Fréttablaðið - 04.04.2020, Side 74

Fréttablaðið - 04.04.2020, Side 74
Listaverkið Hún heitir Guðrún Ýr Eyfjörð og er  vel þekkt sem tónlistarkonan GDRN. Byrjaðir þú snemma að syngja Guðrún? Ég söng mikið sem krakki, svo varð ég feimnari og fór ekki að syngja aftur fyrr en ég var komin í menntaskóla. En ég spilaði á fiðlu, meðal annars á tónleikum. Hvenær vak naði söng konu- draumurinn? Þegar að ég fór að semja tónlist, 19 ára gömul. Hafði sett stefnu á læknisfræði en söng- ferillinn fór á f lug og ég fann að þar lá ástríða mín og áhugi. Ég get alltaf farið í háskóla og unnið aðra vinnu síðar. Hvenær söngst þú fyrst opinber- lega? Árið 2017 á tónleikum sem hétu Vakan og voru í Valshöllinni í beinni útsendingu. Ég var rosa stressuð en fannst ég samt ótrú- lega heppin. Ég fæ enn smá fiðrildi í magann fyrir hverja tónleika. Áttu f leiri áhugamál? Já, lestur, útiveru, fjallgöngur og ferðir um Ísland. Hvernig ertu í tölvuleikjum? Ekki góð en finnst ótrúlega gaman að spila þá samt sem áður. Varstu í íþróttum sem barn? Ég prófaði frjálsar og fannst þær skemmtilegar. Svo var ég hörku- dugleg í fótbolta og var farin að spila með meistaraflokki Aftureldingar bara 15 ára. Ætlaði að verða fót- boltastjarna, f lytja til Bandaríkj- anna í High school og fá að spila þar. Þá slasaðist ég á hné og sá draumur var úti. En þegar tækifæri renna frá manni verður maður að treysta því að önnur og betri komi seinna! Finnst þér gaman að fara í stóru rennibrautirnar í laugunum? Jahá, lang skemmtilegast! Ertu dýravinur? Þegar ég var lítil fann ég oft dýr sem mig langaði að hjálpa. Kom með fuglsunga heim og lirfur. Fann býflugu sem var eitt- hvað slöpp. Það var rigning svo ég ákvað að búa til skjól fyrir hana úr stórum rabarbaralaufum. Svo stökk ég heim og náði í hunang og reyndi að mata hana. Meðan ég reyndi að hressa hana við notaði ég sjálf annað rabarbaralauf sem regnhlíf. Eftir að hafa setið þarna heillengi hætti loks að rigna. Býflugan fór þá öll að hressast og ákvað að þakka fyrir sig með því að stinga mig og fljúga svo í burtu. Ég ákvað að vera ekkert að bjarga f leiri býf lugum, fannst þær ekki kunna að meta það, nefnilega. Reyndi að mata flugu með hunangi „Söngferillinn fór á flug og ég fann að þar lá ástríða mín.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ÆTLAÐI AÐ VERÐA FÓTBOLTASTJARNA, FLYTJA TIL BANDARÍKJANNA Í HIGH SCHOOL OG FÁ AÐ SPILA ÞAR. ÞÁ SLASAÐIST ÉG Á HNÉ OG SÁ DRAUMUR VAR ÚTI. EN ÞEGAR TÆKIFÆRI RENNA FRÁ MANNI VERÐUR MAÐUR AÐ TREYSTA ÞVÍ AÐ ÖNNUR OG BETRI KOMI SEINNA! Þessa skemmti- legu mynd fengum við senda fyrir fjórum árum og birtum hana nú aftur. Hún á að minna ykkur á það, börnin góð, að okkur vantar myndir frá ykkur. 1. Hvaða garður er alltaf blautur? 2. Hvaða blað er ekki hægt að rífa? 3. Hvað er það sem brosir við öllum en hlær þó ekki að neinum? 4. Stundum hef ég höfuð, stundum ekki, stundum er ég með tagl en stundum ekki. Hver er ég? 5. Hvað er það sem er hnöttótt eins og egg, hefur fjölda augna en er þó sjónlaust? Gátur SVÖR 1. Tanngarður. 2. Hnífsblað. 3. Sólin. 4. Hárkolla. 5. Kartafla. „Klukka!“ Sagði Kata hneyksluð. „Annaðhvort kann maður á klukku eða ekki, hér hlýtur einhver vitleysa að vera á ferðinni.“ „Kannski er klukkan vitlaus,“ sagði Konráð í lágum hljóðum og það tísti í honum. „Ég heyrði þetta,“ sagði Kata byrst. „Enga útúrsnúninga hér, hver er þrautin Lísaloppa?“ bætti hún við og leit á Lísuloppu. „Hér stendur,“ sagði Lísaloppa. „Hvað er það sem er einu sinni í hverri mínútu, tvisvar í hverjum klukkutíma en aldrei í milljón ár?“ Hún leit upp frá lestrinum og horfði spyrjandi á Konráð og Kötu. Núna var jafnvel Lísaloppa steinhissa sem ekki gerðist oˆ. Þau þögðu öll og horfðu á klukkuna. „Heyrðu nú mig,“ sagði Kata reiðilega. „Þetta klukkuskriŠi getur alveg sýnt okkur mínútur og klukkutíma en ekki milljón ár,“ bætti hún við hneyksluð. Konráð á ferð og ugi og félagar 398 Hvað skildi það nú geta verið? ? ? ?„Það er verið að hafa okkur að fíŠum eins og venjulega.“ Lísaloppa leit af klukkunni og á Kötu. „Kannski er það eitthvað annað sem við eigum að leita að,“ sagði hún hugsi. „Hu!“ rumdi í Kötu. „Sem ég segi, alltaf verið að plata mann,“ sagði hún með þjósti. „Allt í lagi, allt í lagi,“ bætti hún við en var augljóslega enn þá mjög fúl. „Miljón ár, hvað er ekki í miljón ár, en einu sinni í mínútu og tvisvar í klukkutíma, komumst þá að því. Svona nú, hvað er það?“ Lausn á gátunni Það er bókstafurinn u? 4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð KRAKKAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.