Fréttablaðið - 21.04.2020, Síða 2
26
liggja á sjúkrahúsi vegna
COVID-19.
Veður
Suðaustan 8-15 m/s og rigning
og súld með köflum, en heldur
hægari vindur og lengst af bjart-
viðri norðan- og austanlands.
Samfelldari rigning um vestan-
vert landið seinnipartinn, og lægir
með kvöldinu. Hiti 5 til 13 stig að
deginum. SJÁ SÍÐU 12
Skipti á þotuhreyfli og mótorhjóli
Hilmar Foss, sem á safn ýmissa muna í Garði, tók í gær við nýjasta gripnum, Rolls Royce RB-211 þotuhreyf li sem hann fékk í skiptum fyrir mótorhjól.
Slíkir hreyf lar voru fyrst notaðir á Lockheed Tristar breiðþotur. Ein slík f lýgur enn og er hún notuð til þess að koma gervihnöttum á loft. Hreyfillinn
fær sess utandyra enda 5,1 tonn. „Ef svona hreyfill væri tengdur við rafal gæti hann séð Reykjanesi fyrir rafmagni,“ segir Hilmar. MYND/HILMAR FOSS
SMÁRALIND OG LAUGAVEGUR 91
Drifter GV
Nú kr. 14.995.-
Kr. 29.990.-
Silver
Nú kr. 9.995.-
Kr. 19.990.-
50%
50%
Eir
Nú kr. 8.495.-
Kr. 16.990.-
50% 50% 50%
Mía og Már
Nú kr. 7.495.-
Kr. 14.990.-
Mía og Már
Nú kr. 9.495.-
Kr. 18.990.-
50%
50%
Garri Barnastærðir
Nú kr. 2.495.-
Kr. 4.990.-
Garri Barnastærðir
Nú kr. 1.375.-
Kr. 2.795.-
VORDAGAR
Vefverslun
icewear.is
frí heimsendi
ng50%
AFSLÁTTUR
FERÐAÞJÓNUSTA Starfshópur sem
ráðherra ferðamála skipaði um
útfærslu ferðaávísunar er nú að
störfum. Gefið hefur verið upp að
hver ávísun verði upp á 5.000 krón-
ur og heildarkostnaðurinn 1,5 millj-
arðar. Auk starfsfólks ráðuneytisins
eru fulltrúar Stafræns Íslands og
Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF)
í hópnum.
Óvissa hefur ríkt um hvað verði
hægt að nota ávísunina í, til dæmis
varðandi orlofshús stéttarfélaga.
„Hugsunin með ávísuninni er að
hægt sé að nýta hana til ferðaþjón-
ustu á landinu. Orlofshús stéttar-
félaga lúta öðrum lögmálum,“
segir Jóhannes Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri SAF. „Þetta hefur ekki
verið rætt í hópnum en frá okkar
bæjardyrum séð á þetta aðeins við
þjónustu veitta af ferðaþjónustufyr-
irtækjum en ekki stéttarfélögum.“
Hægt verður að nota ávísunina á
hótel, sýningar og ferðir af ýmsum
toga en Jóhannes segir aðspurður
líklegt að einnig verði hægt að nota
hana á öðrum stöðum. „Ýmislegt
sem getur fallið undir þetta. Veit-
ingastaðir eru til dæmis partur af
ferðaþjónustunni.“
Hugmyndin er að íslenskir ríkis-
borgarar, 18 ára og eldri, fái ávísun-
ina en ekki hefur verið rætt hvort
hægt verði að framselja hana. – khg
Ekki rætt
um framsal
ávísunar
Frá okkar bæjar-
dyrum séð á þetta
aðeins við þjónustu veitta af
ferðaþjónustufyrirtækjum
en ekki stéttar-
félögum
Jóhannes Þór
Skúlason
COVID-19 Aðeins tvö ný tilfelli af
COVID-19 greindust í gær, annað á
veirufræðideild Landspítalans og
hitt hjá Íslenskri erfðagreiningu. Er
heildarfjöldi tilfella því 1.773.
Á Landspítala eru 24 inniliggj-
andi, fjórir á gjörgæsludeild og eru
þeir allir í öndunarvél. Tveir liggja á
Sjúkrahúsinu á Akureyri og annar
þeirra á gjörgæsludeild en ekki í
öndunarvél. Einn lést á hjúkrunar-
heimilinu Bergi í Bolungarvík vegna
COVID-19 sýkingar.
