingu í framhaldsskólum, meðal
annars geðrækt. Það styrkti áhuga minn á
litrófi mannlífsins. Mér var sagt upp 2014
vegna hagræðingaraðgerða. Var að verða 47
ára og langaði að vinna að velferðarmálum.
Þá fór ég að kynna mér djáknastarfið. Djákni
vinnur við kærleiks- og líknarþjónustu og ég
hugsaði: Þarna gætu kannski kraftar mínir
og persónuleg reynsla nýst, auk áhuga míns
á að láta gott af mér leiða og skráði mig því
í guðfræðideildina. Þegar ég sagði sonum
mínum að ég ætlaði í skóla aftur spurði sá
yngri, níu ára: Hvað ætlar þú að gera í skóla,
ertu ekki búin að fara í háskóla? „Jú, en núna
ætla ég í djáknanám.“ Drengurinn hvítnaði í
framan og sagði: „Ætlarðu þá að verða eins og
djákninn á Myrká?“
Auk djáknanámsins fór Jóhanna María í
uppeldis- og menntunarfræði. „Hugur
minn stóð svo til að fara í sálgæslunám til
Bandaríkjanna því mig langaði að verða
sjúkrahúsdjákni, þá settu eigin veikindi strik
í reikninginn. Ég varð að hætta við og fór
þess í stað að vinna á útfararstofu. Svo leiddi
lífið mig inn í Áskirkju. En ég starfa líka hjá
menntasviði Kópavogs að stuðningsþjónustu
í grunnskólunum fyrir börn og ungmenni
sem líður ekki vel,“ lýsir hún og segir þessi tvö
störf tengjast fallega. „Ég finn það skýrt núna,
í þessu ástandi, hvað unga kynslóðin saknar
ömmu og afa og líka hvað eldri kynslóðinni
finnst ánægjulegt að heyra í barnabörnunum.“
Jóhanna María bendir á að það að hjálpa
náunganum sé meðal þess sem kristin trú
boðar. „Ég hef lent í talsverðum mótbyr á
lífsleiðinni, eins og margir, en öll reynsla,
hvort sem hún er góð eða slæm getur orðið
manni til góðs, ef maður ber gæfu til að vinna
rétt úr henni og þiggja þá hjálp sem þarf.“
gun@frettabladid.is
Hef aldrei falið að ég væri trúuð
Jóhanna María Eyjólfsdóttir vígðist í byrjun mars sem djákni til þjónustu í Áskirkju og fullyrða má að hún hafi byrjað feril sinn
með stæl er hún messaði yfir alþjóð um síðastliðna helgi. Hún vill láta gott af sér leiða með því að styðja fólk og ljá því eyra.
„Fólk getur alltaf hringt í okkur eða droppað inn og fengið áheyrn,“ segir Jóhanna María Eyjólfsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ég finn það skýrt núna, í þessu
ástandi, hvað unga kynslóðin
saknar ömmu og afa og líka hvað
eldri kynslóðinni finnst ánægjulegt
að heyra í barnabörnunum.
4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT