Fréttablaðið - 21.04.2020, Síða 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
VIÐ ERUM ALLAR
DISKÓDROTTNINGAR
OG ÉG ALLAVEGANA GERI
EITTHVAÐ Í ÞVÍ.
LICATA
sófar og stólar
Ný og glæsileg lína í DORMA.
Sófar, stólar og skammel úr
fallegu og slitsterku áklæði.
Breyttur afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 12–18
Laugardaga kl. 12–18
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
á
do
rm
a.i
s
Heima er best
verslaðu á dorma.is og
við sendum þér það frítt
KLIKKAÐU Á VÖRU
OG ÞÚ FERÐ BEINT
INN Í VEFVERSLUN
DORMA.IS
HEIMA ER BEST
tilboðin
Heima er best
verslaðu á dorma.is og
við sendum þér það frítt
STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN
UM BÆKLINGINN OKKA
R
RÚM 2–13 | Mjúkvara og d
únn 14–17 | Stólar 18–19 | S
ófar 20–29 | Hillur, borð o
g skápar 30–33 | Affari og
smávara 34-42
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Þú finnur
nýjan
bækling
á dorma.is
Aðeins 187.493 kr.
LICATA
hornsófi
Hornsófi í Kentucky koníak áklæði. Hægri eða vinstri
tunga. Svartir nettir járnfætur. Stærð: 262 x 226 x 82 cm
Fullt verð: 249.990 kr.
25%
AFSLÁTTUR
HEIMA ER BEST
TILBOÐ
DAG HVERN LESA
93.000
ÍSLENDINGAR
FRÉTTABLAÐIÐ
AÐ MEÐALTALI HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP OKT-DES 2019, 12-80 ÁRA,
ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019
Smásk ífan Polit ician. . . of Love er sú fyrsta sem Sólveig Matthildur úr Kælunni miklu sendir frá sér síðan sólóplatan Con-stantly in Love kom út á
sama tíma fyrir ári.
„Þetta er eiginlega kannski mesta
djóklag sem ég hef gert,“ segir Sól-
veig Matthildur og bætir við að
þótt hún geri alltaf allt af alvöru
þá finnist henni í góðu lagi að gera
stundum grín að sjálfri sér.
„Og mér finnst ógeðslega fyndið
að ég sé alltaf eitthvað „constantly
in love“ og „politician of love“,“ segir
hún og vísar í fyrrnefndu lögin tvö.
„Þetta er náttúrlega alveg fárán-
legur titill,“ heldur hún áfram og
rekur söguna að baki nýja laginu.
Með fyrirvara um að það hafi í
raun sprottið upp úr gríni í góðra
vina hópi.
Spennandi ástarpólitík
„Við vorum að spila á tónleikum
með Kælunni í Berlín,“ segir Sólveig
og hverfur aftur til nóvember 2018.
„Ég var svo í rauðum jakkafötum
eftir tónleikana eitthvað að tala
um ástina við vini mína sem eru
par og þá kom Kinnat vinkona mín
og sagði eitthvað um að ég væri eins
og „politician of love“ og mér fannst
þetta geggjað.“
Kinnar er grafískur hönnuður og
hannar allt sem hanna þarf fyrir
Sólveigu Matthildi og Kæluna miklu
og lagði fram bón sem tónlistarkon-
unni fannst sjálfsagt að verða við.
„Hana langaði svo mikið til þess
að hanna plötuumslag fyrir lag sem
héti Politician... of Love. Þannig að
ég gerði það bara. Ég gerði lagið
eiginlega bara fyrir hana þannig að
þetta er líka smá djók,“ segir Sólveig
um þetta fyrsta lag af væntanlegri
þriðju breiðskífu hennar.
„Málið er að þetta er bara fyrsta
lagið af plötunni og ég ætla núna að
gefa út smáskífu í hverjum mánuði.
Líka á meðan þetta Covid er í gangi
og svona og maður hefur tíma. Ég er
að gera alls konar spennandi.“
Glimmerharmur diskósins
Nýja lagið þykir minna á blöndu af
Depeche Mode og Abba sem talið er
skýrast af meintum áhrifum diskós
og depurðar á Sólveigu um þessar
mundir. „Ég hef alltaf verið ógeðs-
lega mikil diskódrottning í mér
og ég ætla að halda þannig áfram
í smástund. Ég er komin með smá
leiða á því að vera svona ótrúlega
sorgmædd,“ segir hún aðspurð um
þessa djúpsálarfræðilegu kenningu.
„Þá meina ég í tónlistinni en ekki
í alvöru lífinu,“ segir hún hlæjandi
um leið og hún áréttar að umrædd
sorg sé bundin við tónlistina. Þá
bætir hún við að hana langi til að
vinna svolítið meira í lögum með
hressilegum takti „sem er skemmti-
legt að spila og dansa við.
Diskóið er einmitt svo mikill
glimmerharmur eða þannig. Það
eru alltaf einhver svona diskólög
sem eru um ástarsorg og eitthvað
alls konar svoleiðis þótt það hljómi
kannski ekki þannig í laginu sjálfu,“
segir Sólveig um þann óræða harm
sem yfir litríkum diskóvötnum
svífur.
Á mörkum hugmyndaheima
„Þetta er samt svo líkt sko,“ segir
Sólveig þegar hún bendir á að þeir
himnar og höf sem aðskilja Abba,
Depeche Mode, diskóið og jafnvel
Kæluna miklu séu ekki jafn víðfeðm
og margir telja.
„Eins og með Kæluna, þá erum
við alltaf rosa dimmar og eitthvað
svoleiðis og erum að gera meira
rokk og post-pönk en fólkið sem
hlustar á þá tónlist hlustar líka
alveg á diskó,“ segir hún og talinu
víkur að sólóferlinum.
„Við erum bara með allt öðru-
vísi hugmyndaheim í Kælunni.
Við erum að vinna að nýrri plötu
núna og erum alltaf með eitthvert
annað konsept. Eitthvað svona með
íslenska náttúru, þjóðsögur og alls
konar svoleiðis og þetta ástardæmi
og þessi diskódrottning eru bara
einhvern veginn hinn hlutinn af
sjálfri mér.
Við erum allar diskódrottningar
og ég allavegana geri eitthvað í því,“
segir Sólveig sem fer í diskófíver á
milli þess sem þær Margrét Rósa
og Laufey Soffía vekja upp Kæluna
miklu þegar þær þrjár koma saman.
toti@frettabladid.is
Diskódrottningin sem
kom inn úr kælunni
Sólveig Matthildur úr Kælunni miklu hefur sleppt sinni innri
diskódrottningu lausri og er á ástarpólitískum nótum í laginu
Politician... of Love af fyrstu smáskífu þriðju sólóplötu sinnar.
Sólveig Matthildur úr Kælunni hefur ákveðnar efasemdir um að gullgínan sé raunverulegur pólitíkus ástarinnar en
tekur umræðuna við hana á harmrænum en léttleikandi diskónótum á sólósmáskífunni Politician... of Love..
2 1 . A P R Í L 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð