Fréttablaðið - 21.04.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —9 3 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 2 1 . A P R Í L 2 0 2 0
Njóttu hækkandi sólar á rúntinum.
Uppáhaldsbíllinn þinn bíður!
HEKLA · Skoðaðu úrvalið á www.hekla.is/vefverslun
MENNTUN Mikill fjöldi framhalds-
skólanema hefur fengið símtöl frá
kennurum og starfsfólki skólanna
á undanförnum dögum og vikum
vegna hættu á stórauknu brott-
hvarfi.
„Við höfum alltaf áhyggjur af
brotthvarfi en núna höfum við
áhyggjur af því jafnt hjá nemend-
um sem standa höllum fæti og hjá
þeim sem almennt standa sterkar,
því nemendur hafa aldrei upplifað
svona aðstæður áður,“ segir Steinn
Jóhannsson, rektor Menntaskólans
við Hamrahlíð.
Framhaldsskólanemar hafa ekki
mætt í skólann síðan samkomubann
var sett á 16. mars og hafa skólarnir
brugðist við með því að færa kennsl-
una yfir á rafrænt form.
„Þetta er að valda kvíða og jafn-
vel þunglyndi,“ segir Steinn og vísar
til einangrunar nemenda sem geta
ekki hitt vini og skólafélaga og rætt
um námið eins og þeir eru vanir.
Margir skólar hafi brugðið á það ráð
að hringja í þá nemendur sem hafa
verið óvirkir í rafrænum tímum og
ekki skilað verkefnum sem lögð
hafa verið fyrir. Reynt sé að mæta
þörfum nemenda með einstaklings-
bundnum hætti til að sporna gegn
brotthvarfi.
„Í okkar nemendahópi eru margir
af erlendum uppruna og krakkar
sem komu ekki með háar einkunnir
úr grunnskóla,“ segir Magnús Ingva-
son, skólameistari Fjölbrautaskól-
ans við Ármúla. Þessir hópar standi
höllum fæti auk fjölda nemenda
skólans sem hafi greiningar eins og
lesblindu og ADHD. Magnús segir
að af 900 nemendum í dagskóla sé
starfsfólkið búið að hringja í rúm-
lega 600, suma oftar en einu sinni.
„Okkar aðalverkefni þessa önn
verður að bjarga verðmætum,“ segir
Magnús.
Staðan er svipuð í Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti en Elvar Jónsson
skólameistari telur að áður en yfir
lýkur muni starfsfólk skólans hafa
rætt í síma við f lesta nemendur í
dagnámi en þeir eru um þúsund. – aá
Í símasambandi við þúsundir
Skólastjórnendur hafa miklar áhyggjur af auknu brotthvarfi úr framhaldsskólum. Reyna að ná utan um
nemendur og hringja í þá sem eru óvirkir í tímum. Björgunarstarf er stærsta verkefni vorannarinnar.
Meira á frettabladid.is
UMHVERFISMÁL Íbúar á Kjalarnesi
segjast munu leita til ráðamanna á
Norðurlöndunum til að knýja yfir-
völd til að bregðast við mikilli blý-
mengun frá skotæfingum á Álfsnesi.
„Blýmengunin er grafalvarleg og
getum við ekki séð hvernig hægt
verður að hreinsa í hið minnsta tugi
tonna af blýi sem liggja í sjónum og
fjörunni í Kollafirði,“ segir í bréfi
sem 49 íbúar á svæðinu skrifa undir
og krefjast þess að skotæfingavæði
á Álfsnesi verði lögð af.
Rakið er að margir fuglar éti litla
steina til að hjálpa við meltingu.
Þeir ruglist á blýhöglum sem festist
í meltingarveginum og dragi þá til
dauða. Að sögn bréfritaranna hefur
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
dauf heyrst við athugasemdum
þeirra. – gar / sjá síðu 4
Blýmengun
í Kollafirði
Þó að sundlaugar landsins séu lokaðar um þessar mundir er samt sem áður hægt að fá sér sundsprett. Þær Elín Signý, Elín Kristjáns og Ásta Karen sýndu það og sönnuðu þegar þær stukku
út í sjóinn af kletti við Nauthólsvík í gær. Ætluðu þær upphaf lega að skella sér á brimbretti en skortur á öldum varð til þess að þær ákváðu að hoppa í sjóinn í staðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI