Feykir


Feykir - 19.12.2018, Qupperneq 14

Feykir - 19.12.2018, Qupperneq 14
14 48/2018 Á Skagaströnd býr ellefu ára gömul stúlka, Sóley Sif Jónsdóttir, sem óhætt er að segja að haldi merki bókaorma hátt á lofti enda les hún ósköpin öll. Sóley var nýlega valin í bókaormaráð hjá KrakkaRÚV en þar fá krakkar á aldrinum 9-12 ára það hlutverk að gagnrýna barna- og unglinga- bækur ásamt því að gegna hlutverki spyrils. Blaðamaður Feykis ákvað að forvitnast nánar um hvernig það sé að vera bókaormur og hitti Sóleyju Sif að máli að loknum skóla, dag einn í síðustu viku. Við byrjuðum á að koma við á bókasafni skólans sem er hið notalegasta og vel búið bókum. Fyrsta spurningin var að sjálfsögðu hvaða bækur á safninu væru í mestu uppáhaldi. „Það eru Harry Potter bæk- VIÐTAL Fríða Eyjólfsdóttir urnar,“ segir Sóley, „ég held ég hafi byrjað að lesa þær í sumar og ég er búin með þær allar.“ Harry Potter bækurnar eru átta talsins og flestar mjög efnis- miklar. Sóley segir að sér þyki þær skemmtilegar og spennandi enda hafi hún mjög gaman af spennandi ævintýrabókum og lesi mikið af þeim. Aðspurð Bókaormurinn Sóley Sif Jónsdóttir Hefur lesið flestar bækurnar á bókasafninu segist hún vera búin að lesa flestar bækurnar á bókasafninu og nú sé hún að lesa bókaseríu sem kallast Stelpubækurnar en hvað verði svo fyrir valinu sé óákveðið. Hefurðu líka gaman af að grúska í fræðibókum? „Nei, ég er meira fyrir svona spennusögur. Ef ég er að lesa einhverja bók og það kemur spennandi partur, þá bara tek ég hana í kipp, byrja kannski klukkan tíu og enda klukkan hálf eitt.“ En hefur þú alltaf lesið svona mikið? „Já, eiginlega, ég byrjaði að lesa fyrstu bækurnar þegar ég var þriggja ára. Það voru svona Léttlestrarbækur sem eru eiginlega bara stök orð, en þegar ég var kannski svona fimm var ég byrjuð að lesa létta útgáfu af Hans og Grétu og þannig.“ Þegar Sóley Sif er beðin um að velja sér þrjár uppáhaldsbækur á safninu, bækur sem hún tæki með sér á eyðieyju, þarf hún ekki að hugsa sig lengi um: „Örugglega þessar þrjár“, segir hún og gengur að hillunni með Harry Potter bókunum, „Harry Potter og eldbikarinn, Harry Potter og blendingsprinsinn og Harry Potter og dauðadjásnin.“ Sóley segir að í skólanum á Skagaströnd sé mikið gert til að hvetja krakkana til lestrar. „Það er oft svona lestrarkeppni, ég vann í Ævars vísindamanns- keppninni í fyrra. Ég var líka dregin út þar sem allir í bekknum mínum eða skólanum voru settir í pott. Svo er svona fram- sagnarkeppni hérna fyrir 5. - 7. bekk, ég hef keppt tvisvar og vann í bæði skiptin. Svo er ég að fara að keppa í undankeppni fyrir Stóru upplestrarkeppnina eftir áramót.“ Margir skólar hafa tekið upp þann sið að hafa sérstakan tíma á stundatöflu sem er ætlaður til yndislestrar. Er það líka gert hér? „Já, þegar við komum á morgnana þá er alltaf lesið í svona hálftíma og svo byrjar venjulegur skóladagur. En annars les ég stundum í útifrímínútum líka. Þá fer ég bara út með bókina mína og sest hérna framan við dyrnar,“ segir Sóley og þegar blaðamaður rekur upp stór augu og spyr hvort hinir krakkarnir geri þetta Sóley á æfingu með kirkjukórnum á síðasta ári. MYND: HUGRÚN SIF HALLGRÍMSDÓTTIR Margir hafa af því áhyggjur að bóklestur heyri brátt sögunni til þar sem fólk nú til dags sé sokkið ofan í tölvur og snjalltæki og því sé þess ekki langt að bíða að bókaútgáfa líði undir lok. Það er nú sem betur fer ekki alveg raunsönn mynd því enn eru til margir sem hafa gaman af að gleyma sér yfir góðri bók.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.