Feykir - 19.12.2018, Qupperneq 6
6 48/2018
hefur verið í. Þúsundir plantna hafa
verið gróðursettar en af þeim hefur
aðeins lítill hluti lifað. Nú er loks farinn
að sjást árangur og vonir vakna um að í
móanum séu plöntur með lífsmarki sem
enn eru að róta sig áður en þær hefja
vöxt ofan jarðar
Umhverfishópurinn Fegrum
bæinn okkar
SKAGASTRÖND
Á Skagaströnd er mikill mannauður
sem lætur sig svo sannarlega varða
samfélagið. Hópur
fólks tók sig taki sl.
sumar og snyrti ýmsa
staði í bænum.
Umhverfi Hólanes-
kirkju var t.d. fegrað
og svo var kirkjan
þrifin hátt og lágt. Frumkvæði fegrunar-
hópsins hafði áhrif á samborgara sem
hvatti þá til dáða. Fólk sem lætur sig
varða samfélagið, í þessu tilfelli
umhverfið, er góð fyrirmynd og til
eftirbreytni.
Þær sem standa að hópnum eru Hafdís
Hrund Ásgeirsdóttir, Björk Sveinsdóttir,
Birna Sveinsdóttir og Helena Mara
Velemir.
Valdimar Eiríksson
VALLANESI
Valdimar gekk í gegnum það áfall að fé
hans var skorið niður vegna riðu, og það
í þriðja skipti á hans
ferli sem bóndi. Það
er ekki létt verk að
takast á við og mikil-
vægt að samfélagið
standi með viðkom-
andi, enda er slíkur
sjúkdómur og afleiðingar hans ekki á
ábyrgð eins manns heldur allra
Skagfirðinga. Sömuleiðis er mikilvægt
að með þessari tilnefningu sé sýnt að
samfélaginu er ekki sama um að
fyrirtaks sauðfjárbú sé lagt niður sí
svona.
- - - - -
Tökum þátt í skemmtilegri kosningu
og kjósum mann ársins á Norðurlandi
vestra!
Kjör á manni ársins 2018
Norðurland vestra
Eins og undanfarin ár stendur Feykir
fyrir kjöri á manni ársins. Gefst
íbúum á svæðinu og öðrum
lesendum Feykis kostur á að velja úr
hópi þeirra sem tilnefndir voru af
lesendum. Í þetta skiptið bárust níu
tilnefningar.
Hægt verður að greiða atkvæði á
vefnum Feyki.is eða senda atkvæði í
pósti á Feykir, Borgarflöt 1, 550
Sauðárkróki. Kosningin hefst kl. 13 á
föstudaginn, 21. desember og lýkur kl.
12 á hádegi á nýársdag, 1. janúar.
Tilnefndir eru:
Anna Á. Stefánsdóttir
STEINHÓLUM Í HJALTADAL
Anna vinnur sem leikskólastjóri „út að
austan“ en auk þess er hún skógarbóndi
ásamt eiginmanni sínum. Anna varð
vör við að eitthvað
væri óeðlilegt við
andardrátt eigin-
manns síns er þau
voru stödd í sund-
lauginni á Hofsósi 17.
mars 2018. Hún gekk
til hans og reyndi að ýta í hann án
árangurs og kallaði þá á hjálp,
sundlaugarvörðurinn kom þá að og
hjálpaði henni að lyfta eiginmanni
hennar upp á bakkann. Anna tók sig
strax til og hóf endurlífgun. Þegar
eiginmaðurinn hafði snúið til baka og
kominn af stað í sjúkraflug hélt hún
ótrúlegri ró, fékk þær upplýsingar sem
þurfti frá lækninum og fór síðan á eftir
eigin-manni sínum. Síðan þetta gerðist
hefur hún staðið upprétt og hjálpað
eigin-manni sínum af eljusemi, hún er
klettur þessi kona. Má leiða að því
líkum að hún, ásamt þeim sem voru á
staðnum, hafi bjargað lífi mannsins.
Brynleifur G. Siglaugsson
STEINHÓLUM Í HJALTADAL
Brynleifur vinnur í FISK Seafood á
Sauðárkróki, ásamt því er hann skógar-
UMSJÓN
Páll Friðriksson
bóndi að Stein-
hólum. Brynleifur
fékk hjartastopp í
sundlauginni á
Hofsósi 17. mars
2018. Hann lifði það
af, en einungis 25%
þeirra sem fá hjartastopp utan
sjúkrahúss ná því. Hann gekkst undir
hjartaþræðingu þann dag og síðan
aftur í lok maí. Eftir seinni aðgerðina
átti hann að slaka á í samtals fimm
daga, enda nýbúinn í hjartaþræðingu.
Skemmst er frá því að segja að á fimmta
degi var Brynleifur mættur í skóg-
ræktina sína og farinn að planta trjám
eins og ekkert hefði gerst.