Á blaðamannafundi í gær sagði
Alma D. Möller landlæknir að hún
hefði mælst til þess við ráðherra
að hægt verði að gera valkvæðar
aðgerðir á ný á Landspítalanum
þann 4. maí þegar losað verður um
ýmsar hömlur. – khg
Tvö ný tilfelli Gæti gegnt mikilvægu
hlutverki fyrir landið
Á síðustu tveimur árum hefur höfnin í Þorlákshöfn farið úr því að vera lítil
fiskihöfn í eina helstu inn- og útflutningshöfn landsins. Til stendur að fjár-
festa fyrir 1,4 milljarða króna til að geta tekið á móti stórum farþegaskipum.
ÖLFUS Í dag er boðið upp á siglingar
frá Þorlákshöfn til erlendra hafna
tvisvar í viku. Til Hirtshals í Dan-
mörku með viðkomu í Færeyjum og
til Rotterdam. Bæjaryfirvöld hafa
unnið náið með Smyrilline við að
þróa höfnina sem vöruf lutninga-
höfn. „Við erum gríðarlega ánægð
með samstarfið við það öf luga
fyrirtæki,“ segir Elliði Vignisson,
bæjarstjóri Ölfuss.
Stutt er síðan Þorlákshöfn glímdi
við brotthvarf útgerða úr bæjar-
félaginu. Viðsnúningurinn á starf-
semi hafnarinnar hefur gert það að
verkum að landanir fiskiskipa hafa
tekið verulega við sér. „Siglingar
héðan frá Þorlákshöfn eru umhverf-
isvænni og hagkvæmari og nálægð-
in við höfuðborgarsvæðið gerir
okkur að ákjósanlegum valkosti.
Viðbrögðin sýna að markaðurinn
hefur beðið eftir þeim tækifærum
sem felast í siglingum héðan,“ segir
Elliði.
Að mati Elliða er vöxturinn und-
anfarið þó aðeins toppurinn á ísjak-
anum. Fyrir liggi áhugi ýmissa aðila
á að taka upp vikulegar siglingar
með ferðamenn og fragt til Bret-
lands og meginlands Evrópu.
Til þess að það geti gerst þarf
að ráðast í umfangsmiklar fram-
kvæmdir. Er meðal annars horft til
allt að 300 metra lengingar á grjót-
garði, dýpkunar, stálþiljunar og
ýmislegs fleira.
Samkvæmt niðurstöðu minnis-
blaðs um verkefnið er reiknað með
að heildarkostnaður við nauðsyn-
legar endurbætur á höfninni, til
að 180 metra löng farþegaferja geti
hafið áætlunarsiglingar, sé um 1,4
milljarðar króna. Þar af yrði hlutur
ríkisins um 660 milljónir. Rann-
sóknarvinna er í fullum gangi og
lýkur henni á næstu vikum. Er
reiknað með verklokum í júní á
næsta ári.
Að sögn Elliða er hann ekki í
nokkrum vafa um fýsileika verk-
efnisins. „Til marks um það sýndi
óháð úttekt RR ráðgjafar á þessari
framkvæmd að fáar, ef einhverjar,
framkvæmdir á sviði samgangna
eru arðbærari en þessi. Gert er ráð
fyrir að framkvæmdakostnaður
skili sér til baka í opinberum gjöld-
um á fáum árum,“ segir Elliði.
Í áðurnefndu minnisblaði er lagt
mat á tekjurnar sem þetta verkefnið
getur skilað. Þær eru lauslega metn-
ar út frá fjölgun ferðamanna sem
gætu orðið allt að 50 þúsund á ári.
Stuðst er þó við varfærnislegt mat
sem er um 30-40 þúsund farþegar
á ári. Neyslukaup ferðamanna eru
áætluð um 4 milljarðar króna á
ári og að tekjur hafnarinnar vegna
farþegaferju gætu orðið allt að 200
milljónir króna á ári.
„Þjóðskáldið Einar Benedikts-
son sagði oft að Þorlákshöfn væri
skráargatið að fjárhirslum Suður-
lands. Hann sá kannski ekki fyrir
að með bættum samgöngum getur
höfnin gegnt mikilvægu hlutverki
fyrir allt landið. Við sjáum Þorláks-
höfn fyrir okkur sem eina af lykil-
höfnum þessa lands þegar kemur að
siglingum á Evrópumarkað,“ segir
Elliði. bjornth@frettabladid.is
Þjóðskáldið Einar
Benediktsson sagði
oft að Þorlákshöfn væri
skráargatið að fjárhirslum
Suðurlands.
Elliði Vignisson,
bæjarstjóri Ölfuss
Margt hefur breyst í Þorlákshöfn síðustu tvö árin. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
2 1 . A P R Í L 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð