Fréttablaðið - 21.04.2020, Side 20
Klettur er leiðandi í sölu og þjónustu á breiðri línu vinnuvéla og ýmissa annarra
véla, ásamt því að sinna hjólbarða-
þjónustu fyrir allar gerðir fólks- og
flutningabíla. Fyrirtækið byggir
á gömlum og traustum grunni,
en félagið hefur verið umboðs-,
sölu- og þjónustuaðili fyrir Good-
year hjólbarða frá árinu 1952.
Fyrir vikið býr Klettur að ótrúlega
langri reynslu og þekkingu á svona
rekstri.
„Nýlega vorum við að bæta
dekkjum frá tveimur frábærum
framleiðendum við úrvalið okkar,
en það eru dekk frá Hankook og
Nexen,“ segir Andri Ellertsson,
rekstrarstjóri hjólbarða hjá Kletti.
„Bæði Hankook og Nexen eru
gæða dekk á góðu verði og ættu því
að henta fyrir marga.“
Kostir þess að skipta
„Allir sem vita eitthvað um dekk
vilja meina að þú verðir að skipta
á milli sumar- og vetrardekkja
og að það sé ekkert til sem heitir
heilsársdekk, heldur sé það oftast
bara óneglt eða óneglanlegt vetrar-
dekk,“ segir Andri. „Þó að þú getir
keyrt á heilsársdekki yfir sumarið
fer það verr með hjólbarðann að
keyra á honum á heitu malbiki.
Þannig að fólk heldur að það sé
að spara á því að vera á heilsárs-
dekkjum, en raunin er sú að það
þarf að kaupa ný dekk fyrr en ef
það myndi skipta.
Við gerðum líka könnun til að
bera saman bremsuvegalengdina
á heilsársdekki og sumardekki í
rigningu og það munaði mörgum
metrum, þannig að þetta er klár-
lega öryggisatriði,“ segir Andri.
Svo er það líka alltaf góð upp-
lifun að fara af nöglum yfir á
sumardekk, það verður allt svo
miklu mýkra og snarpara fyrir
vikið,“ segir Andri. „Maður finnur
að sumarið er komið þegar maður
er kominn á sumardekkin.“
Hljóðlátustu dekkin
„Við erum stolt af því að bjóða upp
á dekk frá Goodyear, en framleið-
andinn er að reyna að fullkomna
hljóðlát dekk, því nú þegar margir
eru komnir á hljóðláta rafmagns-
bíla vill þetta fólk ekki vera á
dekkjum sem gefa frá sér læti,“
segir Andri. „Við bjóðum upp á frá-
bær, hljóðlát dekk sem við teljum
vera þau bestu á markaðnum.
Goodyear kom með nýtt dekk í
sumar sem heitir Efficientgrip 2,
en það er mjög hljóðlátt og endist
20% lengur en dekk í svipuðum
verðflokki,“ segir Andri. „Ég mæli
eindregið með að fólk skoði þetta
dekk fyrir bílana sína.“
Bókunarkerfi og
ódýrt dekkjahótel
„Við erum komin með fullkomið
bókunarkerfi á vefnum okkar,
klettur.is,“ segir Andri. „Það
kemur upp um leið og maður fer
inn á vefinn og þar er hægt að
panta tíma á öllum verkstæðum
okkar, en þau eru í Klettagörðum,
Hátúni 2 og Suðurhrauni í Garða-
bæ.
Við bjóðum líka upp á dekkja-
hótel, sem þýðir að við geymum
árstíðabundin dekk fyrir fólk á
meðan það notar hinn umgang-
inn,“ útskýrir Andri. „Það getur
verið mikill kostur að geta til
dæmis geymt vetrardekkin ein-
hvers staðar annars staðar yfir
sumartímann svo þau séu ekki að
taka pláss í bílskúrnum, því þetta
er plássfrekt. Það kostar líka ekki
nema frá 7.900 krónum að geyma
dekk yfir veturinn.“
Allir sem vita
eitthvað um dekk
vilja meina að þú verðir
að skipta á milli sumar-
og vetrardekkja.
Sumarið kemur með sumardekkjum
Hjá Kletti er hægt að fá hjólbarðaþjónustu fyrir allar stærðir og gerðir bíla. Fyrirtækið býr að mik-
illi reynslu og þekkingu og býður upp á fullkomið bókunarkerfi, dekkjahótel og hljóðlát dekk.
Andri Ellertsson, rekstrarstjóri hjólbarða hjá Kletti, segir að það séu margir kostir við að skipta um dekk tvisvar á
ári og nota bæði vetrar- og sumardekk í stað þess að nota eingöngu heilsársdekk. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SKELLTU ÞÉR Á
SUMARDEKKIN
Bókaðu dekkjaskipti á klettur.is
KLETTAGARÐAR 8-10, 104 REYKJAVÍK
SUÐURHRAUN 2B, GARÐABÆ
HÁTÚN 2A, 105 REYKJAVÍK
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Kelttur_Fréttabladid_255x200.pdf 1 4/20/2020 3:51:36 PM
8 KYNNINGARBLAÐ 2 1 . A P R Í L 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RSUMARDEKK