Guðrún Ósk
Steinbjörnsdóttir
SAUÐADALSÁ Á VATNSNESI
(FYRIR HÖND ÍBÚA Á VATNSNESI
OG VESTURHÓPI)
Hún hefur nú í haust og í byrjun vetrar
leitt baráttu íbúa fyrir vegabótum á
Vatnsnesvegi, verið í
forsvari fyrir íbúa í
ræðu og riti, gengist
fyrir íbúafundum,
m.a. með samgöngu-
ráðherra, og verið
óþreytandi að kynna
málið í fjölmiðlum.
Svo virðist að það hylli undir árangur í
þeirri baráttu, allavega er Vatnsnes-
vegur nú kominn inn í umræðuna og
þingmenn farnir að nefna hann í
viðtölum í fjölmiðlum um veggjöld
m.a. annars af Jóni, „ekki samgöngu-
ráðherra“, þó hans hafi í engu verið
getið í vegaáætlun.
Ólöf Ólafsdóttir
TANNSTAÐABAKKA Í HÚNAÞINGI
VESTRA
Ólöf er þvílík gull-
kona, hún er með
parkinson en það
stoppar hana ekki í
því að gefa endalaust
af sér. Til dæmis
saumar hún teppi (bútasaum) og selur
og gefur svo allan ágóða til góðgerða-
mála. Mikil perla.
Óskar G. Björnsson
SKÓLASTJÓRI ÁRSKÓLA
Óskar hefur stýrt Árskóla af miklum
myndarbrag síðan 1998 og gert skól-
ann að einum þeim
fremsta á landinu.
Óskar er einstaklega
þægilegur í sam-
skiptum og sam-
vinnu, alltaf tilbúinn
að leysa mál og er
skólastjóri í fremstu röð.
Rúnar Páll Hreinsson
GRINDUM, DEILDARDAL
Rúnar Páll vinnur sem sundlaugar-
vörður á Hofsósi meðfram búskap
sínum að Grindum. Hann var að vinna
þann 17. mars sl.
þegar sundlaugar-
gestur fékk hjarta-
stopp í vaðlauginni.
Hann hjálpaði eigin-
konu mannsins að
koma honum upp úr
vaðlauginni og hefja endurlífgun sem
og nýta hjartastuðtæki sem var á
staðnum. Rúnar hélt ró sinni allan
tímann og hafði fulla stjórn á þeim
aðstæðum sem í gangi voru. Það er
enginn vafi á því að hann, ásamt þeim
sem voru á staðnum, björguðu lífi
mannsins.
Steinn Kárason
FRÁ SAUÐARKRÓKI
Steinn hefur frá árinu 1995 haldið úti
verkefninu Brimnes-
skógar og unnið að
því verkefni launa-
laust og af mikilli
hugsjón. Ýmis ljón
hafa verið í veginum
en stærst þeirra er
hversu kostarýrt landið er sem plantað
Þó tilefnið hafi verið á alvarlegu nótunum
þá fékk Pálmi Ragnarsson í Garðakoti
tilnefningu til manns ársins vegna
jákvæðni sinnar í baráttu hans við
krabbamein misserin á undan.
Þrátt fyrir veikindin hélt Pálmi
lífsgleðinni og kraftinum og að því dáðist
fólk og var hann kjörinn Maður ársins
2017. Hann varð þó að láta í minni
pokann fyrir vágesti sínum og lést hann á
sjúkrahúsinu á Akureyri 22. mars sl.
Pálmi Ragnarsson
Garðakoti
Maður ársins 2017
Dregið hefur verið úr réttum lausnum
í myndagátunni sem birtist í jólablaði
Feykis. Ágæt þátttaka var meðal
lesenda sem voru ekki í vandræðum
með lausnina að þessu sinni.
Lausnin er eftirfarandi: Tindastóll er
ríkjandi bikarmeistari í körfubolta og nú
er stefnan sett á Íslandsmeistaratitil og
spennandi vetur/tímabil framundan.
Tindastóll - err í k - (f) jandi - bikar -
meis - tár í körfubolta - ógn - ú(r) - (b)
er - stefna - n - set - t á ís - land - s - m -
eista - ra - tí - t í l (t) og - spenna - (a)
ndi – vetur/tímabil - f r á m - und á n.
Þrír bókavinningar eru í boði og
vinningshafar eftirfarandi:
Steinunn Arnljótsdóttir Varmahlíð ::
Hvítabirnir á Íslandi, eftir Rósu Rut
Þórisdóttur.
Ingibergur Guðmundsson Skagaströnd
:: Ekki misskilja mig vitlaust. – Mismæli
og ambögur.
Hjalti Þórðarson Sauðárkróki :: Fléttu-
bönd eftir Stefán Sturlu Sigurjónsson.
Feykir þakkar þátttakendum fyrir inn-
sendar lausnir og óskar vinningshöfum
til hamingju. /PF
Jólamyndagáta Feykis
Þrír heppnir fá bókavinninga