Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 83

Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 83
UPPRUNALEGA ER ÞETTA LAG UM HEILSUKVÍÐA, SEM Á ANSI VEL VIÐ NÚNA BÝST ÉG VIÐ. M eð fyrirvara um ritvillur. 0 4 .0 4 .20 20 Arctic Trucks Ísland ehf Kletthálsi 3 110 Reykjavík Sími: 540 4900 Netfang: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.is Allir vinna átakið, verður í boði til 31. desember 2020. ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI ARCTIC TRUCKS VIÐ LÁNUM ÞÉR BÍL! ARCTIC TRUCKS TAKA ÞÁTT Í ÁTAKINU ALLIR VINNA Virðisaukaskattur verður endurgreiddur af vinnu við fólksbíla (utan rekstrar) á þjónustuverkstæði ef upphæðin er 25.000 kr. eða hærri án vsk. HREINLÆTIS LEIÐBEININGUM VEGNA COVID-19 VERÐUR FYLGT Við lánum þér bíl á meðan viðgerð stendur, endurgjaldslaust* *Nánari upplýsingar á arctictrucks.is L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 47L A U G A R D A G U R 4 . A P R Í L 2 0 2 0 Hljómsveitin Hjaltalín var að gefa út lagið Needles and Pins. Um er að ræða þriðju smáskífuna af væntanlegri breið- skífu sveitarinnar, en hún hefur enn ekki fengið nafn en gengur undir vinnuheitinu Úlfaplatan. Hjörtur Ingvi Jóhannsson er hljómborðs- leikari sveitarinnar og samdi lagið Needles and Pins, en við það syngur Sigríður Thorlacius. „Upprunalega er þetta lag um heilsukvíða, sem á ansi vel við núna, býst ég við. Það varð til í Amsterdam, þegar ég stundaði þar nám. Þá hafði ég einhvern óútskýrðan náladofa út um allan líkamann og vissi ekki hvað það var og hafði af því töluverðar áhyggjur,“ segir Hjörtur. Óþarfi að túlka of mikið Sem betur fer reyndist þetta ekki vera neitt segir hann, en það læddist einhvern veginn í undirmeðvitund hans og varð að einni hugmynd af nokkrum sem hann sendi á kollega sína í Hjaltalín. „Síðan fór textinn að vinda upp á sig og varð að einhverri óræðri ástarsögu þar sem sú sem syngur lagið heyrir í sínum heittelskaða í útvarpinu. En maður þarf að passa sig að túlka ekki of mikið, lög eiga helst að búa til sína eigin merkingu fyrir hvern og einn,“ segir hann. Hann segir dágóðan tíma hafa liðið frá því að hugmyndin kom þar til að þau fóru í upptökur. „Við vorum að taka upp í félagsheimilinu Brautartungu í Lundarreykjadal. Þá stakk Högni upp á því að við myndum renna í þetta lag og það bættist hellingur við upprunalegu hugmyndina. Síðan varð textinn til eftir það og bættist stöðugt í útsetninguna. Við tókum svo lagið á tónleikunum okkar í Hörpu á síðasta ári og þá kom brassið sem við höfðum þar svo vel út að við hentum því líka inn í mixið,“ segir hann. Nóg að gera Hjörtur segir allt gott að frétta af Hjaltalín svona almennt. „Við höfum verið á fullu að ljúka við mix og hljóðblöndun á plötunni og erum bara rosalega spennt fyrir því þegar hún kemur út. Það eru engir tónleikar planaðir í augna- blikinu, en svo tökum við stöðuna þegar samkomubanni lýkur.“ Sjálfur hefur Hjörtur verið að vinna að sólóverkefni sem heitir 24 myndir, en það má kynna sér það betur á heimasíðu hans. „Það gengur út á að spila 24 stykki á píanóið, sem eru spunnin á staðnum, auk þess sem ég er að gefa út 24 lög á árinu með reglulegu millibili. Ég er búinn að halda tvenna tónleika með þessu prógrammi, á Akureyri og í Reykjavík, svo kenni ég í Menntaskólanum í tónlist, auk þess sem ég er í hljómsveitinni í 9 líf í Borgarleikhúsinu, þar sem Guðmundur bassaleikari í Hjaltalín er tónlistarstjóri. Það hefur verið mjög skemmtileg og gefandi reynsla og ég hlakka til þegar við getum byrjað að sýna aftur.“ Ró og æðruleysi Hann segist hafa það almennt nokkuð gott þessa dagana. „Nokkuð gott miðað við aðstæður, lífið gengur hægar fyrir sig og tempó- ið er hægara. Maður nær að eyða meiri tíma með fjölskyldunni sinni, sefur meira, andar meira. Þrátt fyrir Lagið fjallaði upprunalega um heilsukvíða Hjörtur Ingvi samdi lagið Needles and Pins í Amsterdam á sínum tíma. að hafa áhyggjur af stöðunni, ekki síst erlendis, þá kemur yfir mann einhver ró og æðruleysi. Maður lærir að þrátt fyrir að geta lagt sitt af mörkum, þá eru sumir hlutir sem maður getur ekki stjórnað og maður verður bara að taka því. Ég held líka að Kári Stefánsson hafi haft rétt fyrir sér með að við verðum betra sam- félag, þegar þetta er um garð gengið,“ segir hann. Lagið Needles and Pins er hægt að nálgast á öllum helstu streymis- veitum. steingerdur@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.