Fréttablaðið - 04.04.2020, Síða 82

Fréttablaðið - 04.04.2020, Síða 82
sjávarsalti með 4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R46 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ Gunnar Jónsson, tónlistarmaður og textahöfundur Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir, texta- og hugmyndasmiður Mariah Carey Sem gallharður meðlimur Lambily, sem er sértrúar- söfnuður sem snýst um dáð og snilli Mariah, er þetta augljóst val. Enginn kemst með tærnar þar sem hún hefur hælana varðandi listsköpun, lagasmíð, persónu- leikatöfra og raddsvið sem nær yfir fimm áttundir. Megan Thee Stallion Textasmíði, flæði og óstýrilátur kynþokki. Það er stjarnfræðilega séð ómögulegt að verða ekki fyrir áhrifum frá Hot Girl Meg. John Maus Heimspekidoktor og syntha- smiður. Hann lýsir pólitískri stöðu sinni sem „left of left of left of left“, en það skín í gegn í texta- smíðum hans við miðaldaskotið syntha-popp. Serge Gainsbourg Serge, listamaðurinn sem ég hef alla tíð snobbað takmarkalaust fyrir, og á þess á milli í siðferðis- legum átökum innra með mér yfir vafasamri hegðun hans. Burtséð frá því að syngja sifjaspellsóð til dóttur sinnar, eða að vanvirða Whitney Houston í beinni út- sendingu, þá verður hann alltaf mitt „próblematíska“ uppáhald. Pabllo Vittar Það er kalt mat mitt að kontra- tenórar og dragdrottningar eru fallegustu listform jarðar. Þannig að þegar ég kynntist hinni brasilísku Pabllo Vittar fékk ég vitaskuld slag fyrir hjartað. Inner City Tælandi rödd Paris Grey í bland við pródúseringar Kevin Saunder- son, en Kevin er talinn vera guð- faðir Detroit teknósins. Ég treð hitturum þeirra óforskammað í nánast öll DJ-settin mín. Cecilia Bartoli Talandi um kontratenóra, þá er algjör skylda að minnast á safaríkan hljómblæ kólóratúr- mezzosópransins Ceciliu Bartoli, sem hefur hvað mest fengist við barokktúlkun á sínum ferli. Á nýjustu plötu hennar „Farinelli“ ögrar Cecilia kynjahlutverkum klassíska heimsins og tekur fyrir geldingaverk eftir tónskáldið Farinelli. Countess Malaise Skærasta von Íslands, hún er ein- stök trappstjarna og algjörlega á undan sinni samtíð. Sister Sledge Katalógur Sledge systranna er hreint út sagt goðsagnakenndur, þar af margt unnið með hinum eina sanna Nile Rodgers. Per- sónulega getið þið alveg eins gleymt „We are family” og hinum hitturunum, gullmolarnir leynast á milli þilja. Future „Auto-tune“ verður að hámenningu í höndum Future. Glerhart Atlanta trapp í bland við melankólískan leirburð Future, sem angar oft af kódíni. Melkorka Þorkelsdóttir, plötusnúður 2001: A Space Odyssey Hvað get ég sagt? Ég treysti ekki kvikmyndalistum þar sem 2001 er ekki í topp þremur sætunum. Þetta er einfaldlega eitt besta og metnað- arfyllsta verk kvik- myndasögunnar. Ef þú fílar hana ekki þá skaltu sko ekki koma vælandi til mín. Þá ert þú vandamálið, eða þarft að horfa á hana fimm sinnum í viðbót. Ran Ég sá þessa mynd í fyrsta sinn ný- lega og ég get ekki hætt að hugsa um hana. Kurosawa er ótrúlegur leikstjóri og þetta er ein fallegasta mynd sem ég hef séð. En þetta er ekki auðvelt áhorf. Raunar er myndin hálfgert harmkvæði um hið mannlega ástand og upplausn- ina og guðleysið sem einkennir líf okkar. Sorrí með það. Casablanca Það eru margir á leiðinni að sjá Casablanca en hafa ekki enn þá gert það. Nú er tíminn kæri Adaptation Ég er með af- gerandi blæti fyrir Charlie Kaufman, handritshöfundi þessarar myndir. Hér sturlast hann algjörlega, gefst upp og skrifar sjálfan sig inn í myndina á eftirminnilegan hátt. Fyndin, hugmyndarík og „sönn“. Þetta er líka ein af þessum myndum með Nicolas Cage í aðalhlutverki sem þú ættir að horfa á þótt þú hatir Nicolas Cage. Gerðu það fyrir mig. The Apartment Ég kynntist Jack Lemmon sem gömlu manni í gamanmyndum með Walter Matthau á tíunda ára- tug síðustu aldar. En hann var víst einu sinni ungur maður líka og hér hef ég sönnunina! The Apartment er stórfengleg, rómantísk gaman- mynd sem fjallar um að elska og breyta rétt. Shirley MacLaine er þarna í skemmtilegu hlutverki. Ómótstæðileg. Solaris Mögulega besta mynd rússneska leikstjórans Andrei Tarkovsky og í senn einn besti vísindaskáld- skapur kvikmyndanna. Þegar vís- indaskáldskapur er góður notar hann nýjustu tækni og vísindi til að kanna mannssálina, og hér er það gert. Í tætlur. Hrútar Væri ekki tilvalið að horfa á eina íslenska ræmu sem ÓKEI PLÍS