Fréttablaðið - 21.04.2020, Qupperneq 28
ÞAÐ ER GOTT AÐ FÁ
ÁMINNINGU UM AÐ
TILVERAN ER EKKI AUÐVELD OG
AÐ VIÐ VERÐUM AÐ TAKA
HENNI EINS OG HÚN ER.
Ragnhildur
ÞEGAR ARMARNIR
EYÐAST AF VIÐ
ÞVOTTINN BER ÞAÐ VITNI UM
AÐ HENDUR SÉU HREINAR. HÚN
VIRKAR LÍKA SEM ÁMINNING
UM MIKILVÆGI HANDÞVOTTAR.
Margrét
Systurnar Ragnhildur Lára og Margrét Helga Weiss-happel hafa nýtt tímann vel undanfarið og hafa sameinað listina og prak-tíkina og gert sérstakar
kórónasápur. Ragnhildur lærði
myndlist við Listaháskóla Íslands
en Margrét kláraði grafíska hönnun
við sömu stofnun.
Þessi f lókna staða sem er uppi er
þeim ofarlega í huga en þær segjast
sjálfar hafa reynt að einblína á það
jákvæða sem hægt er að draga af
reynslunni undanfarinn mánuðinn.
„Mér finnst þetta að mestu leyti
hafa verið jákvæð lífsreynsla, í það
minnsta hingað til. Auðvitað hefur
verið vont og átakanlegt að fylgj-
ast með fréttum, en það er alltaf
vont og átakanlegt að fylgjast með
fréttum. Faraldur eða ekki, að vera
myndlistarmaður er alltaf besta
staðan til að vera í, í blíðu og stríðu,
allavega fyrir mér. Listamaður er
eins og kameljón eða kakkalakki.
Góður í aðlaga sig hverju sem er,“
segir Ragnhildur.
Magga samsinnir systur sinni,
henni líður ágætlega miðað við
aðstæður en saknar þess þó sérstak-
lega að komast í sund.
Viðkvæmt kerfi
„Í svona ástandi, þar sem normið er
rifið upp, sjáum við allt í nýju ljósi.
Við sjáum betur hvað virkar og hvað
er mikilvægt. Kerfið er langt frá því
að vera fullkomið, hvort sem það er
í mars 2019 eða mars 2020,“ segir
Margrét.
„Já, kerfið er greinilega mjög við-
kvæmt, því það virðist geta fallið
eins og spilaborg. Við sjáum skýrt
hvaða samfélög heimsins hafa
komið verst út úr þessu. En ég er
viss um að við f lest séum að læra
margt nýtt. Við viljum ekki að
samfélagið fari aftur í sama farið.
Hvað viljum við að breytist? Það
væri gaman að grípa tækifærið sem
nú býðst til að breyta ýmsu „status
quo“, en kannski verður allt verra en
það var áður. Það er gaman að pæla
í því en mér finnst auðveldara að
vera óþolandi jákvæð og bjartsýn,“
segir Ragnhildur.
Ragnhildur segist meðvituð
um mikilvægi þess að fólk upplifi
öryggi.
„Annars er ekki mikið pláss í
hausnum fyrir annað held ég, en
mér finnst margt spennandi við
tímana sem við fáum að lifa, ég
þrífst vel í smá kaosi. Ég veit að það
eru ekki allir þannig, og ég er með-
vituð um að ég er heppin að segja
að ég upplifi þetta sem jákvæða
lífsreynslu. Hljómar ef laust mjög
dekrað. Ég geri mér grein fyrir að
það geta ekki allir horft á þetta
sem forvitnilega tíma en ég er bara
að tala út frá mér. Það er gott að fá
áminningu um að tilveran er ekki
auðveld og að við verðum að taka
henni eins og hún er,“ bætir hún við.
Þær systur eru sammála um að
þeim sé ekki farið að leiðast, þrátt
fyrir samkomubannið.
„Okkur hefur líklega aldrei leiðst
í lífinu. Við erum bara að njóta þess
ótrúlega vel að þurfa ekki að vera að
fara neitt að óþörfu og þurfa að gefa
vandræðaleg knús,“ segir Magga.
„Það gleður mig líka þegar Víðir
segir „kommon“ á blaðamanna-
fundum, eins og hann sé að spjalla
við vin sinn. Það er svo hressandi
að heyra fólk tala eðlilega í sjón-
varpinu. Oft talar fólk sem á að vera
að útskýra eitthvað fyrir okkur í
marga hringi kringum spurninguna
og segir í raun ekkert. Svo er við-
talið búið og maður er engu nær.
Ég er eiginlega bara hissa hversu
vel er tekið á ástandinu hér á landi
og hvað það er fínt fólk að sjá um
þetta. En auðvitað er alltaf stutt í
fyrirsagnir á borð við „Ísland er að
bregðast langbest við“,“ segir Ragn-
hildur.
