Fréttablaðið - 21.04.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 21.04.2020, Blaðsíða 18
Geoffrey Huntington- Williams og Örn Tönsberg ásamt bílaflota Priksins sem býður nú upp á safaríkan veganmat víðs vegar um borgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR BÍLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Mest lesna bílablað landsins kemur út þriðjudaginn 5. maí næstkomandi. Ritstjóri blaðsins er Njáll Gunnlaugsson. Tryggðu þér pláss í mest lesna blaði landsins. Nánari upplýsingar um blaðið veitir: Atli Bergmann, markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5657 / atli@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 6 KYNNINGARBLAÐ 2 1 . A P R Í L 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RSUMARDEKK Örn Tönsberg situr ekki auðum höndum þó að mörg okkar séu hrein- lega neydd til þess í ástandinu sem nú ríkir. Örn hefur í seinni tíð verið þekktastur fyrir að vera tónlistar- og myndlistarmaður en undanfarna mánuði hefur hann sýnt listir sínar í eldhúsi Priksins og það við gerð á veganmat sem sannarlega hefur slegið í gegn. „Seint á síðasta ári nálgaðist Geoffrey, eigandi Priksins, mig upp á að gera vegan pop-up eld- hús á Prikinu. Að sjálfsögðu tók ég vel í þá snilldarhugmynd og út frá því fæddist B12. Þar gerðum við sveittan en grænan matseðil í samstarfi við Atla Snæ hjá Kore. Upphaflega stóð bara til að hafa þetta í Veganúar en vegna góðra undirtekta var ákveðið að halda áfram með verkefnið,“ skýrir Örn frá. Hvernig kom það til að þið ákváðuð að taka þátt í þessu verkefni? „Í ljósi samkomubannsins blasti nýr tími við í rekstri. Meiri áhersla var lögð á heimsendingar og því virkjuðum við rafmagns- hjólin til að snattast um nær- hverfin með mat. Hægt er að sjá matseðilinn á Facebook-síðu Priksins og panta svo í gamla landlínusímann 551 2866. Síðan nálgaðist Róbert Aron hjá RVK Street Food okkur um að taka þátt í ævintýrinu Götu- biti á hjólum og við slógum til þar sem Matvagn Priksins var klár í slaginn.“ Hvað felst í þessu verkefni? „Það er f lóra af matvögnum sem fara saman í mismunandi hverfi frá fimmtudegi til sunnu- dags og mynda þar litla mathöll á bílastæðum sem eru illa nýtt í sam komubanninu.“ Hver er munurinn á hefðbundn- um veitingastað og „veitingastað á hjólum“? „Þú þarft ekki að fara inn að panta, auðvelt er að tryggja tvo metra frá viðskiptavinum og enginn undir sama þaki, þú getur líka beðið í bílnum á meðan maturinn er gerður klár og fengið sent beint í hann. Það eru líka fáir veitingastaðir sem koma með þessum hætti í hverfið þitt.“ Hvernig hafa viðtökurnar verið? „Vonum framar, viðtökurnar eru mjög góðar og fólk mjög sátt við svona skemmtilegt framtak á þessum tímum.“ Hverjir eru helstu viðskipta- vinirnir? „Það er öll f lóran, aðallega fólk sem kann að meta alvöru sveittan skyndibita sem er 100% vegan.“ Hvað er næst á dagskrá? „Að kynna nýjan matseðil á næstunni og halda áfram að trukka.“ Fjórhjóladrifnar kræsingar Á sama tíma og umferð hefur farið minnkandi hafa heimsendingar af öllu tagi færst í aukana. Það hefur því sjaldan verið jafn tilvalið að kynna sér þjónustu matvagna. Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Það er flóra af matvögnum sem fara saman í mismun­ andi hverfi frá fimmtu­ degi til sunnudags og mynda þar litla mathöll á bílastæðum sem eru illa nýtt í samkomu­ banninu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.