EKKI HÆTTA AÐ LESA! Ég veit hvað þér finnst um íslenskar kvik- myndir og já, þessi fjallar vissu- lega um gamalt deyjandi fólk í íslenskum ullarpeysum. En það er hins vegar ekkert um drauga eða austurevrópsk glæpagengi. Þetta er að mínu mati besta íslenska kvikmyndin. Fallega skotin, frábær leikur og íslenskt veðurfar er þarna í bitastæðu hlutverki, sem ég hef aldrei séð gert svona vel áður. The Big LebowskI Enduráhorfsgildi þessarar grín- myndar sprengir skalann! Ég hef séð hana svo tugum skiptir og ég fæ aldrei nóg. Allir karakterarnir hér taka líf sitt mjög alvarlega og lenda í alls kyns ævintýrum sem skipta síðan engu máli. Ég vitna stans- og samhengislaust í þessa mynd. Kvót vikunnar: „My work has been commended as being strongly vaginal, which bothers some men!“ The Holy Mountain Ef þú hafðir séð þessa mynd fyrir tíu árum þá varstu mjög kúl. Í dag ertu hins vegar bara óþolandi hipster. En ég meina, þetta er góð mynd. Veisla fyrir (þriðja) augað og ein sérstæðasta kvikmynda- upplifun sem í boði er. Walk Hard: The Dewey Cox Story Þessi listi mun fljótlega verða mjög tilgerðarlegur, svo það er best að koma smá gríni frá áður en það gerist. Þetta er vanmetn- asta grínmynd sem ég hef séð. Ef þú fílar Bítlana, Johnny Cash, Bob Dylan, Brian Wilson, Bítlana og/ eða Elvis þá muntu tengja við allt og veltast um af hlátri. Fleabag Hetjan mín, Phoebe Waller-Bridge, skrifar og leikur í þessum tragi- kómísku þáttum um filterslausa unga konu sem gengur illa að fóta sig á flestum sviðum lífsins. Magnað handrit og fílingur. Breaking Bad Hið heilaga gral sjónvarpsþátta- gerðar. Aldrei verður neitt jafn gott og þessir þættir um ævintýri eðlisfræðikennarans og met- amfetamínframleiðandans Wal- ters White. Ég get ekki einu sinni lýst því hvað ég er þakklát fyrir þetta sturlaða meistaraverk. Six Feet Under Þessir þættir um fjölskyldu sem rekur útfararstofu á heimilinu sínu hófu göngu sína fyrir tæpum 20 árum og tróna enn á toppnum hjá mér. Ég tek þó fram að þeir kveiktu á heilsukvíðaröskun hjá mér sem ekki sér fyrir endann á svo ég mæli ekki með þeim fyrir taugaveiklaða á þessum síðustu og verstu. Better Call Saul Að loknum Breaking Bad máttu byrja á þessum og jafnvel þótt þú hatir alla þættina verður allt þess virði þegar þú kemur að 5. þætti í 3. seríu. Ég lofa kaþarsis, flugelda- sýningu og andlegri raðfullnæg- ingu. Ég gat varla talað í fimm daga eftir áhorf. Girls Ótrúlega vel skrifaðir, hráir og heiðarlegir þættir um óþolandi vinkvennahóp með stóra drauma en takmarkaða getu til að láta þá rætast. Ég get horft á þá aftur og aftur. PEN15 Sprellikonurnar Maya Erskine og Anna Konkle skrifa um og leika bestu vinkonur í sjöunda bekk sem eru að tækla gelgjuskeiðið og kynþroskann árið 2000. Leikkon- urnar eru báðar rúmlega þrítugar en mótleikararnir á fermingar- aldri. Fyndnasta sem ég hef séð í langan tíma. Seinfeld Stundum dugar klassíkin best til að slökkva á þrálátum hugsunum um málefni líðandi stundar og Seinfeld eru að mínu mati einir bestu gamanþættir allra tíma. Ég hugsa um á hverjum degi hvernig gengið myndi tækla kóróna- veiruna. Unbreakable Kimmy Schmidt Geggjaðir og því miður sjúklega vanmetnir gamanþættir úr smiðju Tinu Fey sem ég get varla lýst öðruvísi en sem barnaþáttum fyrir fullorðna. Erfið málefni eru tekin fyrir með súrrealískum „feel-good” húmor og á einhvern undraverðan hátt virkar það. Jarðarförin mín Þeir eru reyndar ekki komnir út enn þá en ég hef góða tilfinningu fyrir því að þeir verði stórfengleg- ir, enda tók ég þátt í að skrifa þá. Þeir detta inn á Sjónvarp Símans þann 8. apríl næstkomandi. Succession Það er afrek að skrifa heila seríu í kringum karakt- era sem eru svo meingallaðir og illa innrættir að það er enginn séns að finna til samkenndar með þeim. Samt getur maður ekki hætt að horfa. Topp tíu á fordæmalausum tímum Ólíkt vanalega eru nú allir hvattir til að vera heima við. Fréttablaðið fékk nokkra einstaklinga til að mæla með afþreyingarefni til að næra sálina, eða bara til að stytta okkur stundir á þessum fordæmalausu tímum. KvikmyndirÞættir Tónlist lesandi. Ekki láta svart-hvítuna fæla þig frá. Þessi er mjög auðveld áhorfs. Ógeðslega rómó, brjál- æðislega fyndin og endirinn er svakalegur og ber virðingu fyrir siðferði þínu. Handritið er eitt það þéttasta og léttasta sem til er.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.