Falleg óværa
Kórónusápan er samspil listar og
nauðsynjavöru.
„Kórónusápan er sápa sem er í
laginu eins og kórónuveira. Það
hefur verið mikið í umræðunni að
það sé sérstaklega mikilvægt að
halda puttunum temmilega óklístr-
uðum núna. Það lá beint við að gera
sápu í laginu eins og kórónuveiru.
Kom bara ekkert annað til greina,
Sápugerð hefur alltaf heillað mig
síðan ég prófaði heimagerðar lækn-
andi sápur frænku okkar á Mýrum
í Skriðdal. Það er hægt að segja
margt um veiruna, margt ömurlegt
og sorglegt en annað jákvætt. Það
verður þó ekki tekið af henni að
hún er undurfögur í laginu,“ segir
Ragnhildur.
„Með sápu skal veiru verjast, eru
einkennisorð vörunnar. Pabbi fann
upp á þessu spakmæli sem toppar
f lesta gula miða sem leynast í
páskaeggjum. Sápan fer vel í hendi
og á sápudiski. Þegar armarnir eyð-
ast af við þvottinn ber það vitni um
að hendur séu hreinar. Hún virkar
líka sem áminning um mikilvægi
handþvottar,“ segir Margrét.
„Vegna forms sápunnar breyt-
ist handþvotturinn að auki í 20
sekúndna handanudd. Vorum við
búnar að minnast á ilminn?“ spyr
Ragnhildur systur sína.
„Nei, bleika sápan er með laven-
derilmi og sú græna með pipar-
myntuilmi. Eiginleikar olíanna
gera ýmislegt fyrir sálarlífið sem
er mikill plús á óvissutímum sem
þessum. Sápan er auðvitað mjög
„current“ vara og er fullkomin sem
gjöf til að gleðja vini og vandamenn
í sóttkví en hún verður vonandi líka
Með list
skal líf og
líðan bæta
Systurnar Ragnhildur og Margrét blanda
saman list og nauðsynjavöru og gera falleg
ar kórónasápur. Vonast til að einstakt útlit
sápanna verði fólki áminning um að gefa
ekkert eftir þegar kemur að handþvotti.
Margrét og Ragnhildur í stúdíói sínu við Seljaveg þar sem þær framleiða sápurnar, en þær fást með piparmyntu- og lavanderilmi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Sápurnar fást á síðu systranna, skyjaverksmidjan.is. FRÉTTBLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
minning um þetta ástand og áminn-
ing um að þvo okkur alltaf vel um
hendurnar þrátt fyrir að þetta til-
tekna veirugrey verði ekki lengur á
sveimi,“ segir Margrét.
Skapandi fólk auðgar lífið
Ragnhildur og Margrét standa
ásamt f leirum að baki sjónlista-
smiðjunni Skýjaverksmiðjunni,
sem gerir sápuna.
„Svo höldum við líka úti vefritinu
Hús og Hillbilly, þar sem við opnum
inn í heim íslenskra listamanna,“
segir Ragnhildur.
„Innan veggja Skýjaverksmiðj-
unnar eru margir hæfileikaríkir
einstaklingar. Móðir okkar, Ragn-
hildur Stefánsdóttir myndhöggvari,
hjálpaði okkur til dæmis að gera
mót fyrir sápuna. Svo hafa menn-
irnir í lífi okkar verið hjálplegir,
hver á sinn hátt,“ segir Margrét.
„Það er nauðsynlegt að hafa
skapandi fólk í kringum sig og að
geta átt samtal við einstaklinga sem
eru á öðrum stað gagnvart verkinu
manns. Maðurinn minn, David,
kom til dæmis með hugmyndina
að því að nota golf-tí fyrir anga
veirunnar. Ég hafði sjálf hugsað mér
að nota skrúfur og leira í kringum
þær. Það tók nokkrar tilraunir að
fatta að tí-hugmyndin væri frábær
til að skapa hina fullkomnu frum-
mynd,“ segir Ragnhildur.
„Það er svo fyndið að veiran er
svolítið eins og golf kúla. Svo við
erum bara að pota golf-tí-um inn í
golfkúlu,“ segir Margrét.
„Mjög skemmtilegt. Hver tenging-
in á milli kórónuveirunnar og golfs
er, það verður bara að fá að koma í
ljós síðar,“ bætir systir hennar við.
„Tengingin gæti verið sú að fólk
bíður oft eftir eftirlaunaárum til
að komast í golf og slökun, en við
eigum bara að gera það núna,“ segir
Margrét.
„Skarplega athugað, þið lásuð það
fyrst hér félagar. Kórónuveiran dul-
býr sig sem partur af golfsetti til að
minna okkur á að lifa í núinu,“ segir
Ragnhildur.
steingerdur@frettabladid.is
2 1 . A P R Í L 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R16 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